27.8.2007 | 11:24
Enn um afmælisbörn mánaðarins
Ég er búin að missa af þvílíkum veislum undanfarna daga heima á Fróni. Æ, æ,æ, þvílík óheppni. Helgi minn Gíslason listamaður, sextugur 24 ágúst. Jæja vinur minn bara kominn í hóp ,,eldri manna" Til hamingju með það! Í gær átti síðan mágkona mín Björk Jónsdóttir söngkona afmæli og í dag er það Arnór Kári Egilsson og á morgunn Helgi mágur minn. Það er ekkert smá hvað ágústmánuður er vinsæll sem fæðingardagur meðal vina okkar og ættmenna.
Við höfum verið með ykkur öllum í huganum og óskum ykkur alls hins besta og skemmtið ykkur vel.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Já Ía mín þetta voru sko fín partí hjá okkur. Og núðlurnar sem Sigrún fékk sér í hádeginu kostuðu bara 490 kr ísl. á Wokbar Nings, en það voru engar þiljur né drekar á sveimi.
Egill Jóhannsson (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 22:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.