15.1.2008 | 12:37
Þrjú spælegg á disk og deginum reddað
Á náttborðinu mínu ofarlega í staflanum liggur opin bók á hvolfi. Á bókarkápunni er mynd af renglulegum unglingi í flauelisjakka með kolsvört sólgleraugu og hendur í vösum heimspekingslegur á svip. Þetta er minnisbók Sigurðar Pálssonar sem ég hef verið að glugga í svona af og til undanfarna daga.
Ég var aldrei sérlega hrifin af skáldinu Sigurði hér áður fyrr, ljóðin hans höfðuðu ekki beint til mín eða ef til vill kafaði ég ekki nógu djúpt til þess að skilja og satt best að segja langaði mig ekkert sérstaklega til að lesa þessa bók en verð að viðurkenna að ég hef haft mjög gaman af opna bókina öðru hverju.
Minningabrot frá þessum árum ´67 - ´72 sem maður var eiginlega búin að setja ofaní skúffu gleymskunnar. Byltingaárin, Bítlaárin, unglingsárin. Þessi brjálaði skemmtilegi tími allt þetta rifjast upp við lestur bókarinnar. Ef einhver hefur gleymt Janis Joplin, Jimi Hendrix eða Otis Redding endilega flettið bókinni og þetta rifjast allt upp aftur og meira til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
15.1.2008 | 11:36
Enn í brennidepli
Ein af aðalfréttum Sky í dag eru réttarhöldin vegna dauða Diönu.
Mr. Burrell - butler kemur með nýtt kjaftæði
Af hverju fær prinsessa allra prinsessa ekki að hvíla í friði?
![]() |
Díana vildi giftast Khan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.1.2008 | 13:35
Á grænu ljósi á leið á tónleika
Við, ég og minn elskulegi fórum á vit menningarinnar hér um síðustu helgi og skelltum okkur á tónleika sem haldnir voru í höll tónlistarinnar hér í borg. Þar sem við komum út úr bílnum okkar slógumst við í hóp fólks sem var að koma út frá Metro stöðinni og allir í halarófu auðsjáanlega á leið í Rudolfinum.
Hvernig sáum við að þetta væru tónleikagestir jú einfaldlega vegna þess að Tékkar fara í sitt fínasta púss þegar þeir mæta í Þjóðleikhúsið, Óperuna eða Rudolfinum. Karlar klæðast jafnvel smóking með hvíta hálsklúta og konur mæta iðulega í síðum kjólum og allir með sama hátíðarsvipinn. Það stendur hreinlega utan á þeim, nú er ég að fara á vit menningarinnar.
Ekki er ég nú að tala um þetta í niðrandi merkingu mér finnst þetta góður siður og klæði mig sjálf alltaf dálítið uppá þegar ég sæki þessi menningarhús.
Hér áður fyrr var stundum dálítið kúnstugt að sjá klæðnaðinn hjá Tékkunum. Dustað hafði verið rykið af gamla smókingnum eða svörtu jakkafötunum og kjólar teknir fram sem greinilega höfðu verið í tísku fyrir 20 árum. En allir svo innilega glaðir með sig og sína að maður fór ósjálfrátt að hugsa hvað maður væri búinn að hafa það gott á meðan þetta fólk var í 50 ára fangelsi.
Þar sem ég stóð innan um Tékka nútímans og beið eftir grænu ljósi hugsaði ég hvað fólkið hefði breyst hér á þessum 17 árum. Allir svo vel klæddir en með sama hátíðarsvipinn, ég er að fara í ´Rudolfinum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.1.2008 | 16:40
Hangandi í vírgirðingu með rósarunna í rassinum.
Minn elskulegi fór með mig og hundinn í skógargöngu í dag. Ég ætlaði nú varla að nenna þessu þar sem ansi er frostkalt en sól skein í heiði svo ég lét mig hafa það að drattast með. Ákveðið var að taka lengri leiðina og allt gekk þetta vel í byrjun þar sem við gengum eftir frostfríum slóða eða næstum því. Þegar við vorum komin um helming leiðarinnar fór að halla niðrí móti og framundan ein íshella.
Minn elskulegi, sem alltaf gengur svona tíu metrum á undan mér stoppar og segir,, Heyrðu elskan, ætli sé ekki best að ég leiði þig núna" og að sjálfsögðu bjóst ég við að mér væri rétt hlý hönd og sterk en þess í stað heldur hann bara áfram sínu stiki og ég heyri hann muldra,,ætli sé ekki best að ganga hér meðfram slóðinni, haltu þér bara í vírgirðinguna" Andskotans tillitsemi er þetta hugsa ég með mér þar sem ég fer fetið niður snarbratta brekkuna. Minn elskulegi kominn í hvarf með hundinn á hælunum og ég þarna alein eins og belja á svelli, hangandi í vírgirðingunni sem gaf eftir í hverju togi, flækjandi fótunum um rætur og festandi buxurnar í villtum rósarrunnum.
Eftir mikið strit og alla vöðva spennta komst ég loks niður á jafnsléttu. Birtist þá ekki á móti mér hann Erró minn (hundurinn) sem auðsjáanlega hafði farið að undrast um mig. Ég hugsaði OK, ef ég hefði dottið og ekki komist upp aftur hefði alla vega hundurinn leitað að mér. Það var ekki sérlega hlýtt augnaráð sem mætti mínum elskulega þar sem ég skakklappaðist heim á leið með verki í fótum og hjartað í buxunum. Enginn göngutúr í bráð, alla vega ekki fyrr en fer að hlána.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.1.2008 | 10:33
Hillary varð orðavant
Þar sem við sátum með Bandarískum vinum okkar (Demókrötum) í gærkvöldi og talið barst að forsetaframbjóðendum heyrðum við þessa sögu um skyrturnar og bónorðið en önnur spurning barst víst líka úr salnum. Hvort líkar þér betur við demanta eða perlur? Þá varð víst Hillary orðavant. Ekki tekið út með sældinni að vera frambjóðandi.
En mikið askoti er hún nú góð þessi kella. Ég dáist að henni að nenna þessu. Svo er önnur spurning, hver kemur með að stjórna USA ef hún nær kosningu? Er hún leikbrúða eða hörkukerling? Jafnvel hörðustu fylgismenn hennar spyrja nú þessara spurninga, ég efast nú ekki um að hún hafi bein í nefinu og láti ekki neinar karlrembur yfir sig ganga.
![]() |
Viltu giftast mér Hillary? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.1.2008 | 12:51
Jæja strákar!
Þetta er máltæki sem við hér notum aðeins á milli vina og nú bíð ég eftir því að heyra Helga vin minn Gíslason skúlptúrista með meiru koma hingað askvaðandi og skella þessu fram á sinn einstæða máta með tilheyrandi hlátrasköllum.
Helgi er hér staddur í hundrað turna borginni til þess að leita uppi steypukalla fyrir málmverkin sín og síðan auðvitað til að heimsækja okkur. Minn elskulegi er búinn að dandalast með hann hér um sveitir undanfarna daga svo ég hef ekkert séð minn kall. Það verður örugglega slegið á létta strengi hér á eftir. Meira seinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.1.2008 | 10:34
Erum ekki komin með ,,útibú" á Íslandi
Þar sem borðapöntunum hefur rignt yfir okkur og vegna fjölda fyrirspurna frá vinum og vandamönnum um hvort við, ég og minn elskulegi værum búin að opna,, útibú" í höfuðborginni við sundin blá, viljum við til leiðrétta allan misskilning láta ykkur vita að svo er ekki.
Restaurant Reykjavík - Praha er enn á sínum stað eftir sautján ár og litlar líkur á því að útibú verði opnað á næstunni. Útvarpsauglýsingin frá Restaurant Reykjavík er væntanlega frá Café Reykjavík í Vesturgötunni. Dálítil önnur ella. En þið eruð öll velkomin hvenær sem er hingað til Prag en því miður erum við ekki með Þorramat á boðstólum en við munum taka á móti ykkur með bros á vör.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.1.2008 | 12:27
Að fara sínar eigin leiðir þarf ekki að vera svo slæmt
Mikið dáist ég að fólki sem rífur sig uppúr rúmi klukkan hálf sex til þess að mæta í leikfimi. Dóttir mín er ein af þessum ofurhetjum. Ég hef nú varla farið lengra en í póstkassann síðan um áramót enda orðin ansi grámygluleg ásýndar.
En það segir mér engin að æða í heilsurækt bara af því að það sé ,,inn" að mæta fílefldur fyrsta í nýári og sprikla og teygja með fjöldanum, þjást síðan af harðsperrum í margar vikur og bölsótast útí þjálfarann sem er gjörsamlega að drepa allan minn lífsþrótt.
Nú eru fjölmiðlar uppfullir af þessu heilsukjaftæði og auðvitað les maður allar þessar greinar og hugsar með sér ,,Ég ætti nú að fara að hreifa mig og vera með í heilsuátaki þjóðarinnar". Ég bara nenni því ekki núna og minn tími kemur bara með hækkandi sól eins og alltaf.
Svo pirrar það mig rosalega þegar ég les endalausar klausur um að éta þetta margar appelsínur og háma í mig eitthvert grasfæði en hlakkaði aðeins í mér þar sem ég las um daginn grein þar sem British Medical Journal upplýsti lesendur um að 8 lítrar af vatni á dag gerði engum gagn. Jamm, ég hef alltaf sagt að vatn væri til þess að þvo sér uppúr, algjör óþarfi að vera að þamba þetta í tíma og ótíma. Þoli ekki fólk sem gengur um götur með vatnsflöskuna eins og vörumerki heilsusamlegs lífernis. Fusssss!
En öllu gamni fylgir smá alvara og þar sem ég sit hér og þamba lútsterkt kaffi með mína sígó er ég svona hálft í hvoru að hugsa mér að fá mér göngutúr þó ekki sé lengra en í póstkassann. Það eru alveg svona 100 metrar. Góð byrjun á heilsuátaki ársins. Kannski ætti ég að taka vatnflöskuna með?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.1.2008 | 15:35
Fagurt er rökkrið
Nú þegar húmar að kvöldi fara álfar og annað huldufólk að huga að búflutningum og gott ef ekki heyrist hér úti fyrir klingja í sleðabjöllum og reiðtygjum þessa góða fólks. Lítil von er nú á því að hér verði stjörnubjört nótt og tunglskin og ekki séns að norðurljósin dansi hér um háloftin í miðri Evrópu.
Mikið hvað þjóðtrúin fylgir manni hvert á land sem er. Hér að Stjörnusteini höfum við engan álfahólinn eða álagastein á landareigninni en klettarnir hér í grennd tala sínu máli og engin spurning að þar fyrirfinnst undurfrítt fólk í glitklæðum með kórónur á höfði og veldissprota í hönd.
Mér hefur alltaf fundist Þrettándinn dulúðlegur og held alltaf dálítið uppá hann fremur öðrum dögum dagatalsins. Ef til vill af því að þá finnst mér nýja árið endanlega gengið í garð. Ég reyni að brenna út öllum kertum frá jólum og áramótum sem fyrirfinnast í húsinu og læt ljósin loga þar til nýr dagur rís og geri enga undantekningu á því í kvöld og ekki veitir nú af að lýsa blessuðu fólkinu veginn til nýrra heimkynna þar sem myrkrið kemur til með að verða ansi svart í nótt þar sem hvorki verður tungl- eða stjörnubjört Þrettándanótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2008 | 14:36
Thriller Þráins Bertelssonar
Snilldarvel skrifaður ,,Thriller" Þráins Bertelssonar, Englar dauðans héldu mér negldri niður í stólinn langt fram eftir nóttu. Djúpur undirtónn úr heimi fíknar kemur vel fram svo og sem betur fer lúmsk kímni Þráins sem öðru hverju lyftir lesendanum upp úr sollinum.
Hlakka til að fylgjast með Víkingi Gunnarssyni á komandi árum. Innilega til hamingju Þráinn minn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2008 | 12:51
Tapað en ekki fundið!
Þar sem ég stóð á haus ofaní plastpoka í gær í leit að hring og armbandi sem ég tapaði á nýársnótt vissi ég ekki um hinn heilaga Antoníus sem er víst hinn vænsti dýrlingur og hjálpar auðkýfingum svo og almúganum að finna horfin auðæfi. Ég hef nú aldrei verið mjög trúuð á áheit svo ég held að ég hefði nú ekki farið að taka upp á því að biðja þann heilaga um að ómaka sig fyrir svona lítilræði enda hefur sá góði maður örugglega nóg á sinni könnu og ef satt skal segja var þessi leit ekkert geðsleg
Ég var svo óheppin þar sem við vorum að gleðjast með vinum okkar um áramótin á Rest. Reykjavík að tapa bæði forláta hring og armbandi. Þetta er auðvitað með ólíkindum tvennt á sama klukkutímanum. Minn elskulegi bað um að allt rusl væri sett í stóra plastpoka eftir lokun og kom með þetta heim til þess fara í gegnum. Ég hafði skreytt óheyrilega mikið fyrir þessi áramót svo þið getið rétt ímyndað ykkur hverskonar óþverri kom úr pokaskjattanum. Frekar óþrifalegt verk og ég var alveg viss að þetta bæri engan árangur sem líka kom á daginn.
Svo voru þetta jú bara dauðir hlutir, vona bara að einhver hafi notið góðs af og skarti nú þessu einhverstaðar í heiminum. En ef Antoníus er þarna einhvers staðar úti þá væri nú ekki verra að finna þetta á náttborðinu í morgunsárið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.1.2008 | 10:44
Lélegar afsakanir

![]() |
Löggan send á reiða farþega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2008 | 12:51
Þegar vindur gnauðaði úti og kuldinn herjaði á merg og bein..
..sat ég inni við arineld og las Harðskafa, dálítið kuldalegt heiti á bók og átti vel við aðstæður hér úti fyrir. Bókin var svo sem ekki slæm og ekki góð. Arnaldur hefur oft sent frá sér betri bækur, verð ég nú að segja. Dálítið fannst mér hún langdregin á köflum svo og að ég gat mér fljótlega til um endinn og fannst mér það miður. Sakamálasögur eiga að koma manni að óvörum annars er ekkert fútt í þeim.
Nú er ég að byrja á bókinni hans Þráins, Englar dauðans. Finnst hún lofa góðu en segi ekkert fyrr en ég hef lokið við bókina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2008 | 13:02
Á nýju ári 2008
Gleðilegt nýtt ár! Búin að keyra áramótaskaupið hehemm, varð dálítið ,,Lost" yfir því. Ef til vill ekki nógu vel inn í þjóðarsálinni svo ekki skal dæma hart. Tóm smákökubox, ekkert nema heilsufæði í ísskápnum og fullt af góðum fyrirheitum fylgja okkur nú inn í nýtt og farsælt ár.
Nenni ekki að fylgjast með völvuspámennsku læt bara mína einkaspá reyna að rætast eins vel og hægt er. Hér eru jólakortin enn að berast í póstkassann frá vinum og ættingjum. Betra sent en aldrei og takk fyrir að muna eftir okkur útlögunum.
Lagaði aðeins myndina af mér svo fólk getur nú séð aðeins betur framan í þá ,,gömlu" Segi nú bara eins og Halla vinkona orðaði það í jólakveðjunni: ,,Einu sinni vorum við bæði ungar og fallegar en nú erum við bara fallegar" Gott að húmorinn í lagi!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2007 | 10:57
Áramótakveðja héðan frá Stjörnusteini
..GAMLÁRSKVÖLD er sú stund sem minnir okkur best á vanmátt sjálfsins í tímanum. Þannig kemst Búi Árland að orði í Atómstöðinni. Dulítið sem vert er að hugleiða á tímamótum.
Öll skiljum við eftir eitthvað af okkar sjálfi í formi minninga þegar gamla árið kveður og vonandi horfa flestir björtum augum til komandi árs 2008. Að lifa fyrir líðandi stund og getað þakkað fyrir hvern dag, hvort sem okkur finnst hann hafa verið okkur gjöfull eða erfiður er mikil kúnst en ætti að takast ef við leggjum okkur fram. Grasið er heldur ekki alltaf grænna hinum megin girðingar.
Við hér að Stjörnusteini óskum ykkur öllum farsældar á nýju ári hvar sem þið eruð stödd í heiminum. Þökkum vináttu ykkar á lífsleiðinni og sendum ykkur ljós á nýju ári 2008.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)