Hádegistónleikar að Kjarvalsstöðum.

Við hjónin sóttum hádegistónleika ásamt móður minni í hádeginu í dag en þar fluttu listamennirnir Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Kvaran og Peter Maté vel valin verk sem nærði líkama og sál í klukkustund eða svo.

Takk kærlega fyrir okkur ágætu vinir.  Við mætum örugglega næst þegar boðið verður upp á svona notalegheit í hádeginu.  Á eftir fengum við okkur smá snarl í kantínunni áður en við gengum út í fallegt vorveðrið sem hefur verið hér í dag.

Ég hvet alla að gefa sér tíma til að njóta hádegisstundar með frábærum listamönnum sem kunna að gleðja og gefa.  

Takk enn og aftur fyrir okkur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svo satt hjá þér Ía mín. Það er svo nærandi fyrir sálina að hlusta á falleg tónverk. Ætla að senda þér bréf aftur gegnum Facebook síðuna þína og bið þig að lesa það og svara mér elskan mín.  Kærar kveðjur, Anna Kristine.

Anna Kristine (IP-tala skráð) 28.4.2010 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband