Jóhanna hósanna, Hanna Hanna hó sanna hó sanna Jóhanna.

Þrátt fyrir að allt snúist í höfðinu á mér þessa daga þá er ég að reyna að fylgjast með því sem er í gangi þarna heima og núna áðan vorum við að fylgjast hér með Spaugstofunni sem hefur ekki fallið mér í geð undanfarin ár en asskoti hafi það, þeir voru snjallir í byrjun og enduðu vel strákaskammirnar.

 Takk fyrir að strákar að létta mér lundina og koma út smá hlátri.  Það þarf stundum svo agnarlítið til að gleðja sálartetrið.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Æ ég gleymi alltaf spaugstofunni!

Huld S. Ringsted, 31.1.2009 kl. 20:55

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Huld mín þú missir svo sem ekki af miklu

Ía Jóhannsdóttir, 31.1.2009 kl. 21:07

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Veistu ég horfi aldrei á þá kannski skömm að því, en hef bara ekki gaman að þeim.
Ekki er ég nú hissa á því þó alt hringsnúist í þínum flotta haus elskan, hér er maður komin með heilahristing.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.1.2009 kl. 21:11

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég missti af þeim af því ég var að vinna, en ég get séð þá á netinu... ef ég nenni

Jónína Dúadóttir, 31.1.2009 kl. 22:21

5 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Góðir í kvöld eins og oft áður !

Hulda Margrét Traustadóttir, 31.1.2009 kl. 22:30

6 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Ég dáist af teim spaugstofumönnum fyrir dugnadinn og eljuna ad fylgjast med og ganga alla leid í gríninu.Alltaf gódir.

Hjartanskvedja til tín Ía mín.

Gudrún Hauksdótttir, 31.1.2009 kl. 22:53

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Fylgdist með og fannst þeir hitta beint í mark með hósanna, Jóhanna .. o.s.frv...hehe  

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 31.1.2009 kl. 23:13

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hlæ sjandan af þeim núorðið.  Þeir eiga þó spretti.

Jóhönnulagið var alveg brossins virði (út í annað sko).

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.2.2009 kl. 17:23

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þeir voru góður í þessum þætti.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.2.2009 kl. 22:56

10 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Var að vinna en veit að þeir hafa úr miklu að moða.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 6.2.2009 kl. 11:19

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Missti af spaugstofunni kær kveðja :)

Kristín Katla Árnadóttir, 7.2.2009 kl. 22:45

12 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ía mín, hvar ert þú, hvar ert þú, hér er ég.
ER ekki allt í sómanum ég sakna þín
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.2.2009 kl. 17:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband