13.2.2009 | 12:01
Stórt verkefni framundan.
Hann kom á móti mér, hröðum skrefum og studdi si g við staf. Tók þéttingsfast í höndina á mér og bauð mér inn í hvítmálað snyrtilegt herbergi og spurði hvað hann gæti gert fyrir mig. Ef ég hefði ekki vitað betur þá hefði ég haldið að ég væri stödd í miðjum Dr. House þætti. Allt hans fas minnti mig óneitanlega á Dr. House og göngulagið var það sama.
En ég vissi betur, hér var engin amerískur læknaþáttur í gangi hér stóð ég frammi fyrir bláköldum raunveruleikanu og ekkert fengi því breytt.
Stunum veit maður innra með sér að ekki er allt eins og það ætti að vera og er jafnvel búin að undirbúa sig í huganum fyrr en skellur í tönnum. Það er óneitanlega samt alltaf jafn erfitt að fá þetta beint í æð.
Minn góði ,,Dr. House" brást strax við og sendi mig áfram í viðeigandi rannsóknir og til sérfræðinga sem því miður komust að sömu niðurstöðu.
Það er stórt og mikið verkefni framundan en ég hef trú á því að við komumst í gegn um það eins og allt annað. Tökum bara einn dag í einu og vinnum eins vel og hægt er og höfum trú, von og kærleik að okkar leiðarljósi.
Það tók mig nokkra daga að komu þessu hér inn en nú er ég búin að brjóta ísinn og líður betur.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Sigrún Jónsdóttir, 13.2.2009 kl. 12:06
Auður Proppé, 13.2.2009 kl. 14:19
Gangi þér vel með verkefnið þitt
Guðrún Þorleifs, 13.2.2009 kl. 14:33
Elsku Ía mín, er eitthvað vont í gangi?? óska þér alls hins besta og bið fyrir þér og betri heilsu þér til handa. Kærleikskveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 13.2.2009 kl. 14:41
Æj knús Ía mín
Ragnheiður , 13.2.2009 kl. 14:44
Jónína Dúadóttir, 13.2.2009 kl. 16:06
Elsku besta Ía mín þú munt verða í mínum bænum og svo tökum við þetta allar með þér í jákvæðni og kærleika.
Ljós og orku sendi ég þér og þínum.
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.2.2009 kl. 20:10
Huld S. Ringsted, 13.2.2009 kl. 21:23
Jenný Anna Baldursdóttir, 14.2.2009 kl. 01:33
Elsku Ía mín.Tegar madur fær ekki gódar frettir af vinum sínum tá er eins og nátturan hjálpi manni ad ad taka á teim. Eins og einhver segji , tetta á eftir ad ganga vel.Tad er eins og madur finni tad innra med sér.
Hjartanskvedjur til tín elsku vina.Tú verdur med mér í bænum mínum.
Gudrún Hauksdótttir, 14.2.2009 kl. 06:50
Góðan daginn elskan: ,, Ef maður er glaður þá gengur allt vel."
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.2.2009 kl. 08:39
Hugs and kisses
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 14.2.2009 kl. 10:23
Ég kveiki á kerti og bið þess að verkefnið þitt fari vel
Hulla Dan, 16.2.2009 kl. 11:14
Elsku Ía mín, með þínum húmor, og þinni jákvæðni, og ást og aðstoð þinnar yndislegu fjölskyldu, muntu leysa þetta verkefni eins og hendi sé veifað.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 18.2.2009 kl. 22:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.