5.2.2010 | 16:11
5. febrúar. Fallegur dagur hér í henni Reykjavík.
Hvað er með þessar gæsir sem vappa hér um allar jarðir. Elta okkur jafnvel hér á bílastæðinu þá sérstaklega ef við erum með matarskjatta meðferðis. Aldrei verið hrifin af gæsum, þátt fyrir að ég sé mjög elsk af fuglum.
Það er efni hér í stórveislu ef einhver hefur áhuga, en sjálfsagt má nú ekki lóga þessu fiðurfé.
Þegar ég stóð frá henni Eir minni í hádeginu þakkaði ég pent og sagði henni að nú fengjum við frí yfir helgina og ég væri farin á djammið. Stelpunum á deildinni fannst þetta alveg tilvalið og hvöttu mig óspart til þess að eiga skemmtilega helgi sem ég ætla jú líka að gera.
Hann faðir minn hefði átt afmæli í dag, orðið 91 árs ef hann hefði lifað. Ég fann fyrir honum með mér í dag og var það góð tilfinning. Við, ég og minn elskulegi skelltum okkur í blómabúð og keyptum nokkur grös sem við færðum móður minni.
Djamið er nú e.t.v. aðeins og stórt tekið upp í sig en ég ætla alla vega að njóta góða veðursins og reyna að gera eitthvað uppbyggjandi.
Góða og skemmtilega helgi kæru vinir og vandamenn.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Gæsir eru ekki góðar á þessum árstíma, en skil nú ekki hvað þær eru að álpast í miðri Reykjavík.
Hann Pabbi þinn er örugglega að hjálpa litlu stelpunni sinni og er það vel.
Yndislega helgi til ykkar hjóna
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.2.2010 kl. 17:10
Takk Milla mín. Já hann er hér núna elsku kallinn. Það fór aldrei mikið fyrir honum en ég finn hann hér samt. Góða helgi norður.
Ía Jóhannsdóttir, 5.2.2010 kl. 17:34
Góða helgi Ía mín.
Við fáum örugglega oft fylgd á lífsins leið, erfiðu sporin göngum við áreiðanlega aldrei einar.
Ragnheiður , 5.2.2010 kl. 18:43
Góða helgi Ía mín
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 19:19
Kauptu uppáhaldsblómin þín og stilltu þeim upp í fallegum vasa. Dröslaðu svo vasanum með þér á milli herbergja og njóttu blómanna og helgarinnar.
Hrönn Sigurðardóttir, 5.2.2010 kl. 22:06
Góða helgi
Jónína Dúadóttir, 6.2.2010 kl. 07:09
njóttu
Ásdís Sigurðardóttir, 6.2.2010 kl. 18:11
Halla Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 20:47
Góðan daginn þó seint sé, held ég hafi bara komið umskiptingur af spítalanum um daginn, farin að sofa út á morgnanna.
Annars njóttu dagsins með þínu eða bara í einrúmi sem er líka gott.
Kærleikskveðjur
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.2.2010 kl. 10:11
Til hamingju með pabba þinn í fyrradag ;-)
Jóhanna Magnúsdóttir, 7.2.2010 kl. 10:37
p.s. við höldum alltaf upp á afmæli pabba, þó hann hafi dáið fyrir rúmum 40 árum og syngjum afmælissönginn við leiðið hans. Ég er viss um að hann kíkir við.
Jóhanna Magnúsdóttir, 7.2.2010 kl. 10:38
Tad er aldeilis líf (Fuglalíf)kringum tig Ía mín og gæsirnar elta tig á röndum ...
Blessud sé minning pabba tíns ,hann er örugglega ad fylgjast med tér og veita tér tá hjálp sem í hans valdi stendur .Tú hefur örugglega átt góda helgi med skemmtilegu fólki um daginn,nú er komin enn ein helgin ,vona ad tú njótir hennar einnig.
Hjartanskvedjur frá okkur í Hyggestuen kæra Ía mín .
Gudrún Hauksdótttir, 13.2.2010 kl. 07:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.