Legg hausinn í bleyti og hugsa..................

 

Það er eins og veturinn hafa gleymt að koma hingað.  Allt er fagurgrænt og jafnvel ein og ein rós enn í blóma.  Hitastigið er um 13° og sólin vermir hér grundir og móa.  

Ég er komin aftur í skotið mitt og gott að vera komin heim eftir langa útivist. 

Það var líka einn sem grét í okkur langt fram eftir kvöldi og svaf alla nóttina uppi við svefnherbergisdyrnar til að passa að við hreyfðum okkur ekki fyrr en um fótaferðatíma.  Svo sem engin hætta á því gott fannst okkur að kúra aftur í gömlu holunni okkar.

Það fer víst ekkert á milli mála að nú nálgast jólin.  Hér eins og annars staðar er byrjað að skreyta og nú verðum við að láta hendur standa fram úr ermum og klæða húsið í jólabúning fyrir næstu helgi. 

En vegna þess hversu veðrið er gott ætla ég að fá mér langan göngutúr og leggja hausinn í bleyti og plana næstu verkefni hér að Stjörnusteini. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Gott að hugsa í göngutúr og góðu veðri!

Jóhanna Magnúsdóttir, 24.11.2009 kl. 11:56

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Já J'ohanna mín.  Gott að sjá þig hér inni.

Ía Jóhannsdóttir, 24.11.2009 kl. 12:05

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æ, yndislegt að vera komin heim, njóttu blíðunnar.

Ásdís Sigurðardóttir, 24.11.2009 kl. 12:37

4 identicon

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 24.11.2009 kl. 14:24

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Heima er alltaf best... fyrir rest

Jónína Dúadóttir, 24.11.2009 kl. 17:35

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Heima er alltaf best

Hrönn Sigurðardóttir, 24.11.2009 kl. 20:33

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Yndislegt að koma heim í svona blíðu.
Knús til þín
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.11.2009 kl. 08:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband