14.3.2008 | 10:31
Hafragrautur veldur símatruflun
Svona atvik eru bara til þess að lífga upp á hversdaginn og koma manni í gott skap. Þannig var að ég var að tala við tengdadóttur mína áðan í símann og við bara svona að blaðra um daginn og veginn. Á meðan á samtalinu stóð heyrði ég að hún var að smjatta á einhverju mjög gómsætu.
Allt í einu heyri ég mikla skruðninga og spliss, splass, blobb,blobb, blobb.
Ég spyr: Hæ ertu þarna?
Löng bið og ekkert heyrist nema blobb,blobb,blobb.
Ég: Halló!
Loksins heyri ég í minni og mikið pat í röddinni: Já, hæ er hérna, en ég missti símann ofan í hafragrautinn. Verð að fara að gera eitthvað í þessu sulli hér. Heyrumst.
Ósjálfráð viðbrögð mín voru þau að færa símann í flýti frá eyranu og ég horfði á tækið eins og ég byggist við því að grautargumsið kæmi vellandi út úr tólinu. Þoli nefnilega ekki hafragraut.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Matur og drykkur, Spaugilegt, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Alveg ert þú frábær Ía! mér finnst verst að tala við fólk sem borðar kex, rétt á meðan maður er að segja eitthvað mikilvægt..
Óskar Arnórsson, 14.3.2008 kl. 11:08
Maður á nú bara ekki að vera að borða neitt á meðan maður talar í síman.
En hann var góður þessi, sammála, þoli ekki mjög vel hafragraut,
þó mér þætti hann góður er ég var barn.
Knús Kveðjur Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.3.2008 kl. 11:15
Þessi var góður,
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.3.2008 kl. 16:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.