27.12.2008 | 18:50
Elsa Lund, Saxi, Skúli rafvirki, Magnús og fleiri góðir karakterar.....
......skutust hér i inn í sjónvarpsherbergið okkar í dag að ógleymdum Ladda sjálfum. Við hjónin skemmtum okkur vel með afmælisbarninu og öllum hans gestum. Örugglega verið frábært að sjá þetta ,,live" í Borgarleikhúsinu á sínum tíma.
Takk kærlega fyrir skemmtunina Laddi minn.
Við erum ein í húsinu gamla settið þar sem Soffía fór í heimsókn til bróður síns og mágkonu. Satt best að segja frekar tómlegt.
Það sem til stóð að gera hér á heimilinu í dag fór fyrir lítið og ætla ég bara að láta við svo búið.
Það má alveg taka einn letidag svona milli jóla og nýjárs, eða er það ekki?
Er ekki enn farin að hafa tíma til að líta í bækurnar sem enn eru hér plastaðar inn.
Glugga ef til vill í einhverja þeirra í kvöld.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Menning og listir, Sjónvarp, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Ég er líka með Ladda mjög skemmtilegt kær kveðja.
Kristín Katla Árnadóttir, 27.12.2008 kl. 19:39
Um að gera að slaka á.
Yndisleg myndin af barnabarninu og jólsveininum.
Knús.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.12.2008 kl. 20:11
Sonur minn fekk Ladda svo ég fæ diskinn lánadann vid tækifæri...Hlakka til ad sjá hann.Um ad gera ad slaka á tegar madur getur.
Knús til ykkar.
Gudrún Hauksdótttir, 27.12.2008 kl. 21:01
Við fórum á Ladda sýninguna í Borgarleikhúsinu og það var virkilega gaman Letidagarnir um jólin eiga að vera minnsta kosti tveir mín kæra, helst fleiri
Jónína Dúadóttir, 28.12.2008 kl. 11:36
bara slaka á Ía mín.. bara slaka á. Held við ættum að taka orð hvor annarrar fyrir því og lesa mikið. Ertu ekki örugglega búin að taka plast utan af eins og einni bók?
Jóna Á. Gísladóttir, 28.12.2008 kl. 12:27
Gott að slaka á jafnvel þó maður sé ekki í annríki og stressi. Án samviskubits, bara njóta og svo af stað aftur
Guðrún Þorleifs, 28.12.2008 kl. 13:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.