1.9.2009 | 11:10
Svona er lífið.
Ég er sjálfsagt alls ekki ein um það að finnast tíminn líða eins og örskot fyrir sólu. Allt það sem ég ætlaði að framkvæma í gær liggur bara á hakanum og bíður betri tíma.
Hér eyddi ég megninu af deginum í gær og lét mig dreyma, las í bók og hugsaði.
Nei svo sem ekki amalegt skot.
Á föstudagskvöld fengum við góða gesti og héldum lítið kveðjusamsæti fyrir norska vini okkar, svona knus og kram party með tilheyrandi tárum og snýtuklútum.
Ég bjó til borðskreytingu með haustívafi, ekki svo galið hjá minni.
Ávextir eru notaðir í allt á þessu heimili þessa dagana, líka til skrauts
Hér sjáið þið ef vel er skoðað kryddjurtirnar mínar sem eru ómissandi líka þessa dagana.
Neip sjást ekkert vel. Jæja skítt með það.
Þessi stóð fyrir því að fæða liðið með stórsteikum og öðru gómsætu gumsi.
Hann hefur aldrei neitt fyrir þessu minn elskulegi, galdrar jafnvel blindandi alltaf eitthvað fínerí.
Já svona var nú umhorfs hjá okkur hér á veröndinni í góðum félagskap á síðsumarskvöldi.
Séð yfir hálfa veröndina að Stjörnusteini
Takið eftir Erró sem liggur þarna fram á lappir sér og bíður eftir því að kampavínið flæði. Orðinn hrikalega þreyttur á því að bíða.
Datt bara svona í hug að setja þetta inn til minningar.
Farin út í skotið mitt með bókina mína.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Dásamlegt og ást og kærleikur í hverri hugsun og handbragði.Kærleikskveðjur.
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 11:16
Mikið er þetta fallegt hjá þér elsku Ía & allt um kring hjá ykkur "turtildúfum" NJÓTIÐ njótiðtíminn er líka á flegiferð hér, gæti verið að "hægjarinn" sé batteríslaus.....ég á rafhlöður en finn ekki tímahægjarann. Hvar ætli það tól sé ? love Anna Sig
Anna Sig (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 14:42
Ó jeminn, svo fallegt og yndislegt hjá ykkur
Halla Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 17:19
Frábærar myndir
Hrönn Sigurðardóttir, 1.9.2009 kl. 18:37
Hlýlegt og fallegt kærleiks, ber eigendum sínum góðan þokka.
Jenný Stefanía Jensdóttir, 1.9.2009 kl. 21:57
Yndislegt...fallegt og fágað
Sigrún Jónsdóttir, 1.9.2009 kl. 22:22
Yndisfagurt og hlýtt elsku Ía mín, lestur, hugsanir og draumar eru það besta sem til er. Erró er örugglega í sjálfsvorkunn
Kærleik til þín elskuleg
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.9.2009 kl. 07:06
Fallegt og smekklegt hjá ykkur
Jónína Dúadóttir, 2.9.2009 kl. 07:59
Innlitskvitt og góðar kveðjur til þín í notalegheitin. Fallegar haustskreytingarnar þínar.
Kær kveðja frá Als
Guðrún Þorleifs, 2.9.2009 kl. 11:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.