Gleðilega hátíð

Gleðilega páska

Vorið 2009 016

 

Þegar vorar fjörgast flest

fæst vart stund til náða

í hug mér ómar heima er best

og hvetur mig til dáða.

Bestu kveðjur til ykkar allra héðan frá Stjörnusteini.

Njótið dagsins við störf og leik hvar sem þið eruð stödd í heiminum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Sömuleiðis mín kæra, hafðu það sem allra best

Jónína Dúadóttir, 12.4.2009 kl. 08:18

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Gleðilega páska Ía mín og hafðu það gott

Sigrún Jónsdóttir, 12.4.2009 kl. 10:39

3 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Gleðilega páska kæra bloggvinkona, njóttu hátíðanna.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 12.4.2009 kl. 12:57

4 Smámynd: Ragnheiður

Fann þetta en enga páskapúddu...gleðilega páska

Ragnheiður , 12.4.2009 kl. 13:28

5 identicon

Myndin af eggjunum er falleg. Hér sit ég og er að fara á límingunum örverpið mitt er í fæðingu i Söderborg. Ég vildi að ég gæti gert þetta fyrir hana. Svei mér ef ég hef ekki fundið fyrir útvíkkunarverkum og allan pakkann. Hann kemur vonandi fyrir kl 8 í kvöld litla sílið.Hafðu það gott kæra Ía

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 17:42

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Gleðilega páska elskulega bloggvinkona ! Ég er komin að norðan, og er að fara út til Finnlands með "Falið fylgi", það verður spennandi. - Gott að heyra að allt gangi vel hjá þér, hlakka alltaf til að lesa pistlana þína.  Hjartans kveðjur til þín og þinna.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 13.4.2009 kl. 21:00

7 identicon

Sæl Ía,, eftir að ekkert hefur birtst í gestabókinni  ? prófa ég hér..

Og skila góðri kveðju frá mömmu og pabba, því gömlu kunna ekkert á svona blogg síður, gangi þér allt í haginn !! við vitum að þú ferð létt með þetta Vesen !!

Kv, Óli Már, sonur Kollu og Gulla.

Kolla og Gulli (IP-tala skráð) 13.4.2009 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband