Hefði átt að bjóða í leðjuslagspartý.....

...í staðin fyrir að pirrast útí alla þessa drullu sem enn er verið að þrífa af veröndinni og sést varla högg á. Þetta hefði verið rosalegt partý, allir að velta sér uppúr drullunni og ég um leið losnað við helling af skít sem núna er verið að skófla uppí hjólbörur.  Já maður er stundum gáfaður eftir á.  

Ojæja, ætli vinir mínir hefðu mætt á svæðið, ég býst nú ekki við því og dálagleg saga til næsta bæjar,,Nú eru þau alveg búin að missa það!" hefði fólk sagt og ranghvolft augunum í hneykslan. 

 En allt tekur þetta enda og ég býst við að hreinsun verði lokið á morgun.  Ég verð bara að halda KJ á meðan og vona að við fáum ekki úrhelli í kvöld, en spáin er STORMUR og þá býð ég ekki upp á afleiðingarnar.  Þrátt fyrir að við séum búin að gera ráðstafanir þá þarf miklu meira til, því við erum búin að komast að því að öll þessi drulla kom ekki frá lóðinni okkar heldur frá akrinum hér fyrir ofan.  Nú bíðum við eftir höfðingjunum frá Sterberg til að græja þetta með okkur.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband