Hundar eru skynugar skepnur...

...og þar er hundurinn okkar, hann Erró engin undantekning, enda eðalhundur af Golden Retriever kyni.  Hann hefur undanfarna viku fundið á sér að vorið hefur hafið innreið sína hér og vill ólmur komast út um leið og við förum á stjá.  Yfirleitt er hann mjög rólegur og ef rignir fer hann ekki út fyrir dyr, enda fæddur aristokrat, fussar við bjór en elskar Kampavín.   

  Í morgun var hann alveg að gera útaf við mig og grenjaði og gelti við eldhúshurðina eins og hann vildi segja, hvað er þetta kerling ætlar þú að sitja inni í allan dag, eða hvað?   Hann hætti ekki fyrr en ég fór út á veröndina með kaffibollann. Sólin var rétt að gægjast upp yfir trjátoppanna  og ég fann strax að hundurinn hafði rétt fyrir sér. Vorið er komið!  Einhvern tíma hefði ég farið í "bongo-blíðu" dressið í svona veðri en þetta leit nú út fyrir að verða svona í og úr veður.

Það er sem sagt hundinum að þakka að ég er búin að vera á kafi í vorverkunum í dag, með rassinn upp í loft.  Minn elskulegi segir oft að hann sjái ekkert af mér á þessum árstíma, nema botninn. Ojæja, það gæti nú verið verra.

Þar sem ég er að puða hér í framlóðinni erum við með gosbrunn, reyndar tvo, sem per se er ekkert merkilegt.  Mér hefur alla tíð þótt róandi að hlusta á gljáfrið í vatninu en í dag hefur þetta haft mjög slæmar afleiðingar fyrir blöðruna og ískyggilega margar ferðir farnar á "The little girls room".  Nú segir einhver iss, er ekki bara kerlingin að verða gömul, ég vil þvertaka fyrir svoleiðis vitleysu!  Annar segir örugglega: Halló, hvernig væri þá bara að skrúfa fyrir vatnið.  En það er nú mergurinn málsins, ég hef ekki hugmynd hvar kraninn er.  Læt vita hvort ég hef fundið hann á morgun.         

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Velkomin í bloggheiminn elsku frænka :) Hlakka til að fá þig á klakann á morgun....vúhú!

RAGGA

Ragga (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband