Prinsinn er fjögra ára í dag.

Allt komið í rugling fyrir blessuðu barninu.  Það var veisla á sunnudaginn fyrir leikskólafélaga og aðra vini með tilheyrandi húllum hæ og í dag á að bjóða ömmu, afa, langömmu og fleirum sem vilja forðast háreysti og gól.

Afi er búinn að laga þessa fínu fiskisúpu eins og hún gerðist best á Rest. Reykjavík - Prague.  Amma búin að kaupa forláta skó í Kron vegna þess að stubbur á allt of mikið af dóti og kemst ekki meira fyrir í herberginu hans.

Til hamingju með daginn Þórir Ingi minn.  Njóttu vel, sjáumst klukkan sex í dag.

Farin að kaupa gjafapappír og borða til þess að geta búið til dúllulegan pakka fyrir fjögra ára snáða.

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN LITLI STORMSVEIPUR


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Til hamingju með prinsinn Kæru hjón, veit að þið eruð að njóta þess að vera með honum núna.
Kveðjur

Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.9.2010 kl. 19:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband