Móðir mín góð.....

...á afmæli í dag 83ja ára. Til hamingju með daginn mamma mín.  Mikið vildi ég vera komin heim til að knúsa þig en því miður skilja okkur að haf og lönd í dag.  Sé þig fyrir mér núna snurfusa þig fyrir daginn, lakka neglur og krulla hárið.  Gott að þú ert enn svona hress og kát.  Það megum við börnin þín þakka Guði fyrir. 

 Allir hér senda þér góðar kveðjur og vonum að þú eigir góðan dag með fjölskyldunni sem heima er. Ef til vill getur einhver lesið þessa kveðju fyrir þig í tilefni dagsins. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband