30.11.2008 | 19:05
Spádómskertið tendrað og ljósadýrð um allan heim.
Í dag hefur svipuð stemmning verið á öllum torgum stórborga heims þar sem ljós hafa verið tendruð á risatrjám með viðeigandi athöfn. Prag er þar engin undantekning og hófust hátíðahöldin á Gamla torginu klukkan fimm í dag og standa örugglega enn.
Það er alltaf hátíðlegt að vera viðstödd opnum jólamarkaðar hér og það er ekki bara tréð sem fólk dáist að heldur ótal aðrar skreytingar sem gleðja augað.
Ekkert varð úr þessari bæjarför okkar því fótboltabullur Breta áttu hug og hjarta míns elskulega í allan dag. Ég var svo sem ekkert að þrasa yfir þessari ,,sófalegu" því ég hafði í nógu að snúast við að skreyta hér innan húss. Fer bara seinna í vikunni til að taka út herlegheitin.
Ekki það að ég hafi heldur haft mikið fyrir því að trítla niður á Austurvöll með ungviðið í gamla daga, ja e.t.v. tvisvar eða þrisvar gerðum við það þó Ekki alveg ga ga foreldrar.
Nú ætla ég upp og kveikja á Spádómskertinu en svo nefnist kerti fyrsta í aðventu njóta það sem eftir er kvöldsins i friði og ró.
Lofaði að setja inn myndir og nú koma þær smátt og smátt.
Ljósin kveikt á Óslóartrénu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Menning og listir, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:14 | Facebook
Athugasemdir
Hér var svo leiðinlegt veður.. að við vorum bara heima.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.11.2008 kl. 19:24
Með hvaða liðið heldur húsbandið ?? ég er Arsenallari svo ég er mikið kát. Boltakveðjur til Prag
Ásdís Sigurðardóttir, 30.11.2008 kl. 19:29
Gunnar hér er blíðskaparveður en kalt.
Ásdís almáttugur minn það veit ég ekki, verð að spyrja hann þegar hann kemst til meðvitundar frá þessum andsk. bolta.
Ía Jóhannsdóttir, 30.11.2008 kl. 19:33
Notalegt með ljós í myrkrinu, úti og inni
Guðrún Þorleifs, 30.11.2008 kl. 20:03
Jónína Dúadóttir, 30.11.2008 kl. 20:35
Ofsalega fallegir litirnir. Þessi hvíti lítur út fyrir að vera silfraður.
Jenný Anna Baldursdóttir, 30.11.2008 kl. 21:43
Flott er "jólatorgið" þitt Ía mín, hlakka til að sjá fleiri myndir
Sigrún Jónsdóttir, 1.12.2008 kl. 00:25
Takk fyrir að deila þessu með okkur hlakka til að sjá fleiri myndir
Anna Ragna Alexandersdóttir, 1.12.2008 kl. 12:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.