31.12.2008 | 11:26
Senn kveðjum við árið 2008
Hér næða engir vindar. Það er froststilla og sólin skín hér á milli trjátoppa. Síðasti dagur ársins ætlar að kveðja með því að skarta sínu fegursta vetrarveðri hér að Stjörnusteini.
Við tölum um að nú fari daginn að styttast um hænufet. Árið 2008 fannst mér nú ekki fara hænufetin. Leið allt of hratt að okkar mati. Sjálfsagt er þetta aldurinn sem farinn er að segja til sín.
Árið hefur verið okkur gott og gjöfult og margs að minnast og þakka fyrir.
Þessi áramót verða sjálfsagt aðeins öðru vísi en undanfarin ár þar sem við höfum alltaf haldið áramótin niðri í borginni meðal fjölda vina og stundum ættingja en nú verðum við aðeins fimm hér í sveitinni. Egill og Bríet koma síðan á morgun og gleðjast með okkur. Þannig að við ákváðum að kveikja ekki í brennunni fyrr en þá svo allir geti notið.
Á tímamótum verð ég alltaf dálítið meir og vatna músum yfirleitt um tólf þegar við syngjum saman Nú árið er liðið í aldanna skaut. Það er eins og ég eigi alltaf jafn erfitt með að skilja við gamla árið. Hef nú samt aðeins lagast með árunum sem betur fer. Kallar maður það ekki að þroskast frá hlutunum. Held það bara dúllurnar mínar.
ÁRAMÓT
Senn kveðjum við árið og höldum á framandi haf
hins hverfula rúms og tíma.
En gætum þess fengs er forsjónin okkur gaf
uns fellur hin hinsta gríma.
Og árin þau hverfa eitt og eitt og aldirnar renna sitt skeið
en minningar lifa og saga er sögð af samfelldum ættarmeið.
Hvert mannslíf er hlekkur í mannfélagskeðju
þar megnum við lítls sérhvert.
Af örlögum hent í allskyns hrúg eða beðju
og enginn fær við því gert.
Við vitum ei gjörla hvar markað er spor eða bás
í margslungnu flakki í tímans eilífu rás.
En þrátt fyrir óvissu um allt sem er hulið sýn
og enginn getur veitt við spurnum svör.
Þá er og verður óhögguð vissa mín
að áfram sé mörkuð leið og ákvörðuð för
því færi ég þökk fyrir samveru síðustu ár
samferðafólki nýjárssól skíni klár.
S.A.S.
Sendum ykkur öllum bestu óskir um gæfuríkt komandi ár héðan frá Stjörnusteini.
Megi nýja árið færa ykkur allt það besta sem völ er á.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Vefurinn, Vinir og fjölskylda, Ljóð | Breytt s.d. kl. 14:46 | Facebook
Athugasemdir
Kærar kveðjur til ykkar.
Þröstur Unnar, 31.12.2008 kl. 11:31
Knús og kossar til ykkar á Stjörnu steini Gleðilegt ár og takk fyrir ánægjuleg samskipti á liðnu ári
Sigrún Jónsdóttir, 31.12.2008 kl. 11:57
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir góð "kynni" á árinu sem er að líða
Jónína Dúadóttir, 31.12.2008 kl. 12:25
Kæri bloggvinur, ég óska þér gleðilegs nýs árs og þakka fyrir skemmtileg kynni á árinu megi nýja árið færa þér hamingju og gleði. Kær kveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 31.12.2008 kl. 18:13
Gledilegt ár bloggvinkona mín.
àramóta kvedja frá Jyderup
Gudrún Hauksdótttir, 31.12.2008 kl. 19:34
Gleåilegt ár Ía mín og takk fyrir skemtilegar bloggfærslur á árinu
Kristín Gunnarsdóttir, 1.1.2009 kl. 16:00
Gleðilegt ár,takk fyrir skemmtileg kynni Ía
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 1.1.2009 kl. 17:17
Elsku Ía mín. Gleðilegt ár og takk fyrir dásamlega pistla á því síðasta. Hlakka til að lesa hjá þér á þessu ári
Hulla Dan, 1.1.2009 kl. 17:29
Aðeins sein en gleðilegt ár og takk fyrir skemmtileg samskipti á blogginu mín kæra.
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.1.2009 kl. 16:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.