13.5.2009 | 19:58
Verið bara smart casual og byrjið að vinna!!!!!!!!!!
Jahá maður bara krullast allur upp eftir að lesa nýjustu fréttir frá hinu stóra Alþingi.
Þar sem þingheimur sat á skólabekk í dag og kynntust reglum pródakolsins vona ég að allir þeir nýliðar sem sátu þarna, eru það ekki yfir tuttugu manns, hafi tekið vel eftir. Þetta er auðvitað alveg nauðsynlegt í byrjun þings að kynna lög og reglur Pródakols og fara eftir þeim líka.
Sko nú tala ég grínlaust og af reynslu.
Með hálstau eður ei, elskurnar mínar okkur gæti ekki verið meir sama það eina sem við biðjum um er að þið byrjið að VINNA! Og verið bara snyrtilega til fara og farið í sturtu áður en þið mætið í vinnuna svo þið lyktið ekki af erfiði gærdagsins.
Bendi ykkur á að það er líka til eitt outfit sem heitir Smart Casual.
Annars hafa fréttir frá okkar nýja Alþingi aðeins truflað mig. Skal viðurkenna að ég hef nú ekki lesið allar frá a til z en sá í morgun hvað Jóhanna okkar stóð með sínu fólki í norðangarra og barðist gegn vindinum, var ekki fyrirsögnin einhvernvegin þannig.
Fyrirgefið hvern andsk......var hún að þvælast norður og halda fyrsta þingfund á Akureyri? Var verið að mála þingsali? Veit að það var verið að skipta um einhverja rúðu sem tók óratíma að panta, Yeh right!
Og ég segi nú bara eins og hún tengdamóðir mín sagði oft: Ja hérna, og eitthvað hefur það kostað!!!!! Ekki málningin eða rúðan heldur ferðir fyrir hersinguna norður í garrann.
Æ mér r svo sem alveg sama svo framalega sem þau hafa verið að vinna en ekki verið í einhverri sportreisu!
Svo ég haldi aðeins áfram þá setti að mér svona kjánahroll þar sem ég horfði á viðtal við einhverja Guðfríði Lilju þingkonu, held hún sé frá VG, þar sem hún sagði að þingmenn hefðu verið að læra margt gagnlegt í dag þ.á.m. að klæðast FÍNUM FÖTUM. JÁ SÆLL!!!!!! Fínum fötum. Hehehehe...
Elskurnar minar komið bara fram eins og ykkur líður best en snyrtileg svo bara þannig að þið verðið okkur ekki til háborinnar skammar en landi og þjóð til sóma.
Berið virðingu fyrir embætti ykkar og stöðu, það er það eina sem við biðjum um með eða án hálstaus.
Og bara svona til að þið krullist öll aðeins upp og fáið smá fiðring í mjóhrygginn þá finnst mér alltaf karlmenn frekar sexy með Breskan Lord klút um hálsinn. Eitthvað svo traustvekjandi.
Einhver hvíslaði því að mér um daginn að þetta væri að verða inn aftur.
Og aldrei lýgur almannarómur!
![]() |
Þingmenn læra góða siði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Ferðalög, Stjórnmál og samfélag, Vefurinn | Breytt s.d. kl. 20:00 | Facebook
Athugasemdir
Sammála þér Ía, og tek undir með þér og segi FARIÐ BARA AÐ VINNA!
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 13.5.2009 kl. 20:54
Nei það er satt hjá þér Ía mín að aldrei lýgur almannarómur , og breski hálsklúturinn er alltaf smart, en pabba mínum fannst hann frekar óþægilegur, hef ekki reynslu, enda kona

Og snakkið ykkur svo í vinnuna og vinnið fyrir laununum ykkar kæru þingmenn.
Ljós til þín elskan
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.5.2009 kl. 22:01
Úff...
Íslenskir pólitíkusar
Guðrún Þorleifs, 14.5.2009 kl. 07:41
Ég held nú að Guðfríður Lilja hafi verið að gera nett grín að mannasiðaskólanum, því hún er alltaf fallega klædd og glæsileg og kemur vel fyrir. En ég er því miður hrædd um að allt of mikill tími fari í karp um einskisverða hluti - en vonum það besta.
Knús og vorkveðjur úr sveitinni.
Halla Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 14.5.2009 kl. 11:52
Góð.
Jenný Anna Baldursdóttir, 14.5.2009 kl. 14:24
Heil & sæl mín kæra "sammála þér fari þau í þinginu að vinna NÚNA sama hvaða "lufsum" þau klæðast !NB hér er smá léttmeti um okkur "litla Íslendinga". Love Anna
Kuldaþol Íslendinga
****************
+15°C
Fólkið á Spáni notar kuldaúlpur og þykka vettlinga.
Íslendingar liggja í sólbaði.
+10°C
Frakkar reyna af vanmætti að fá kyndinguna í gang.
Íslendingar planta blómum í garðana sína.
+5°C
Bílar á Ítalíu neita að fara í gang.
Íslendingar fara að gamni sínu í bíltúr á Saab druslunni.
0°C
Eimað vatn frýs.
Vatnið í Hvítá verður aðeins þykkra.
-5°C
Fólkið í Californíu frýs næstum til dauða.
Íslendingarnir grilla í síðasta sinn áður en veturinn skellur á.
-10°C
Bretar byrja að kynda húsin sín.
Íslendingar byrja að nota langerma boli.
-20°C
Götusalar byrja að flýja frá Mallorca.
Íslendingar enda miðsumarshátíðina. Haustið er gengið í garð!
-30°C
Grikkir deyja úr kulda og hverfa af yfirborði jarðar.
Íslendingar hætta að þurrka þvott úti.
-40°C
París byrjar að gefa eftir kuldanum.
Íslendingar standa í biðröð við pylsuvagnana.
-50°C
Ísbirnirnir byrja að flykkjast burt frá Norðurpólnum.
Íslenska landhelgisgæslan frestar björgunaræfingum, í von eftir alvöru
vetrarveðri.
-60°C
Mývatn frýs.
Íslendingar leigja sér spólu og halda sig inni við.
-70°C
Jólasveinninn heldur í suðurátt.
Íslendingarnir verða pirraðir því þeir geta ekki geymt brennivínið sitt
úti. Íslenska landhelgisgæslan setur í gang björgunaræfingar.
-183°C
Örverur í mat lifa ekki af.
Íslenskar kýr kvarta yfir handköldum bændum.
-273°C
Öll atóm staðnæmast vegna kulda!
Íslendingar byrja að tala um að það sé kalt úti.
-300°C
Helvíti frýs!
Ísland vinnur Eurovision!
Anna Sig (IP-tala skráð) 14.5.2009 kl. 15:41
Sigrún Jónsdóttir, 15.5.2009 kl. 07:00
Jónína Dúadóttir, 16.5.2009 kl. 06:45
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 16.5.2009 kl. 11:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.