Færsluflokkur: Bloggar
10.12.2009 | 22:58
Jólin byrja að Stjörnusteini annað kvöld,
Á meðan Obama tók við friðarverðlaununum sátum við í norska Sendiráðinu hér í Prag á fyrsta degi kræsinga og ofáts sem kemur til með að standa yfir næstu vikur.
Að sjálfsögðu kom veitingin upp á pallborðið og við ræddum þetta svona fram og til baka. Annað sem rætt var af miklum áhuga var efnahagsástan okkar Íslendinga og hvort við værum alveg á því að ganga í EU. Hvað veit ég um það. Fáfróð manneskjan sem nennir ekki einu sinni að hugsa um pólitík hvað þá að setja mig niður við að skilja eymdarástan þjóðar minnar.
Nei, ef ég á að vera alveg hreinskilin við ykkur þá eru þessi boð mér alls ekki að skapi og mér yfirleitt hundleiðist. Í kvöld var ég næstum, eftir að hafa gúffað í mig graflax, purusteik og tilbehör og créme Brullée á eftir og var komin með gubbunu upp í háls, var ég næstum búin að standa upp frá borðinu og komin hálfa leið út úr húsinu. Það sem mér leið illa!!!!
Það tók óratíma að keyra þess 50 km heim og nú er ég aðeins farin að jafna mig enda sit hér með Cheddar ost í annarri og glamra á lyklaborðið á milli þess sem ég sting upp í mig bita. Málið er að það er bráðnauðsynlegt á éta sig niður á hverju kvöldi ef maður á að lifa þessar vikur af.
Mér var tilkynnt af mörgum í kvöld að jólin byrjuðu alls ekki í IKEA enda þvílík fjartæða að halda því fram. Jólin byrja hér heima hjá okkur að Stjörnusteini.
Það voru all margir sem sögðu mér að þeir væru búnir að liggja á hnjánum í marga daga, slíta gat á margar buxur, til þess að biðja um snjó eins og gerist hér í fyrra þegar við héldum okkar árlega jólaboð. Nú verður boðið til veislu annað kvöld og hann verður heldur betur að taka sig saman í andlitinu ef hann ætlar að snjóa. Það er hiti hér og ekkert líklegt að hann breyti því næstu klukkustundirnar.
En veislan verður á morgun og hlökkum við mikið til að fá vini okkar hingað í þessa árlegu jólaveislu.
Segi ykkur seinna hvernig til tókst.
Ætla ekki að segja ykkur hvað mér líður illa í maganum eftir þetta át í kvöld en mikið hrikalega var purusteikin góð. Enda kom frá Nils á Kampa.
Mótmælaganga í Ósló | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.12.2009 | 08:39
É á engan lopp amma.
Í gærkvöldi hringdi síminn og á hinum endanum var lítill þriggja ára gutti: ,,Amma ég á engan lopp, þú verður að kaupa nýjan, minn er allt of lítill"
- ,,Ha áttu ekki hvað?" skildi ekki hvað hann var að fara.
,,Ég á ekki lopp" endurtók hann og hvæsti aðeins á eftir svona pínu pirró, þessi amma hans var ekki alveg með á nótunum þar til mamman kom í símann og sagði: ,,Mamma hann er að segja að hann eigi engan slopp"
OK, svo ég í einfeldni minni spurði: Jæja ég skal athuga hvort ég finn slopp en hvernig á hann að vera á litinn. Smá þögn í síman síðan:
,,Sona Spider - man eða Super- man loppur!" Smá dæs, þessi amma var ekki alveg að skilja þetta.
,,Nú ok" sagði ég og bætti við ,,hvar fæst þannig sloppur?"
Hann alveg búinn á því að ræða þessi sloppamál ,, Í HM heyrist frá mömmunni og síðan alveg búinn á því frá þeim stutta ---- ,,blessssss"
Nú þá veit ég það. Og fer í þessi mál eftir helgi.
Sem betur fer var ég búin að kaupa harðan pakka handa honum í jólagjöf svo þetta verður bara nýársgjöf.
Ætla að kalla það kósígjöf. Spiderman loppur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég vil alls ekki vera vanþakklát, svo sannalega ekki nú þegar hátíðin nálgast óðfluga með hverjum deginum. Nei, alls alls ekki, hemst nei inte tale om.
Málið er að í dag barst okkur þrjú boðskort á Luciukvöld, dag- morgun- og kvöldverðarboð. Sko eitt Luciuboð með syngjandi fallegum ljóshærðum stelpum í pífukjólum er alveg nóg en þrjú!!!!!!!!!!!!
Halló minnir mig eitthvað svo mikið á jólalagið hans Gísla Rúnars um fimm feitar mjaltakerlingar og sjö syngjandi svani. Alveg á tæru að Gísli fékk þennan texta lánaðan hjá frændum vorum Svíum. Ég er alveg sjúr á því. Eitthvað svo hrikalega sænskt við allan textann. Svo kemur þetta sjö syngjandi Luciur frá morgni til kvölds.
Hvernig fer ég að því að afþakka eitthvað af þessu án þess að móðga elskulegu Svíana vini okkar. Það sem hægt er að koma manni í vandræði svona rétt fyrir jólin. Mér fannst allt annað alveg nóg þó þrír Luciutónleikar bættust ekki á dagsskrána hjá okkur.
Nú megið þið ekki halda að mér sé illa við lagið og þessa athöfn. Neip, mér finnst þetta virkilega fallegt og lagið einhvern vegin sogast inn í heilann ef maður heyrir það einu sinni og situr þar næstu dægur. Það er gallinn við þetta.
Nei mér finnst þetta svo fallegt að eitt sinn fékk ég lánaðar Luciurnar frá sænska sendiráðinu til að koma og syngja í boði heima hjá okkur. Allir héldu að þetta væri sænsk/íslenskur siður.
' Mig vantar ekkert svona núna ég er að undirbúa Grýlu og Leppalúðakvöld hér heima á föstudagskvöldið með tilheyrandi jólasveinum komandi úr fjöllunum á Íslandi.
Hér verður ruslaralýður og illþýði í boði en ekkert Santa Lucia.
Skemmtileg andstæða á fólk eftir að segja.
Já við Ísendingar erum alltaf dálítið spes og barbaraleg þegar kemur að veisluhöldum.
Er farin að finna illþýðið sem er hér falið í einhverjum kassa frá því í fyrra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Búin að finna jólagjöfina handa hverjum og einum í fjölskyldunni.
Eitthvað svo notadrjúgt og um leið skemmtilegt og gleður sál sem auga!
Alveg hreina satt! Þetta er klósttrúlluhaldari með svona Ipod tengingu. Það tók mig smá stund að fatta hvað þetta var. Hélt fyrst að þetta væri til að hlaða símann en kom í ljós þegar ég fór að lesa. Þú smellir Ipodinum þarna niður í hólfið þegar þú sest á lúguna og svo bara spilar hann þína uppáhaldstónlist um leið og þú gerir þínar þarfir með tilheyrandi óhljóðum eða söngli því auðvitað syngur þú með t.d. ,, White Christmas" voða kósi tæki.
Nú fá allir sem einn svona græju frá okkur hér að Stjörnusteini og ég tek það fram að það er ekki hægt að skila þessu. Keypt á netinu heheheh þar fór ég alveg með þetta fyrir ykkur.
Þetta er miklu sniðugra en WC haldarinn sem ég sá í einu húsi hér í fyrra sem spilaði alltaf Ho ho ho Merry Christmas um leið og þú snertir rúlluna svo húseigendur gátu fylgst mjög vel með hvað þú notaðir mörg bréf.
Það kallar maður nú bara að hnýsast í persónuleg mál og ansi frekt.
Neip, segi og skrifa þetta tæki er það besta sem ég hef séð.
Já það er margt sem maður getur keypt og glatt fólk með um hátíðarnar.
Fyrir nokkrum árum átti ég svo sniðurgan ,,Sveinka" Þetta var nú bara svona hausinn af Jóla gamla sem ég setti út við útidyrnar og um leið og einhvern bar að garði sagði hann: Hó,hó hó og svo kom eitthvað voða ljúft jólalag.
Nágranni okkar sem þá var frá Skotlandi hrindi einn morguninn hjá okkur um miðjan desember og spurði hvort það væri mögulegt að þagga niður í þessu óféti? Með svona löngu P L E A S E á eftir beiðninni.
Vi héldum það nú en spurðum hvers vegna þetta færi svona í taugarnar á honum. Þá kom svarið: Sko þegar ég er að laumast heim á nóttunni ( hann stundaði mörg jólaboðin með vinnufélögum) þá byrjar helv..... í góla og hún Laura mín vaknar og allt kemst upp. Hvað ég er seinn á ferð og hvernig ásigkomulagi ég er í.
Nohhh...sollis, No problemo my friend. Við kipptum Jóla úr sambandi en einhverja hluta vegna hef ég ekki orðið vör við hann síðan þessi jól í Prühonice. Alla vega ekki rekist á hann hér að Stjörnusteini í mörg ár.
Hvar ertu Jóli minn?
Farin að leita úti í geymslunni eða hér í einhverjum kassanum.
Finn hann vonandi langar svo að hengja hann út við hliðið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.12.2009 | 15:20
Hann lítur nákvæmlega eins út og fyrir þrjátíu árum. Ætli hann hafi látið klóna sig?
Sumt get ég auðveldlega leitt hjá mér en annað getur farið þvílíkt í mínar fínustu. Fyrir nokkrum mánuðum var fólk að kvarta undan auglýsingunum sem birtast hér til hægri þegar þú opnar Mbl.is Mér gæti eiginlega ekki staðið meir á sama nema þegar ég í vor eða snemmsumars tók eftir því að góðvinur minn frá 1969 birtist á síðunni sem einn af aðalleikurunum í kvikmynd sem átti að byrja að frumsýna í einhverju kvikmyndahúsanna í Rvík.
Þarna var hann kominn ljós lifandi alveg ein og hann leit út fyrir þrjátíu og eitthvað árum. Með sömu gleraugun og allan pakkann. Nú er sjálfsagt einhver orðinn forvitinn og spyr: Hver? Um hvern er verið að tala? Nú hann Magga Axels. Get svarið það þarna droppar hann upp þrjátíu árum seinna og hefur ekki breyst baun. Nákvæmlega alveg eins og hann leit út á þessum árum.
Hver er Maggi Axels? Jú hann útskrifaðist sem leikari með mér 1972, síðan gerðist hann ljósavitringur niðrí gamla Iðnó en held að hann starfi núna sem fasteignasali. Hef ekki séð hann í mörg herrans ár. En fyrr má nú rota en dauðrota. Bara koma svona fram og láta alla halda að hann sé að leika aðalhlutverkið í The Hangover. Einhvern gaur sem heldur á barni og spyr: Howse baby is this?
Ég vona að þeir fari að taka þessa auglýsingu út svo ég verði ekki alveg galin að hafa þetta fyrir augunum dagsdaglega. Please!!!!!!!!!!!!! Do it NOW!!!!!!!!!!!!!
Ef þú lest þetta Maggi minn sem er nú frekar ólíklegt væri gaman að heyra frá þér. Léstu klóna þig?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.12.2009 | 15:49
Þessi hlaup á milli eldhúss og borðstofu hafa sett toll á mínar eðal fætur og ruglað heilabúið verulega í dag.
Dagurinn er búinn að vera svona upp og niður, út og suður. Hlaupa úr einu í annað. Aðallega að ganga frá eftir kalkúnveisluna í gærkvöldi. Hér sjáið þið minn elskulega í Benihana ham, get svo svarið fyrir það. Þið sem þekkið japanska steikhúsið Benihana vitið hvað ég er að fara. Sjáið hvernig hann mundar hnífinn við að ,,carva" fuglinn sem var heil átta kíló fyrir sjö manns.
Sjáið hvað minn er happy go lucky!!!!!
Já sem sagt á milli þess sem ég hljóp inn í eldhús og setti í uppþvottavélina vegna þess að ég nennti ekki að klára það í gærkvöldi, fór út og rak kattarkvikindi, sko villikött, sem var á kafi í ofnskúffunni löðrandi í fitu af fiðurfuglinum, leit eftir hvort ofninn sem var að sjálfhreinsa sig kveikti nokkuð út frá sér eins og einu sinni gerðist næstum því, heppin þá að vera heima. Þá var ég á kafi að skrifa jólakort til ykkar allra, nema ykkar aularnir sem ég tók út af listanum og þíðir ekkert að röfla yfir því, búið og gert!
Sko svona leit borðstofuborðið mitt út og svo verðið þið að ímynda ykkur skíðlogandi arineld í horninu á stofunni. Koma svo, setja ímyndunaraflið í gang!
Ok ég er búin að skrifa þessi 200 kort sem senda á hingað og þangað um heiminn. Léttir? Já ekkert smá!
Nú get ég einbeitt mér að eldhúsinu sem er alveg að fara að taka á sig mynd eftir tiltekt dagsins frá klukkan níu í morgun. Ef einver er að undrast hvar Barbara er þá er hún í fríi í dag. Bara eintómt vesen.
Jæja ég ætla nú að fara að huga að kalkúnsafgöngum og laga risa BLT samloku að hætti Ameríkana.
Síðan verður kvöldið tekið með ró og spekt.
Farin að bæta á arininn.
Asnar búin að segja ykkur það, Barbara er í fríi í dag.
Þarf að gera allt sjálf!
Þíðir ekkert að smella á þetta ALLT, hefur ekkert að gera með sjá nánar, oh þið eruð svo miklir aular, meina það!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.12.2009 | 14:43
Allt tilbúið fyrir fullveldishátíðina hér að Stjörnusteini.
Eins og sjá má á þessari mynd þá er allt tilbúið fyrir afmælishátíðina, 1. des fagnað og fyrstu viku í aðventu sem sagt allt í einum pakka hér í kvöld.
Kalkúninn mallar hér í ofninum og það komast ekki fleiri pottar á eldavélina svo eitthvað verður að mæta afgangi en allt reddast þetta.
Í kvöld verðum við litla fjölskyldan hér í Prag og komum okkur í svona smá jólaskap. Sakna þess að hafa ekki Soffu okkar og fjölskyldu hér núna en bara næsta ár.
Svo til hamingju með daginn kæru landar! Ekki seinna vænna að óska ykkur til hamingju með daginn þar sem langt er liðið á hann, ja alla vega hér í þessu landi.
Njótið vel hvar sem þið eruð stödd á jarðarkringlunni.
Krans lagður að leiði Jóns Sigurðssonar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.11.2009 | 09:18
Spádómskertið tendrað í dag.
Fyrsti sunnudagur í aðventu
Það er orðið jólalegt hér að Stjörnusteini og jólastemmning sem aldrei fyrr. Allt sem ég missti af í fyrra verður tekið tvöfalt inn núna.
Ég hef það á tilfinningunni að þessi aðventa verði okkur skemmtileg og hátíðleg með ógrynni af allra handa uppákomum heima sem heiman.
Njótið kæru vinir mínir og ekkert stress. Ég ætla alla vega ekki að halda jólin í skápum eða geymslunni svo allt þrifnaðaræði verður látið bíða fram á vorið.
Njóta bara og njóta hverrar mínútu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
27.11.2009 | 10:13
Jólamarkaðurinn hér í Prag
Hér gefur að líta mynd frá jólamarkaðinum í Prag, Tékklandi. Jólatréð sem glitrar þarna spilar jólalög og hringir klukkum á heila tímanum.
Ég las frétt frá Þýskalandi um daginn þar sem greint var frá að kona hefði orðið undir jólatré í stórmarkaði í Þýskalandi. Fyrir um þremur árum gerðist það hér að þrír urðu undir samskonar tré og sést hér á myndinni. Einn lét lífið og hinir tveir slösuðust verulega. Ástæðan fyrir því að tréð féll var að þeir höfðu ekki strengt það nógu vel á milli húsa. Líka það að þeir gerðu ekki ráð fyrir vindhviðum á þessum árstíma. Það blaktir venjulega aldrei hár á höfði hér vetrarmánuðina.
Best að taka engan séns hér. Standa bara álengdar og horfa í andagt.
Á sunnudaginn verður jólamarkaðurinn opnaður með tilheyrandi hátíðahaldi. Annars finnst mér Kristkind - markt í Nürnberg sá allra besti sem ég hef séð hér á meginlandinu. Að vera viðstödd opnunina þar er stórkostlegt.
Þetta var bara svona hugleiðsla um jólamarkaðinn.
Farin að skrifa jólakveðjur til vina og vandamanna.
Helstu jólamarkaðir í Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.11.2009 | 10:24
Fundum síðasta kalkúninn í Prag og þökkum fyrir það!
Nú er það Þakkagjörðadagurinn. Mér finnst það svo sem allt í lagi að þakka fyrir mig og mína almennilega einu sinni á ári.
Annars er ég sí og æ að þakka almættinu en gott að fá tækifæri til að bjóða fjölskyldunni í stórveislu og þakka þeim prívat og persónulega fyrir að vera til og hafa gert svo lítið að velja mig sem foreldri. Hugsið ykkur bara eins og þau höfðu úr mörgum góðum að velja................
Í gær fengum við upphringingu frá frumburðinum og hann fór svona í kring um hlutina eins og honum einum er lagið og spurði hvort ekki ætti að halda upp á Thanksgiving. Þessir krakkar eru orðin allt of eitthvað úttlensk. Halló-vín, Thanksgiving, Dagur hinna látnu og ég veit ekki hvað og hvað.
Auðvitað var rokið upp til handa og fóta til þess að finna síðasta Móikanann ég meina síðasta Kalkúninn í Prag. Dísús þeir vaxa sko ekki á trjánum daginn fyrir þakkagjörðahátíðina. En í morgun tókst okkur að krækja í þann síðasta og hann skal nú steikjast og snúa á sunnudaginn. Nenni ekki þessu í dag enda fuglinn gaddfreðinn.
Þá verð ég líka búin að hengja upp allar mínar þúsundir ljósasería úti og inni svo hér verður haldið vegleg veisla og þakkað til hægri og vinstri.
En ekki fyrr en á sunnudag, þíðir ekkert að koma hingað í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)