27.11.2009 | 10:13
Jólamarkaðurinn hér í Prag
Hér gefur að líta mynd frá jólamarkaðinum í Prag, Tékklandi. Jólatréð sem glitrar þarna spilar jólalög og hringir klukkum á heila tímanum.
Ég las frétt frá Þýskalandi um daginn þar sem greint var frá að kona hefði orðið undir jólatré í stórmarkaði í Þýskalandi. Fyrir um þremur árum gerðist það hér að þrír urðu undir samskonar tré og sést hér á myndinni. Einn lét lífið og hinir tveir slösuðust verulega. Ástæðan fyrir því að tréð féll var að þeir höfðu ekki strengt það nógu vel á milli húsa. Líka það að þeir gerðu ekki ráð fyrir vindhviðum á þessum árstíma. Það blaktir venjulega aldrei hár á höfði hér vetrarmánuðina.
Best að taka engan séns hér. Standa bara álengdar og horfa í andagt.
Á sunnudaginn verður jólamarkaðurinn opnaður með tilheyrandi hátíðahaldi. Annars finnst mér Kristkind - markt í Nürnberg sá allra besti sem ég hef séð hér á meginlandinu. Að vera viðstödd opnunina þar er stórkostlegt.
Þetta var bara svona hugleiðsla um jólamarkaðinn.
Farin að skrifa jólakveðjur til vina og vandamanna.
Helstu jólamarkaðir í Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Evrópumál, Menning og listir, Vefurinn | Breytt s.d. kl. 10:44 | Facebook
Athugasemdir
Sæl Ía mín! Oh, hvað mig langar mikið til að vera í Prag þessa dagana! Það gengur því miður ekki upp.Hef bara einu sinni verið á aðventunni í Prag og það voru dýrðardagar. Bið kærlega að heilsa Þóri. Knús til krakkanna líka ef þau muna eftir mér!
Anna Kristine (IP-tala skráð) 27.11.2009 kl. 10:45
Jólin koma hvar sem er
birtast okkur í ljósum.
Jólin eru sem betur fer
sem á þessum tíma kjósum.
Ljósið er sannleikurinn.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.11.2009 kl. 11:31
Fallegt er nú tréð.Kveðja til þín ljúfan:)
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 27.11.2009 kl. 15:05
Anna mín já það er gaman hér á aðventunni. Auðvitað muna krakkarnir eftir þér. Sjáumst vonandi fyrr en síðar. Kv. heim.
Milla falleg vísa og já Ragna Tréð er stókostlegt, hátt og glæsó.
Ía Jóhannsdóttir, 27.11.2009 kl. 15:31
Þetta er fallegtBestu kveðjur frá norðurhjaranum
Jónína Dúadóttir, 28.11.2009 kl. 07:45
mundu að passa þig líka á grænklæddum jólasveinum :)
Ásdís Sigurðardóttir, 28.11.2009 kl. 14:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.