Nýi Weberinn fallinn í annað sætið á leikfangalista míns elskulega.

Eins og flestallir eiginmenn á minn elskulegi sína uppáhaldsdótabúð.  Ég held að númer eitt hjá honum sé heljarstór byggingavöruverslun hér í nágrenninu en í öðru sæti er það Electric World. Nýi Weberinn sem var keyptur snemma vors er nú kominn í annað sæti uppáhaldsleikfanga.  Þess í stað er  forláta djúsvél  í þvílíku uppáhaldi og ef maður gæti orðið afbrýðisamur út í djúsgerðavél, þá held ég bara að það sé hægt.

 Nú bruggar minn handa gestum og gangandi þessa líka forláta drykki sem auðvitað eru sælgæti að hans mati og allir eiga að umma yfir og sleikja út um.  Ég get nú ekki sagt að mér líki öll þessi seyði hans en verð samt að viðurkenna að sum geta bara verið þrælgóð og svo er auðvitað hollusta í þessu öllu.     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband