Þórir Gunnarsson aðalræðismaður var sæmdur riddarakrossi hinni íslensku fálkaorðu.

Um leið og við keyrðum í hlað að Bessastöðum í gær klukkan hálf fimm og staðarhaldari opnaði fyrir okkur braust sólin úr skýjum og geislar hennar flæddu yfir okkur þar sem við litla fjölskyldan vorum á leið í móttöku hjá Forseta Íslands.

Tilefnið var að heiðra minn elskulega fyrir góð og ötul störf í þágu þjóðarinnar á erlendri grundu.  Þar sem hann er búinn að starfa í tuttugu ár í Tékklandi sem Aðalræðismaður og unnið frábær st0rf hvort sem hefur verið í þágu lista, menningar og almennum samskiptum.

Svo sannarlega vel að þessari viðurkenningu kominn.

Afhending fálkaorðunnar

Athöfnin var mjög látlaus og persónuleg þar sem engin annar var heiðraður í þetta sinn.  Við höfðum ákveðið líka að hafa þetta í okkar anda og buðum eingöngu börnunum okkar tveimur, tengdabörnum. barnabörnunum og móður minni og föður Þóris til þessarar sérstöku móttöku.

Þess vegna varð þessi stund eftirminnileg fyrir okkur öll.  Eftir afhendinguna fengu þau sem ekki höfðu áður heimsótt  Bessastaði tækifæri á að skoða aðeins heimkynni forsetans en við Þórir áttum góða stund með Hr. Ólafi og forsetaritara Örnólfi Thors í gömlu fundarstofunni.

Ég er mjög stolt af mínum elskulega og finnst hann vel að þessari viðurkenningu kominn.

Eftir athöfnina var hugmyndin að halda þessu nú bara fyrir okkur en á síðustu stundu var ákveðið að bjóða okkar nánustu ættingjum og vinum sem töldu sjötíu manns þó skorið væri við nögl.  Kampavínið flæddi í tvo tíma síðan fórum við litla kjarnafjölskyldan í Perluna og nutum þess að gleðjast áfram saman.      Yndislegur dagur sem aldrei kemur til með að líða okkur úr minni.

Þau eiga eftir að erfa landið Hér eru þau sem erfa eiga landið. 

 Búin að koma sér fyrir í góðum stól á Bessastöðum.  Eins og þjóðhöfðingjar bæði tvö.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Blöndal

Elsku Ía og Þóri. Innilega til hamingju, bæði tvö. Oft hef ég verið hissa á orðuveitingum forsetans en ekki í þetta sinnið. Hamingjuóskir, kossar og knús á ykkur bæði

Gísli Blöndal, 4.3.2010 kl. 21:15

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Innilega til hamingju með þetta kæru hjón   Alveg örugglega vel að þessu komin   Ég veit að Þórir er mér sammála um að þú eigir 50 % í þessari viðurkenningu

Sigrún Jónsdóttir, 4.3.2010 kl. 21:20

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Til hamingju elskuleg, þið eigið þetta alveg örugglega skilið og þó meira væri

Jónína Dúadóttir, 5.3.2010 kl. 07:16

4 identicon

Innilega til hamingju.Kærleikskveðja.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 5.3.2010 kl. 07:32

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hjartanlega til hamingju, hann Þórir þinn verðskuldar þennan kross svo afar, en þú hefur staðið við bak hans alla tíð og átt þessa verðskuldun ekki síður.

Kærleikskveðjur til þín og þinna

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.3.2010 kl. 08:39

6 identicon

 Innilega til hamingju   trúlega verðskuldið þið bæði þessa viðurkenningu.

Kærleikskveðja  Anna Sig

Anna Sig (IP-tala skráð) 5.3.2010 kl. 09:06

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Takk fyrir góðar kveðjur og heillaóskir mér til handa elskurnar mínar.  Við ætlum að vinna þennan áfnga eins og hinn á undan. 

Ía Jóhannsdóttir, 5.3.2010 kl. 09:22

8 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Hjartanlega til hamingju med Fálkaorduna kæru hjón(segi ég )

Hann og tid erud vel ad henni komin.

Bestu kvedjur frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 5.3.2010 kl. 10:51

9 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 5.3.2010 kl. 12:03

10 identicon

Innilega til hamingju með þessa viðurkenningu bæði tvö. Sjaldan hefur slík viðurkenning verið jafn verðskulduð. Við vitum öll að þið hafið verið eins og einn maður í öllu ykkar góða starfi. 

Baldur og Eva

Baldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 5.3.2010 kl. 15:38

11 identicon

Elsku Þórir og Ía.  Hjartanlega til hamingju með orðuveitinguna. Elsku frændi minn á hana svo sannanlega skilið, miklu meir en margur sem hefur hlotið fálkaorðuna fyrir það eitt að hengja jakkann sinn á skrifstofustólinn. Það er sagt að bak við merka menn standi sterkar konur og það á svo vel við þegar um ykkur tvö er að ræða og þá er ég ekki að gera lítið úr þér elsku frændi en þú átt duglega konu. Ég er svo stolt af ykkur tveimur. Milljón kossar og faðmlög.  Hilmar biður fyrir kveðjur

Skrifað í Bandaríkjunum

Ella og Hilmar

Elín Káradóttir (IP-tala skráð) 5.3.2010 kl. 16:50

12 Smámynd: Ragnheiður

Innilegar hamingjuóskir

Ragnheiður , 5.3.2010 kl. 19:11

13 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innilega til hamingju með þetta elsku Ía mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 5.3.2010 kl. 21:56

14 identicon

Kæru Ía og Þórir - voða voru þetta nú ánægjulegar og góðar fréttir !! Hjartans hamingjuóskir héðan úr Danmörkunni, -  hefði gjarnan vilja verið nær og knúsað :-)

kveðja Kata frænka

Katrín (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 14:20

15 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með það bæði tvö!

....og bara svona til að fyrirbyggja að allt sé í lagi þá hleypi ég ekki endilega kettinum út um leið og ég gef fuglunum

Hrönn Sigurðardóttir, 7.3.2010 kl. 20:56

16 identicon

Kæra Ía og Þórir innilega til hamingju! Þetta eigið þið sannarlega skilið fyrir allt góða starfið í Prag og fyrir að taka vel á móti "farfuglum" með hjálpsemi og gleði í hjarta. Þarna gerði forsetinn vel.

Kveðja

Guðni

Guðni Gunnarsson (IP-tala skráð) 8.3.2010 kl. 17:51

17 identicon

Ég fer bara að skæla. Til hamingju öll. Þetta er meira en verðskuldað. Og hana nú.

Halla Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 8.3.2010 kl. 21:05

18 Smámynd: Svanfríður Guðrún Gísladóttir

Kæru vinir Ia og Þórir,innilega til hamingju með orðuveitinguna,sannarlega hafið þið bæði til hennar unnið,Við gleymum ekki dýrðar deginum  á heimili ykkar 'i Prag á 50ára afmæli Helga Gretars.Bestu kveðjur frá okkur hjónum . Svanfríður nú sl 10 dagana á 12g Landsp.Hringbraut

Svanfríður Guðrún Gísladóttir, 11.3.2010 kl. 05:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband