Tvöföld hátíðahöld hér í dag.

Hér var fylgst með leiknum í hádeginu og auðvitað fögnuðum við silfrinu sem strákarnir koma með heim í farteskinu.  Tökum á móti þeim heima með pomp og pragt og höldum þeim góða veislu!

Eftir að hafa fagnað silfrinu fórum við, ég og minn elskulegi niður í Prag til að fagna fæðingardegi hans.  Hann á afmæli minn gamli og af því tilefni bauð hann litlu fjölskyldunni  út í hádegismat á Mandarin sem er einn af okkar uppáhaldstöðum.

Elma Lind skemmti okkur öllum með sínu yndislega babli á meðan við röðuðum í okkur kræsingum með Tai og Indversku ívafi. Kvaddi síðan afa og ömmu með gjöfum (þrátt fyrir að ég ætti ekkert afmæli) sniðug, sló tvær flugur í einu höggi svo hún þarf ekkert að pæla í gjöf í handa mér í október.  Eitthvað hefur henni fundist afinn og amman vera þreytuleg því hún færði okkur dekurnudd á Mandarin - Spa. Ekki veitir af að reyna að flikka aðeins upp á þau gömlu hehehhe. 

 Ætli við tökum það bara ekki rólega það sem eftir er dags og komum okkur vel fyrir í sófanum fyrir framan TV- ið enda búinn að vera góður dagur í dag.  


mbl.is Til hamingju Ísland!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kærar kveðjur á þig Ía mín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.8.2008 kl. 15:38

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já mér líkar örugglega svona vel við þig út af því að þú átt afmæli í október.  Flest af því fólki sem mér þykir vænt um er á þeim stað í árinu, merkilegt.

En auðvitað reytingur annars staðar líka.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.8.2008 kl. 15:39

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Takk fyrir Jenný mín, ég hallast líka að sporðdrekum og meyjum.

Ía Jóhannsdóttir, 24.8.2008 kl. 16:31

4 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Innilega til hamingju með þinn elskulega.  Hafðu góða TV-stund.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 24.8.2008 kl. 18:14

5 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Til hamingu med husbandid mín kæra....Yndisleg ad fá dekur fyri sig ...Elska tad og reyni ad fara reglulega í svona nokkud.Knús á tig og tína inn í nóttina

Gudrún Hauksdótttir, 24.8.2008 kl. 22:11

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innilega til hamingju með húsabandið og silfrið, hafðu það gott elskuleg. Bouncy 2  Bouncing Hearts

Ásdís Sigurðardóttir, 24.8.2008 kl. 22:26

7 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Lovely day here as well. Góða nótt

Eva Benjamínsdóttir, 24.8.2008 kl. 22:50

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Til hamingju með bóndann og njótið dekursins

Sigrún Jónsdóttir, 25.8.2008 kl. 00:04

9 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Til hamíngjiu með husbandið, vonandi hafð þið notið dagsins í gær.

Kærleiksknus

Kristín Gunnarsdóttir, 25.8.2008 kl. 07:15

10 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Takk fyrir góðar kveðjur til bóndans og innlitin.

Ía Jóhannsdóttir, 25.8.2008 kl. 07:35

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ó sá ekki að maðurinn átti afmæli, til hamingju með hann.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.8.2008 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband