9.9.2008 | 08:27
Fréttir frá Listasetrinu Leifsbúð, Tékklandi
Listamaðurinn Örn Þorsteinsson
Í fyrradag lifnaði aftur yfir Listasetrinu okkar þegar þau hjónin Örn Þorsteinsson, listamaður og María kona hans runnu hér í hlað í ljósaskiptunum, en þau dvelja hér næstu sex vikurnar. Mig var farið að lengja eftir því að sjá ljós í gluggum setursins á kvöldin þar sem vika er nú liðin síðan síðasti ábúandi fór héðan frá okkur.
Við bjóðum þau hjón velkomin hingað og vonum að dvölin verði þeim til gagns og gamans.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
8.9.2008 | 10:36
Mannaþefur í helli mínum
Aumingja skessan, hvað er líka verið að þvæla henni á milli eyja og lands.
Hún er sjálfsagt mjög ósátt við allt þetta brambolt.
Nú verður bara að kalla Siggu litlu til hjálpar. Þær eru vinkonur og hún er sú eina sem getur tjónkað við kerlu.
Annars held ég að skessan hafi ekkert með þessar truflanir að gera heldur hafi annar/önnur verið fyrir í hellinum eða mjög nálægt og hann eða hún sættir sig ekki við þennan ágang á sínu yfirráðasvæði.
Það hefur jú alltaf verið talið mjög reimt á Suðurnesjunum.
![]() |
Er skessunni illa við fjölmiðla? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
5.9.2008 | 21:58
Má ég þá heldur biðja um Jóhannes Arason, Jón Múla og Ragnheiði Ástu
Sátum hér undir stjörnubjörtum himni og borðuðum kvöldmatinn. Ósköp notalegt, bara við tvö. Þá dettur mínum elskulega í hug að tengja tölvuna við græjurnar og hlusta á fréttirnar frá RÚV. Við erum með hátalara tengda hér út á veröndina svo sex fréttir bárust hér frá ljósvakanum eins og ekkert væri sjálfsagðra.
Á meðan við gæddum okkur á grillsteikinni og nutum þess að sötra á rauðvíni frá Toscana hlustuðum við á fréttafólk flytja okkur fréttir að heiman. Voða svona heimilislegt.
Helst í fréttum: Þjóðin skuldar þetta marga milljarða, bankarnir þetta mikið o.sv.frv. Ég stein hélt kjafti á meðan á þessari upptalningu stóð. Síðan kom, kona lamin í höfuðið til óbóta, liggur á gjörgæslu. Þarf ég að halda áfram, held ekki.
En það sem vakti athygli mína var fréttaflutningurinn. Það var eins og allir fréttaþulir væru í kappræðu, að lýsa sinni eigin skoðun fyrir okkur almenningi. Ekki tók nú betra við þegar eitthvað sem heitir Spegillinn, að ég held, kom á eftir fréttum. Þar fóru menn hamförum í lestrinum mér fannst ég vera stödd í sal þar sem ræðumaður vildi láta í sér heyra og nú skuluð þið aumingjarnir hlusta á hvað ég er að segja ykkur. Þetta var næstum óþolandi að hlusta á. Einungis þegar þeir höfðu viðtöl urðu þeir manneskjulegir, annars var eins og þeir væru að flytja framboðsræðu eða tala á málþingi.
Ég hélt nú að fréttamenn ættu að vera ópólitískir í sínum fréttaflutningi og flytja okkur fréttir á passívan hátt, en hamagangurinn og lætin í kvöldfréttum RÚV í kvöld var alveg með ólíkindum.
Þegar leið á fréttirnar gat ég ekki orða bundist og sagði við minn elskulega: Veistu, það er eitthvað mikið að í þessu þjóðfélagi, heyrir´ðu flutninginn þau eru öll svo hátt stemmd að það er virkilega pirrandi að hlusta á þetta. Hann játti því og fór og lækkaði í tækinu.
Við ræddum síðan um okkar góðu hæglátu, vitru fréttamenn sem höfðu rödd sem seytlaði inn í landsmenn í áraraðir. Jón Múla Árnason, Jóhannes Arason og Ragnheiði Ástu Pétursdóttur.
Þau voru aldrei með nein læti, lásu fréttirnar á hlutlausan hátt og allir hlustuðu á þau með andakt.
Ef til vill erum við bara orðin gömul og aftur á kúnni en andskotinn þetta er ekki fréttaflutningur þetta líkist meir áróðri að mínu mati.
Það skal tekið fram hér að ég hef ekki hlustað á íslenskar fréttir í útvarpi í nokkur ár.
Ég gat bara ekki orða bundist.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
5.9.2008 | 13:15
Baráttukveðjur yfir hafið og smá broslegt í lokin
Það er ekki seinna vænna að senda ljósunum okkar baráttukveðjur með einlægum óskum um að það rætist úr þeirra málum ekki seinna en STRAX!
Ég man hvað ég var þakklát fyrir heimsóknir minna ljósa eftir að ég kom heim af fæðingarheimilinu. Veit eiginlega ekki hvernig ég hefði farið að ef þeirra hefði ekki notið við.
Þessar ljósur mínar voru starfandi þá í Fossvoginum á árunum 1974 og 1977.
Og alltaf sömu elskulegheitin þegar þær kvöddu mig með þessum orðum: Og hringdu bara í mig ef þú hefur einhverjar spurningar. Þetta var ómetanlegt. Þó ég muni nú ekki lengur nöfnin á þessum ágætis konum þá langar mig til að þakka þeim af alhug fyrir alla þá nærgætni og umönnun sem þær sýndu mér.
En að aðeins léttara hjali.
Við, ég og minn elskulegi sátum hér í eldhúsinu um daginn og biðum eftir soðningunni.
-Minn: Heyrðu, þú ert bara léleg!
Ég leit upp stórum augum því annað eins hafði ég aldrei heyrt úr hans munni í minn garð.
- Hvað meinar´ðu, vissi ekki alveg hvort ég ætti að reiðast og ganga út en hætti við því mig dauðlangaði að heyra af hverju ég væri svona LÉLEG.
- Jú elskan hér stendur að kona ein í Frakklandi gangi með þríbura og hún er 59 ára sem sagt jafnaldra þín sagði hann og glotti út í annað.
Ég var ekki alveg klár á því hvort ég ætti að láta fúkyrði fjúka. Hvort hann hefði viljað skipta um hlutverk, fæða börnin okkar og líka það að börnin væru jú ekki eingetin, það þyrfti tvo til og ég man nú ekki lengur hvað annað mér datt í hug að láta út úr mér en það flugu eldingar um höfuð mér smá stund.
En þegar hann sprakk úr hlátri gat ég ekki annað en brosað út í annað og sagði: Veistu þú ert ekki í lagi stundum. Þetta hefði getað endað illa skal ég segja þér og ég vara þig við að vera með einhvern karlrembuskap þegar ég er ekki í stuði til að taka því.
Mér datt að láta þetta samtal okkar hjóna flakka þegar ég heyrði að einhver vitringur á einhverri útvarpsrásinni hefði gloprað út úr sér að konur ættu bara að halda krökkunum í sér þar til verkfallið leystist.
Suma karlmenn ætti bara að stoppa upp!
![]() |
Fjölmenni á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.9.2008 | 16:18
Til hamingju með nýja embættið!
Þau í Mosfellsprestakalli og Kjalarnesprófastsdæmi verða ekki svikin að fá Séra Ragnheiði Jónsdóttur sem sóknarprest.
Ragnheiður er öndvegis kona með hjartað á réttum stað.
Innilega til hamingju Raggý mín! Blessun fylgi þér í starfi sem leik.
Kveðjur héðan frá Stjörnusteini til þín, Sigurgeirs og fjölskyldunnar.
![]() |
Valin sóknarprestur í Mosfellsprestakalli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.9.2008 | 09:38
Þetta er í bígerð, lofa því.
Viltu koma í göngutúr var sagt við mig hér í ljóskiptunum í gær. Nei, takk var svarið frá mér um leið og ég hugsaði, ég hefði nú ekkert nema gott af því að hreyfa mig örlítið. En þar sem ég var búin að koma mér svo huggulega fyrir undir hitalampanum á veröndinni með bók var eitthvað sem hét göngutúr svo fjarri mér.
Þegar minn elskulegi með Erró á undan sér voru komnir í hvarf fyrir hornið sá ég strax eftir því að hafa ekki skellt mér með þeim og fór að pæla í því hvurslags leti þetta væri í mér og hvaða hreyfingu minn eðalskrokkur hefði fengið þann daginn. Jú ég hafði gengið þessa 100 metra niður að póstkassa og lengri leiðina heim aftur, sem sagt bak við hesthúsin, ca 3mín. ganga. Ég fylltist skelfingu, ég meina það, svo allt í einu mundi ég eftir mínum minnsta kosti 10 ferðum upp og niður stigann hér þar sem ég hafði staðið í þvottum allan daginn.
Úff, hvað ég róaðist niður, hringaði mig betur ofan í sófann, opnaði bókina með góða samvisku og hélt áfram að lesa.
Er ekki lestur góðra bóka líka gott fyrir heilasellurnar, það held ég nú bara.
Annar ætla ég að fara að vinna í þessu, mjög fljótlega.....
![]() |
Hreyfing bætir minnið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.9.2008 | 10:55
Já þeir kunna ,,trikkin
Við höfum alltaf sagt hér að ef eigendur verslana, veitingahúsa eða banka þekkja 20 aðferðir sem þeir nota þá kunna þeir 21 eða fleiri.
Eitt sinn var ég stödd á Íslandi. Ég brá mér inn í Hagkaup til að versla smotterí í poka. Þar sem ég var nýkomin til landsins var ég bæði með tékkneska og íslenska peninga í veskinu. Tékkneski þúsundkallinn lítur nær nákvæmlega eins út og sá íslenski, sami litur, sama stærð svo það er mjög auðvelt að rugla þessum seðlum saman.
Í hugsunarleysi rétti ég konunni við kassann þrjá þúsundkrónu seðla og hún tók við þeim án þess að gera neina athugasemd. Ég varð ekki vör við misskilninginn fyrr en ég kom upp á hótel og fór að taka til í veskinu. Vissi að þar ættu að vera þrír 1000 korun tékkapeningar en fann ekki nema tvo. Vissi um leið að þarna hefði átt sér stað ruglingur.
Ég fór nú ekkert að garfa í þessu enda var tapið mitt en ekki Hagkaups þar sem 1000.- tékkapeningar voru þá 3.000.- ísl. kr.
Svona var nú það.
![]() |
Starfsfólk verslana og banka beitt blekkingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.9.2008 | 10:32
Vinsælt myndefni fyrir ferðamenn!
Í fyrra var ég stödd heima upp á Hamingjulandinu og þar sem ég stóð út á svölum hjá systur minni til að fá mér frískt loft eða þið vitið... en hún býr í Þingholtunum í einu af þessum gömlu húsum sem búið er að gera upp og er eigendum til sóma, tók ég eftir því að nokkur hús, þá sérstaklega eitt var að hruni komið og gat ég ekki betur séð en fólk byggi þarna innan veggja.
Þar sem ég stóð þarna í kvöldsólinni komu hjón gangandi eftir götunni. Ég heyrði á tal þeirra og voru þarna ferðamenn á kvöldgöngu. Þau stöldruðu við af og til og horfðu á byggingarnar og bentu á sum húsin með aðdáun. Allt í einu stoppar maðurinn og fer að stilla myndavél sem hann bar um hálsinn. Hann stóð þarna lengi vel og myndaði þetta hreysi í bak og fyrir. Ég hugsaði, hvað manninum kæmi til með að velja þetta hús þar sem útskornir gluggarammar voru morknir af elli, bárujárnið ryðgað og gular gardínur hengu fyrir gluggum eins og lufsur en í gluggakistum mátti líta á mjólkurhyrnur innan um skrælnuð pottablóm.
Ég spurði systur mína hvernig stæði á því að sum af þessum gömlu húsum væru í svona slæmu ásigkomulagi og svarið var: Æ ég held að þessi hús séu leigð út og eigendunum er alveg skítsama hvort þau grotna niður eður ei.
Ég varð aftur vitni að því að hópur útlendinga notuðu þetta hús sem fyrirmynd gamalla húsa í borginni okkar. Sorglegt! Veit ekki alveg hvað fólki gengur til. Mér hefur aldrei dottið í hug að mynda öngstræti stórborga til að sýna öðrum sorann.
Vonandi taka nú eigendur gamalla húsa sig saman í andlitinu og sýna sóma sinn í því að ganga betur um eignir sínar í henni Reykjavík svo og öðrum stöðum á landinu.
![]() |
Draugahús fær andlitslyftingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
31.8.2008 | 20:42
Þeir voru hreint út sagt frábærir!!!!!
Um fimmtíu manns sóttu okkur heim í gær og hlýddu á tónleika Blásarakvintetts Reykjavíkur. Hér myndaðist svona hálfgerð stofustemmning þar sem ég hafði komið fyrir sófum og hægindastólum hingað og þangað á veröndinni og fólk lét fara vel um sig í síðsumarsólinni og naut þess að hlýða á þessa frábæru listamenn spila hér hvert verkið á fætur öðru.
Listamönnunum var að sjálfsögðu vel fagnað í lokin og eftir tónleikana buðum við upp á léttar veitingar þar sem öllum gafst tækifæri á að ræða við strákana og fræðast um þeirra feril.
Pósthólfið mitt fylltist í dag af kveðjum og átti ég að færa þeim bestu þakkir fyrir frábæran flutning og ánægjulegan eftirmiðdag hér að Stjörnusteini og geri ég það hér með.
Um kvöldið héldum við Þórir þeim og mökum þeirra auk sendiherrahjónunum okkar sem komu frá Vínarborg smá matarboð hér úti í Leifsbúð. Mikil og góð stemmning ríkti hér og Listasetrið bauð þessa listamenn velkomna á sinn einstæða hátt með brakandi arineldi og flöktandi kertaljósum sem sendu skugga sína upp í rjáfur þessa sérstaka seturs.
Mig langar að þakka Einari Jóhannessyni fyrir skemmtilega daga hér undanfarnar vikur og góða viðkynningu, en hann hélt heim með félögum sínum í dag.
Benni, Jo, Hafsteinn og Daði takk fyrir að koma og gleðja okkur og gesti okkar þennan fallega síðsumardag hér í sveitinni. Ógleymanleg stund sem lengi verður í minni höfð.
Bloggar | Breytt 1.9.2008 kl. 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
28.8.2008 | 21:22
The Reykjavík Wind Quintet í hundrað turna borginni í kvöld.
Þjóðarstoltið var gjörsamlega að fara með mig í kvöld. Strákarnir okkar úr Blásarakvintett Reykjavíkur þeir Bernharður Wilkinson á flautu, Daði Kolbeinsson á óbó, Einar Jóhannesson á klarinett, Joseph Ognibene á horn og Hafsteinn Guðmundsson á fagott gjörsamlega heilluðu áheyrendur hér í kvöld þar sem þeir héldu tónleika fyrir nær fullu húsi í Gallery Sargsyan í hundrað turna borginni Prag.
Einar Jóhannesson er búinn að dvelja hér hjá okkur í Listasetrinu undanfarnar vikur og var ákveðið að vinir hans úr Blásarakvintettnum kæmu hingað í lok dvalarinnar og héldu konsert í borginni. Strákarnir hefðu nú átt að vera viku seinna á ferð þar sem við töldum september vænlegri til tónleikahalds. En þeir fylltu nær húsið og fólk stóð upp í lokin og hylltu þessa frábæru listamenn okkar með húrrahrópum og lófataki. Margir sóttust eftir eiginhandaáritun og þeir voru stjörnurnar okkar sem lýstu hér upp síðsumarnóttina í öngstræti Prag í kvöld.
Efnisskráin fyrir ykkur tónlistaunnendur var Mozart, Ibert, Reicha, Páll. P. Pálsson, Bach og Farkas.
Á morgun ætla þeir að njóta lífsins í borginni með sínum eiginkonum en á laugardaginn koma þeir hingað að Stjörnusteini þar sem þeir ætla að halda tónleika hér heima í garðinum okkar.
Þá býst ég við að þjóðarstoltið taki sig upp aftur og örugglega í miklu meira mæli þar sem þeir verða hér á næstum Íslenskri grund.
Takk fyrir frábæra tónleika og ykkar návist kæru félagar!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.8.2008 | 09:19
Flott framtak hjá Valdísi Óskarsdóttur
Innilega til hamingju Valdís mín með þetta framtak! Mér sýnist líka ,,kastið" ekki vera af verri endanum sem þú hefur valið til að vinna með þér. Hlakka til að sjá myndina og óska þér alls hins besta í framtíðinni, hvar sem þú kemur til með að stinga niður fæti í heiminum.
Kveðjur héðan úr sveitinni okkar í Tékklandi.
![]() |
Íslensk brúðkaupsveisla í Toronto |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
26.8.2008 | 18:25
Óvirðing við listamenn.
Hvimleitt satt er það en þetta er óvirðing við listamenn og fólk á að sýna sóma sinn í því að mæta ekki ef það getur ekki hamið sig eða alla vega að ganga úr salnum.
Finnst eins og fréttamaður sé að dæma Mr. Schiff fyrir hrokafulla framkomu. Ég skil listamanninn fullkomlega og sjálfsagt hefur honum fundist komið nóg af því góða og beðið fólk fólk vinsamlegast um að hemja sig rétt á meðan hann spilaði.
Við sem sækjum tónleika vitum að yfirleitt þegar hlé er gert á milli verka byrjar hálfur salurinn að ræskja sig og hósta, leiðindar ávani! Hitt er annað mál að ef þú ert með kvef og hósta og veist að hóstinn getur brotist fram hvenær sem er og þá sérstaklega þegar þú ert í tónleikasal í gömlum byggingum sem eru uppfullar af ryki þá bara mætir þú ekki á tónleika, þú sleppir þeim!
Ég hef oftsinnis orðið að sitja heima vegna þess að ég ber virðingu fyrir listamönnum og kæmi aldrei í hug að mæta á konsert eða óperur vitandi það að ég gæti fengið hóstakast í miðju verki. Ég hef líka orðið fyrir því að verða að ganga úr salnum vegna þess að ég hélt að ég gæti hamið mig rétt á meðan flutning stæði.
Annað sem kvefaðir áheyrendur gera líka sem er ekki síður ósmekklegt er að mæta með hálstöflur, í skrjáfandi umbúðum. Hvers vegna ekki að taka töflurnar úr umbúðunum áður en gengið er í salinn. Síðan eru það farsímarnir, á ég að halda áfram?
Nei læt hér staðar numið.
Bara smá svona pirringsblogg héðan frá Stjörnusteini inn í kvöldsólarlagið.
![]() |
Hóstaður út af sviðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.8.2008 | 11:25
Mannfagnaðir margfaldir og ég missi af þessu öllu saman. Púhú...
Ég er að missa af hverjum stórviðburðinum þarna uppi á Hamingjulandinu! Svona er að búa erlendis og hafa svo ekki einu sinni rænu á því að kaupa sér miða heim heldur hanga hér hálfvolandi ofan í takkaborðið og vorkenna sjálfri mér þessi líka reiginar ósköp. Nei ég er nú aðeins að ýkja en það hefði ekki verið verra að vera heima núna og mæta í fimmtugsafmælis-Brunch hjá mágkonu minni í hádeginu í dag.
Til hamingju með daginn Bökka mín, heyrði að tónleikarnir hefðu verið dúndur flottir!!!!!
Á morgun á svo bróðursonur minn afmæli, ekki að ég hefði verið boðin í neitt unglingadúndur en hvað veit maður. Síðan er mágur minn hann Helgi Gunn 65 ára á fimmtudaginn! Þar með held ég að afmælisbörn mánaðarinn innan familíunnar séu upptalinn. Þetta er enginn smá hellingur, átta stykki í sama mánuðinum!
Finnst ykkur ekki annars, þið sem þekkið ekki haus né sporð af þessu fólki, skemmtilegt að lesa þetta hehehe.... jú mér datt það svona í hug!!! hehehehhe.....
Annars stendur hér mikið til um helgina, segi ykkur frá því seinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.8.2008 | 10:48
Nú er það spurning um að halda sönsum.
Mér snarbrá þegar ég las þetta, alhvítt á Akureyri og ekki einu sinni kominn september! Sem betur fer ykkar vegna var ekki alhvítt af snjó niður í hálfar hlíðar heldur bara smá gjörningur í gangi. Sniðugt hjá þeim!
Athugasemd við frétt lokið.
- Nú þegar búið er að kjósa í Beijing fegurstu konu vallarins á Olympíuleikunum og flestir farnir til síns heima ætli maður fái þá aðeins hvíld frá íþróttaviðburðum í smá tíma sagði ég við minn elskulega í gær. - Nei svaraði hann nú byrjar enski boltinn og brosið á andlitinu náði hringinn!!!!
Anskotinn, ég bara trúi þessu ekki, veit að sumir eru alveg alsælir en ég sem er ekkert fyrir að fylgjast með íþróttum verð nú að fara að finna mér mitt eigið hobby, ég meina það og það utanhúss því bara hljóðið frá íþróttafréttum sjónvarpsins getur gert mig svo pirraða að það hálfa væri nóg. Golf, OK ég byrja bara aftur í golfinu. Nenni aldrei að horfa á það en mér finnst ekkert leiðinlegt að slá bolta.
Ok farin út að dusta rykið af kylfunum og finna golfskóna.
Ætti ég að fá mér private trainer? Hum hann verður þá að vera flottur með kúlurass.
Hvar ætli ég hafi látið golfsettið í fyrra eða er lengra síðan?
Farin að leita dauðaleit, nú er um sálarheill mína að tefla.
![]() |
Alhvítt á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
24.8.2008 | 15:18
Tvöföld hátíðahöld hér í dag.
Hér var fylgst með leiknum í hádeginu og auðvitað fögnuðum við silfrinu sem strákarnir koma með heim í farteskinu. Tökum á móti þeim heima með pomp og pragt og höldum þeim góða veislu!
Eftir að hafa fagnað silfrinu fórum við, ég og minn elskulegi niður í Prag til að fagna fæðingardegi hans. Hann á afmæli minn gamli og af því tilefni bauð hann litlu fjölskyldunni út í hádegismat á Mandarin sem er einn af okkar uppáhaldstöðum.
Elma Lind skemmti okkur öllum með sínu yndislega babli á meðan við röðuðum í okkur kræsingum með Tai og Indversku ívafi. Kvaddi síðan afa og ömmu með gjöfum (þrátt fyrir að ég ætti ekkert afmæli) sniðug, sló tvær flugur í einu höggi svo hún þarf ekkert að pæla í gjöf í handa mér í október. Eitthvað hefur henni fundist afinn og amman vera þreytuleg því hún færði okkur dekurnudd á Mandarin - Spa. Ekki veitir af að reyna að flikka aðeins upp á þau gömlu hehehhe.
Ætli við tökum það bara ekki rólega það sem eftir er dags og komum okkur vel fyrir í sófanum fyrir framan TV- ið enda búinn að vera góður dagur í dag.
![]() |
Til hamingju Ísland! |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)