Var á ,,vaktinni" í alla nótt

Ekki veit ég hvað olli því að ég lá andvaka í alla nótt. E.t.v. var það nýi bíllinn minn sem ég fékk óvart upp í hendurnar í gærkvöldi, þessi með fjóru hringunum, eða ný ofnæmislyf sem ég byrjaði að taka í gærmorgun.  En mikið rosalega var ég orðin pirruð þegar klukkan var orðin fimm og ég ennþá glaðvakandi.

Ég var að festa blund rétt fyrir sex þegar ég hrekk upp við það að vinnumaðurinn ræsir traktorinn beint fyrir neðan svefnherbergisgluggann.  Ég hefði getað rekið hann á stundinni.  Ekki séns að ég yrði á hann í dag!  

En hvað um það ég er enn glaðvakandi, fuglarnir kyrja morgunsönginn sinn hér á fullu og sólin komin hátt á loft og nýr dagur með nýjum verkefnum í uppsiglingu.       


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband