Mannfagnaðir margfaldir og ég missi af þessu öllu saman. Púhú...

Ég er að missa af hverjum stórviðburðinum þarna uppi á Hamingjulandinu! Svona er að búa erlendis og hafa svo ekki einu sinni rænu á því að kaupa sér miða heim heldur hanga hér hálfvolandi ofan í takkaborðið og vorkenna sjálfri mér þessi líka reiginar ósköp.  Nei ég er nú aðeins að ýkja en það hefði ekki verið verra að vera heima núna og mæta í fimmtugsafmælis-Brunch hjá mágkonu minni í hádeginu í dag. 

Til hamingju með daginn Bökka mín, heyrði að tónleikarnir hefðu verið dúndur flottir!!!!!

Á morgun á svo bróðursonur minn afmæli, ekki að ég hefði verið boðin í neitt unglingadúndur en hvað veit maður.  Síðan er mágur minn hann Helgi Gunn 65 ára á fimmtudaginn!  Þar með held ég að afmælisbörn mánaðarinn innan familíunnar séu upptalinn.  Þetta er enginn smá hellingur, átta stykki í sama mánuðinum!   

 Finnst ykkur ekki annars, þið sem þekkið ekki haus né sporð af þessu fólki, skemmtilegt að lesa þetta hehehe.... jú mér datt það svona í hug!!! hehehehhe.....

Annars stendur hér mikið til um helgina, segi ykkur frá því seinna.

 

   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 26.8.2008 kl. 11:32

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég ber mig vel þrátt fyrir að þekkja hvorki haus né sporð á þessu fólki.  Reikna með að þetta séu allt dúndurmanneskjur eins og síðueigandi.

Og til hamingju með slektina.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.8.2008 kl. 11:41

3 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Ía mín, til hamíngju þeð alt þetta fólk

Kristín Gunnarsdóttir, 26.8.2008 kl. 14:18

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Til hamingju með fólkið þitt  .. og þig sjálfa, auðvitað.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 26.8.2008 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband