Þokan lúffaði fyrir Birni Bjarnasyni.

Dómsmálaráðherrann okkar er hér í stuttri heimsókn og þar sem mér var litið út í morgunsárið sá ég hvar Björn var að gera sínar æfingar á pallinum umvafinn morgunþoku.  Mér hefur skilist að þessar hreyfingar eigi að hreinsa líkama og sál og viti menn, orkustreymið var þvílíkt að sólin braust út úr þokunni eins og hendi væri veifað og baðaði ráðherrann haustgeislum sólar.  Skemmtilegt ha?

Ráðherrann ætlar að dvelja hér í nokkra daga, sækja fundi og njóta kyrrðarinnar hér í sveitinni. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband