24.3.2008 | 15:36
Hrollvekjuhjólhýsi
Jamm ég skal segja ykkur það. Að hafa glottandi hauskúpu sem stáss í hjólhýsinu sínu er bara alveg magnað.
Gæti verið að eigendur hafi sofið vel þarna?
Ætli afturgangan hafi haft eitthvað með það að gera að hjólhýsið fauk út í veður og vind? Bráðfindin frétt svona í lok páska.
Hauskúpan var meðal húsmuna í hjólhýsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Spaugilegt | Facebook
Athugasemdir
ha hahhaah
maður myndi koma sér heim fyrir myrkur eftir matarboð hjá svona fólki
Marta B Helgadóttir, 24.3.2008 kl. 15:43
Þarna er eitthvað gruggugt á ferðinni, grafarræningi eða ........ ? Enn að reyna að halda því fram að hann hafi haldið að þetta væri hauskúpa af dýri, það toppar allt sem heitir ósvífni.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 24.3.2008 kl. 16:55
Lesa fréttina gott fólk, þetta var bara hluti úr hauskúpu.
argur, 24.3.2008 kl. 17:32
argur alveg sama hvort þetta var hluti úr höfuðkúpu eður ei, jafn klikkað að hafa þetta sem stofustáss
Ía Jóhannsdóttir, 24.3.2008 kl. 19:47
Mér myndi bregða alla vega!!
Óskar Arnórsson, 24.3.2008 kl. 20:54
Ég bara skil ekki hvernig er verið að reyna að blása þessa frétt af. Stofustáss eða ekki... hálf hauskúpa eða ekki.. Þetta er hauskúpa af manneskju. Þeir láta allt í einu eins og það sé ekki big deal. Ég vil fá að vita hvernig þessi hauskúpa lenti þar sem hún lenti.
Jóna Á. Gísladóttir, 25.3.2008 kl. 11:47
ég verð víst að éta þetta ofan í mig. Var að lesa frétt á RUV þar sem þeir segja að þetta verði allt rannsakað ofan í kjölinn. Líkur eru á að hauskúpan sé frá útlöndum.
Jóna Á. Gísladóttir, 25.3.2008 kl. 11:51
Heheh skemmtileg að ferðast með þetta í farteskinu ef það er málið.
Ía Jóhannsdóttir, 25.3.2008 kl. 12:24
"Lík í farangrinum" var það ekki titill á bók eftir Hemingway? - En samt þetta er, hauskúpa af barni eða konu sem hefur verið krufið. - af mannveru sem dó, fyrir svona 10 til 30 árum síðan. - Íslenskt eða erlent, skiptir ekki máli, þetta er jafn skrítið fyrir það.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 26.3.2008 kl. 02:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.