Færsluflokkur: Matur og drykkur

Var síst að skilja í öllu þessu fólki í kringum mig....

Þetta var farið að angra mig þvílíkt!  Gat varla þverfótað hér fyrir fólki og hljóð komu ofan úr rjáfri á nóttunni svo mér varð ekki svefnsamt. Ágerðirðist  eftir að ég fékk nýju Nespresso könnuna fyrir jól. Frown

Þökk sé Bretanum hann hefur jú alltaf verið með báða fætur niður á jörðinni.  Fæstir þeirra trúa á drauga eða hindurvitnanir svo nú á að skella skuldinni á blessað kaffið. 

Ofskynjunarlyf segja vísindamenn sem dregur drauga fram úr skúmaskotum.  Eftir því sem þú drekkur meira kaffi eftir því kætist draugsi og heldur bara veislu heima hjá þér sem þú kaffifíkillinn verður ósjálfrátt að taka þátt í.W00t

Búin að henda kaffikönnunni minni út á hlað! 

Því ekki lýgur Bretinn er það nokkuð? Whistling

 


mbl.is Segja mikla kaffidrykkju geta leitt til ofskynjana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klúður á klúður ofan á næst síðasta degi ársins 2008

Þegar maður byrjar á því að klúðra einhverju í byrjun dags þá er bara eins og enginn endi sé á ósköpunum.  Þannig er þetta búið að vera hér í dag.  Eiginlega allt sem ég hef tekið mér fyrir hendur hefur einhvern vegin klúðrast.

Fyrst Mogginn í morgun.  Af hverju má ég ekki bara nota gamla systemið heldur en þetta nýja síðuflett.  Óþolandi, sem sagt nennti ekki að lesa blaðið í morgun.

Síðan er ég aftur búin að skrá mitt rétta nafn svo ég geti nú verið með í umræðunni.  Ég byrjaði að blogga undir fullu nafni en af því að ég hef verið kölluð Ía frá fæðingu og flestir þekkja mig undir því nafni þá er það mér miklu eðlilegra.  Finnst alltaf þegar fólk gólar á mig INGIBJÖRG að ég hafi gert einhvern óskunda af mér. Svo ef einhver af vinum mínum hér vogar sér þá hreinlega brjálast ég, bara svo þið vitið það.

Hvernig haldið þið að það hafi verið öll skólaárin þegar kennarar kölluðu upp nafnið mitt og ég fékk alltaf hland fyrir hjartað.  Guð, hvað gerði ég nú af mér?  Humm.. ja ég gerði víst ýmislegt af mér í skóla svo ekki skrítið að lítla hjartað hafi tekið aukaslag. 

Þegar ég fór að taka aðeins til í ísskápnum og henda afgöngum sem enginn vildi setti ég skál með pasta, sósu og kjúlla á borðið, hugsaði um leið:  Ætti að henda þessu núna strax í ruslið.  Mikið vildi ég að ég hlustaði einhvern tíma á minn innri mann, sko í alvöru.  Ég veit yfirleitt fyrir þegar óhöppin gerast.  Eftir tíu mínútur var skálin enn á borðinu og ég slengdi einhverju úldnu gænmeti í poka auðvitað beint í skálina og gumsið þeyttist út um allt eldhús.

Ég setti hangikjötið yfir, það er ekki hægt að klúðra suðu á hangikjöti svo það reddaðist.  Hér borðum við alltaf flatkökur með hangikjöti með kampavíninu klukkan 12 á gamlárskvöld.

Þá tók ég til við að gera Grand ostaköku sem mér finnst líka ómissandi.  Viti menn mig hafði misminnt ostamagnið svo þarna stóð ég aðeins með helming af rjómaosti svo ég bara reyndi að minnka allt draslið um helming.  Veit ekkert hvernig hún verður á morgun, kemur í ljós.

Þá var það laxapaté með kavíar. ´Hafði keypt 300 gr af reyktum laxi en þegar ég var búin að roðfletta þá voru þetta ekki nema 175 gr.  Dísús hvað ég var orðin pirruð og svo hafði ég auðvitað gleymt að kaupa kavíar.  Ég drullaði einhverju saman, ætli þetta fari ekki beint í ruslið á morgun.  Sjáum til.

Á meðan ég var að bardúsa þetta þá hafði ég það af að hella úr tveimur fullum kaffibollum og stóru glasi af kók út um allt eldhús á innan við klukkutíma, geri aðrir betur!

Það besta við allt þetta er að ég var eiginlega að laga þessa bévítans ostaköku og paté fyrir mig sjálfa, held að heimilisfólkinu finnist þetta ekkert spes.

Farin með Árna Þórarins í rúmið.  Hann getur ekki klikkað, eða hvað?

 


Amma é vil ullabagg a dregga.

Hér standa kræsingar út um eyrun á heimilisfólkinu ja alla vega mér!  Ef ég heyri minnst á mat næstu daga hleyp ég á fjöll! 

Í hádeginu, þökk sé þeim speking sem fann upp tartaletturnar, var troðið í þær hangikjöti og restinni af rjúpunum.  Í kvöldmat voru hér útigrillaðar stórsteikur með tilbehör! 

Rauðvínsdreitill handa okkur en sá stutti vildi ullabagg að drekka og amman skildi ekki bops.  Hélt fyrst hann meinti rauðvín en nei, hann vildi malt og appelsín.  Hef aldrei heyrt börn nefna malt og appelsín ullabagg  enda þessi strákur spes.

Ég ætla ekkert að fara að tíunda hér allt það Nóa Siríus og Lindu konfekt svo og annað gúmmelaði sem við erum búin að hesthúsa hér á þessum þremur dögum það væri til þess að æra óstöðugan.

Aðfangadagur 2008 052

 Þessi Jóli heimsótti börnin í gær alla leið frá Íslandi og þarna heldur amma á mínum sem var ekki alveg dús enda Jóli voða rámur eftir tveggja daga stúss í eldhúsinu. En eftir að allir voru búnir að syngja Jólasveinar ganga um gólf þá hýrnaði aðeins yfir þeim stutta svo fengu þau lítinn pakka frá Kertasníki.

Í kvöld þar sem við sátum í borðstofunni og röðuðum í okkur einu sinni enn, horfði sá stutti fast á hurðina í borðstofunni og sagði:  Jólaeinninn koma attur núna?

Nei, sagði amma, nú er hann farin heim í fjöllin sín.

Horft á ömmu og sagt:  Hann koma attur seinna.

Já svaraði amma seinna.

Svo var það búið mál.  Ekki meir rætt um jóseininn.

 

Þetta voru dýrðarinnar jól hér að Stjörnusteini með litlu fjölskyldunni okkar.  Allir sáttir með sitt og friður yfir okkur öllum.

Hugur minn er núna heima með fjölskyldunni minni þar sem þau eru öll samankomin systkini mín og mamma hjá Dadda bróður og Bökku mágkonu. 

 Ég sakna ykkar allra óneitanlega mikið núna dúllurnar mínar.

 

 


Borðskreyting fyrir þá sem vilja hvorki blóm eða greni. Auðveld lausn á síðustu stundu.

Ég veit fyrir víst að sumar húsmæður eru alltaf í vandræðum með borðskreytingar.

 Jólin 2008 011 Ég reyni alltaf að finna eitthvað nýtt fyrir hver jól og að þessu sinni vildi ég hvorki greni eða blóm.  Svo mér datt í hug að skella nokkrum rauðum smákúlum í háa vasa og notaði svo seríu með kristal svona til að lýsa upp borðið.  Ef vel er gáð getið þið séð hreindýrin mín sem vakið hafa mikla athygli.  Þessi hreindýr fann ég í fyrra í körfu á gólfi í einum stórmarkaði hér og keypti fyrir slikk.

Auðveld lausn á síðustu stundu.

Borgin okkar skartaði sínu fegursta í kvöld og við nutum þess að ganga um götur hennar og njóta komu jólanna.  Set inn myndir frá Prag á morgun.

Húsverðirnir að Stjörnusteini

Þessir búálfar tóku á móti okkur þegar heim kom.

Góðar stundir gott fólk.


Nú kætumst við á Þorláksmessu

Jæja þá er Skötudagurinn runninn upp ekki það ég borði þennan fisk og aldrei leyft að elda í mínum húsum.  Stundum getur maður haft ítök í sínu eigin eldhúsi. 

Jólakveðjur hljóma hér frá gömlu góðu gufunni og alveg ekta Þorláksmessustemmning hér að Stjörnusteini. 

Þegar ég vaknaði í morgun var minn elskulegi löngu kominn á fætur og eldhúsið ilmaði af rjúpum þar sem beinin voru komin í pott en þar fá þau að malla í allan dag. Bringurnar verða síðan léttsteiktar á morgun.

Restin af heimilisfólkinu svaf enn enda sjáið þið hér þann stutta í gærkvöldi að hjálpa ömmu að skreyta jólatréð og klukkan langt gengin ellefu.

Jólin 2008 002  Maður vandaði sig alveg rosalega!

Þorláksmessa hefur alla tíð verið dálítið spes dagur hjá okkur.  Eftir vinnu sem yfirleitt var um tíu um kvöldið rönduðum við niður Laugaveginn og heimsóttum verslunareigendur sem voru okkar viðskiptavinir.  Jón og Óskar töku alltaf á móti okkur með koníaksdreitli. Yfirleitt var líka kíkt aðeins upp í Árbæ til vina okkar sem þar bjuggu.

Mig hefur sárlega vantað þessa stemmningu eftir að ég flutti hingað og gleymi aldrei einni Þorláksmessu þar sem ég randaði alein um stræti Pragborgar, á meðan minn var að vinna fyrir saltinu i grautinn, háskælandi , sko ég ekki hann.  Mikið rosalega átti ég bágt þá.

 Ég á bara eftir að laga eftirréttinn sem alltaf er Sherry fromage að hætti mömmu síðan ætlum við að skella okkur í bæinn og njóta jólaskreytinga og jólatónleika á götum borgarinnar.

Ekkert væl hér í dag!  Hangikjötið er komið í pottinn en við nörtum alltaf í hangikjöt eftir bæjarferð.

Jæja þá er að skella sér í fómasinn og svo eru bara alveg að koma jól.


Verslunarhefðir Tékka og síðast en ekki síst Let it snow!

Þessi bíður eftir snjónum sem væntanlega kemur ekki fyrr en í fyrsta lagi á annan í jólum ef veðurguðir verða svo vænir að halda spánni.

Let´s now 003  Það hefur nú oftsinnis snjóað hér á aðfangadag þó seint væri svo ekki er öll nótt úti enn.

Ég skrapp áðan í smá matvöruleiðangur, vantaði svona smotterí í poka en að sjálfsögðu kom ég heim með sex fulla poka af allskonar óþarfa.  Ekki beint spennandi að fara í matarinnkaup svona á síðustu stundu.  Í fyrsta lagi þá hefur starfsfólkið ekki við að fylla í hillurnar svo sumar eru hálf tómar.  Nei það er engin andsk... kreppa hér ef þið haldið það.

Þegar ég kom að einum af þessum 48 afgreiðslukössum sem auðvitað sumir voru ekki í gangi valdi ég einn sem aðeins 10 manns voru á undan mér og hugsaði:  OK svona 20 mín. bið. Ekkert mál.

Allt í einu voru bara fimm manns fyrir framan mig og sá ég strax hvað var í gangi.  Þau fimm sem stóðu fyrir framan mig stóðu á snakki

Þarna var saman komin hin typiska tékkneska fjölskylda.  Allir voða svona mikið saman að versla í jólamatinn.  Alveg ótrúlegt hvað tékkar eru samheldin.  Það má ekki koma hátíðisdagur eða frídagur þá hópast heilu familíurnar saman í matarinnkaup svo maður getur ekki þverfótað sig á milli hillna vegna þess að allir standa í hnapp og rökræða um verð og gæði.

Hreint út sagt óþolandi þá sérstaklega þegar maður er á hraðferð, en það er ég nú yfirleitt alltaf.

Ég mátti svo sem þakka fyrir þessa einkennilegu hefð i dag vegna þess að biðin varð mun styttri en ég hafði haldið.

Nú ætla ég að fara að laga heitt súkkulaði og gefa fólkinu mínu smá smakk af döðlubrauði með smjöri og eplaskífum.

Svo minni ég veðurfræðinga og alla veðurguði á þetta:Let´s now 004


Takk fyrir að hnippa í mig Moggamenn.

Enda sit ég hér sveitt við og hamast eins og rjúpan við staurinn að klára þetta vesen svona á milli annarra heimilisþarfa.  Það er þetta líka með nennuna, hún hefur tekið upp á þeim leiða sið að yfirgefa mig einstaka sinnum með árunum.  Annars er ég nú ekkert fyrir að skilja eftir hálfgerða hluti svo ég klára dæmið fyrir 19. des. ekki málið.

Svo af því ég er í pásu þá vil ég bara biðja ykkur um að muna eftir smáfuglunum.

Hér koma tvær hugmyndir sem auðvelt er að setja upp útivið og tekur engan tíma og þarf ekki að hugsa meir um fram á vor því eins og þið sjáið er af nógu að taka.

Jólakúla smáfuglanna

  Þetta er jólakúla smáfuglanna og þarna má líta hnetur, rúsínur og fl. góðgæti.

Eplatré smáfuglannaEplatré smáfuglanna.  Fersk epli en skerið í nokkur þeirra vegna þess að litlir goggar eiga erfitt með að komast í gegn um börkinn. 

Farin að halda áfram með jólakveðjurnar.


mbl.is Síðasti skiladagur jólapósts 19. desember
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólastemmning við Laufabrauðsbakstur.

Laufabrauð 2008 029  Hér getið þið séð lítinn hluta af laufabrauðinu sem litla fjölskyldan í Prag dundaði við seinnipart dags.

Engar erótískar kökur voru gerðar hér eins og einn af okkar vinum er þekktur fyrir enda sá maður einn af færustu listamönnum Íslands.

Uppskriftin að sjálfsögðu frá tengdamóður Egils okkar og koma kökurnar útflattar beint frá Grenivík.

Við kepptumst við að skera þær út eins vel og við gátum og sátum við fimm við útskurðinn, Egill, Bríet, ég og tvær systur Bríetar sem búa hér núna í Prag, Ingunn og Alma. 

 Litla Elma Lind fylgdist með og skemmti okkur með sínu yndislega babli og eftirhermum þess á milli sem hún skottaðist inn í stofu til að dansa með Siggu Beinteins og krökkunum í sjónvarpinu.  

Minn elskulegi sá um steikinguna að vanda og Egill stóð við að pressa.

Ég hafði aldrei komið nálægt laufabrauðsgerð fyrr en ég kynntist tengdadóttur minni og nú er það hefð hér að koma saman fyrir jól og halda í þennan gamla norðlenska sið. 

Það myndast alveg sérstök stemmning við svona dúllerí.

Takk fyrir góðan og jólalegan fjölskyldudag krakkar mínir.    

  

 


Jólagleði að Stjörnusteini.

Stjönusteinn jólin 2008Það var jólalegt hér á föstudagskvöldið þegar gestir okkar keyrðu í hlað. Jólasnjórinn kom eins og eftir pöntun og eins og einhver hafði á orði, þetta var eins og að stíga inn í fallegt jólaævintýri.

Á slaginu hálf átta runnu bílarnir hér að útidyrunum hver á eftir öðrum eins og lög gera ráð fyrir.  Hvað ég kann að meta þessa diplómatísku stundvísi.  Engin hætta á að steikin brenni í ofninum eða súpan sjóði upp úr.

Íslenska kreppan var afgreidd yfir fordrykknum og gaf sendiherrann okkar öllum smá yfirlit yfir allt okkar ófremdarástand.  Snyrtilega afgreitt Sveinn Björnsson, takk fyrir það.

Minn elskulegi stóð sig eins og honum einum er lagið í eldhúsinu og framreiddi hvern eðalréttinn á fætur öðrum.  Hangikjötstartar sem við renndum niður með Svarta dauða.  Humarsúpu með mango, önd sem allir stóðu á öndinni yfir og í lokin ferskum ávöxtum með kampavínssósu.  

 Knús á þig kallinn minn.  Held bara að þér fari fram með hverju árinu.

Möndlugjöfina fékk danski sendiherrann.  Flunkunýja Skoda Oktaviu.  Nei ekki í fullri stærð bjánarnir ykkar, bara svona mini bíl.

Þessi árlegu jólaboð okkar hafa nú alla tíð þótt dálítið spes enda nenni ég ekki að halda stíf og leiðinleg boð þar sem allir sitja með hátíðarsvip og halda uppi einhverskonar gervi samræðum.

Í ár vorum við frá sex þjóðlöndum og sumir gesta okkar hér í fyrsta skipti.  Eftir aðalréttinn sló ég í glas og sagði að nú væri komið að því að tekið yrði lagið.  Ég hef það fyrir sið að láta einn frá hverri þjóð syngja fyrir hópinn jólalag frá sínu heimalandi. Þetta vekur alltaf mikla kátínu og í ár voru lögin frá Baltik löndunum dálítið framandleg og fyndin.

Ég tók í ár Göngum við í kring um einiberja runn, það er að segja þau vers sem ég mundi eftir og lék allan pakkann fyrir hópinn.  Skúraði, þvoði þvott og gekk kirkjugólf með miklum tilþrifum.

  Fékk bjartsýnisverðlaunin í ár!

 

 

 

  

 

 


Fallegur vetrarmorgun að Stjörnusteini.

Hrímið á trjánum glitrar hér í vetrarsólinni þennan fallega morgun. 

 Ég fór út snemma með hnetur og epli handa smáfuglunum mínum sem sækja hingað í fóður þegar kólna tekur og erfitt er að finna sér fæðu í skóginum. 

Dagurinn í dag er líka merkilegur fyrir það að tengdadóttir okkar hún Bríet á afmæli.  Innilega til hamingju með daginn Bríet mín.  Kíki við hjá þér á eftir. Wizard

Það var enn smá keimur eftir smákökubaksturinn í gær hér í húsinu þegar ég kom niður til að fá mér morgunsopann minn. Ég bakaði engin vandræði þetta árið, ja alla vega ekki enn. Whistling

 Þá fara jólin að nálgast og ,,jólaboðavikan" framundan.  Hér keppast margir um að bjóða heim vinum í smá gleðskap og við tökum því nú orðið eins og hluta af undirbúning jólanna.  Veit sem sagt að ég geri ekki mikið meir en að mæta og halda sjálf boð þessa viku.

Eigið góðan dag og munið eftir smáfuglunum.   

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband