Bíllinn sem talar mannamál, eða þannig.........

Ekkert lát er á brunakuldanum hér í Tékklandi og telja veðurfræðingar að þetta kuldakast haldist eitthvað fram í næstu viku. 

Í morgun sýndi hitamælirinn sem ég er nú farin að kalla frostmæli - 23° hér í sveitinni.  Brrr...

Það tók minn elskulega langan tíma að koma bílnum í gang þar sem hann átti erindi inn í borgina eldsnemma í morgun og þegar það loks tókst blikkuðu öll viðvörunarljós í mælaborðinu og birtist stórum stöfum og gáfuleg rödd tilkynnti: End journey now!!! eða eitthvað álíka gáfulegt.  Sko bíllinn hans talar mannamál og eins gott því annars hefði minn bara flanað út í einhverja vitleysu.

Hann lét farartækið ganga smá stund og eftir nokkrar mínútur fór að lækka rostinn í bílnum og viðvörunarljósin slokknuðu smátt og smátt og röddin kom aftur:  You can start your journey now but drive carefully!!!  Já, já alveg hreina satt.  Whistling

Annars var helgin hér róleg og mest gert nákvæmlega ekki neitt.  Í gær heimsóttum við þessa litlu dúllu sem bræðir öll hjörtu með sínu yndislega brosi.   

 

 Elma Lind

       Hvað ég geri í dag veit ég ekki enn er svona að pæla í því hér yfir þriðja kaffibollanum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Úff, en sá kuldi.  En það vorar snemma hjá ykkur, er það ekki?

Sigrún Jónsdóttir, 12.1.2009 kl. 11:00

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Hryllingskuldi er þetta hjá ykkur og gáfulegur bíll

Ég er búin að vera að spá í og er enn að spá í að fara í ræktina

Verði þér kaffið að góðu

Guðrún Þorleifs, 12.1.2009 kl. 11:45

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Mestur munurinn verður er þeir geta bara ekið fyrir mann líka, en það verður nú trúlega eigi fyrr en í næsta lífi
Yndisleg litla snúllan ykkar.
Ljós úr kuldanum á Húsavík.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.1.2009 kl. 12:35

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Brrrrrrrrrrr mér finnst alveg nógu kalt hér í borg skelfingar.

En þetta er algjör dúlla á myndinni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.1.2009 kl. 14:12

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Úff svona kuldi væri ekki fyrir mig, finnst alveg nógu kalt hér norðan heiða Sæt lítil dama þarna á myndinni

Huld S. Ringsted, 12.1.2009 kl. 19:31

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Fallegt lítið barnKlæddu þig vel

Jónína Dúadóttir, 12.1.2009 kl. 21:17

7 Smámynd: Hulla Dan

ertu ekki að grínas? -23° það er bara ómannlegt!

Knús til þín.

Hulla Dan, 13.1.2009 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband