Sárt!

Hvernig getur konan látið annað eins út úr sér!

Mig verkjar í brjóstið eftir að hafa lesið þessa frétt! 

Hvílítkt blygðunarleysi hjá Margréti Tryggvadóttur!

Þráinn minn okkur tekur þetta sárt og sendum þér baráttukveðjur héðan frá Stjörnusteini.

 


mbl.is Þráinn segir sig úr þingflokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Margrét þingkona gerir sig seka um að brjóta 65. grein ísl. stjórnarskrárinnar þar sem segir;

VII.
65. gr. [Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu (t.d. veikinda) að öðru leyti.

Í sinni hrokafullu afstöðu telur hún að fólk sem gæti hugsanlega verið lasið geti ekki starfað sem þingmenn

Hún á að segja af sér þingmaður, núna.

Þráni sendi ég baráttukveðjur og býð honum alla þá hjálp sem ég get veitt í baráttunni við siðblinda stjórnmálamenn.

Sigrún Jónsdóttir, 14.8.2009 kl. 14:49

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Tek undir með þér, þessa kona á að skammast sín og það mikið.

Ásdís Sigurðardóttir, 14.8.2009 kl. 14:59

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Já það sýður enn innra með mér!  Djöfull það sem maður getur orðið reiður úr í bláókunnugt fólk!   Þessi kona ætti að sjá sóma sinn í því að segja af sér og biðjast afsökunar á framferði sínu.

Ía Jóhannsdóttir, 14.8.2009 kl. 17:08

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Við á þessum bæ erum afar sár fyrir hans hönd og ég skammast mín fyrir þessa konu, get ekki annað sagt, hún ætti bara að koma sér í burtu.
Þó hún mundi biðjast afsökunar þá yrði henni ekki vært ef einhver sómi er í voru Þingi.
Knús til þín ljúfust
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.8.2009 kl. 20:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband