26.11.2009 | 10:24
Fundum síðasta kalkúninn í Prag og þökkum fyrir það!
Nú er það Þakkagjörðadagurinn. Mér finnst það svo sem allt í lagi að þakka fyrir mig og mína almennilega einu sinni á ári.
Annars er ég sí og æ að þakka almættinu en gott að fá tækifæri til að bjóða fjölskyldunni í stórveislu og þakka þeim prívat og persónulega fyrir að vera til og hafa gert svo lítið að velja mig sem foreldri. Hugsið ykkur bara eins og þau höfðu úr mörgum góðum að velja................
Í gær fengum við upphringingu frá frumburðinum og hann fór svona í kring um hlutina eins og honum einum er lagið og spurði hvort ekki ætti að halda upp á Thanksgiving. Þessir krakkar eru orðin allt of eitthvað úttlensk. Halló-vín, Thanksgiving, Dagur hinna látnu og ég veit ekki hvað og hvað.
Auðvitað var rokið upp til handa og fóta til þess að finna síðasta Móikanann ég meina síðasta Kalkúninn í Prag. Dísús þeir vaxa sko ekki á trjánum daginn fyrir þakkagjörðahátíðina. En í morgun tókst okkur að krækja í þann síðasta og hann skal nú steikjast og snúa á sunnudaginn. Nenni ekki þessu í dag enda fuglinn gaddfreðinn.
Þá verð ég líka búin að hengja upp allar mínar þúsundir ljósasería úti og inni svo hér verður haldið vegleg veisla og þakkað til hægri og vinstri.
En ekki fyrr en á sunnudag, þíðir ekkert að koma hingað í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.11.2009 | 10:44
Guð ekki láta hann taka ORA baunirnar og þar með eyðilegja jólin!
Hann lyfti upp hendi og stoppaði okkur þar sem við komum ýtandi vögnunum á undan okkur troðfullum af farangri svo varla sást í nema bleikan nefbroddinn á okkur.
Minn elskulegi var á undan, einhver hissa, nei ég bara spyr svona?
Vörður tollgæslunnar stöðvaði hann og í fyrsta skipti fór um mig smá fiðringur. Ekki það að ég sé smeyk við þessa verði laga og réttar en þarna á undan mér í einni töskunni var jólamaturinn, fiðurfé, Hólsfjallahangikjöt eða næstum því og ORA.
Guð ekki láta hann taka ORA baunirnar! Ég grátbændi almættið í huganum þar sem ég sá þennan í hvítu skyrtunni stöðva minn mann.
Ég mundi eftir því þegar við vorum einu sinni tekin í tollinum á Keflavík vegna þess að við vorum með svo hrikalega mikinn farangur og beðin um að opna eina tösku. Rótað upp óhreinum nærum og sælgæti frá USA. Lokað síðan en þá segir sonur okkar: Pabbi vá gott að hann fann ekki byssuna! Og hvað? Jú auðvitað rifið upp úr öllum töskunum.
Nú sá ég jólamatinn okkar á hraðleið í tékkneskar ruslafötur eða á nægtaborð yfirvaldsins.
Minn fór í vasann og veifaði diplópassanum en við honum var fussað og spurt hvað hann ætlaði að vera lengi í landinu. Þá stakk minn hendi í hinn vasann og dró upp græna passann þar sem stendur að við séum með dagvistar og næturleyfi í Tékklandi til ársins 2089.
Mistök sem gerð voru af yfirvaldi þegar við fengum græna passann.
Tollarinn gerði enga athugasemd og vísaði okkur inn í landið með bugti og honor.
Andsk.... man eftir því núna ég gleymdi að kaupa Makintosið og Nóa Sirius.
Jólin ónýt, get svo svarið það!
Er einhver á leið hingað? Endilega takið með Nóa Sirius.
Makkintosið fæ ég sjálfsagt í Mark &Spencer.
Farin að leita að jóla eithvað....alla vega telja niður til jóla.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.11.2009 | 10:54
Legg hausinn í bleyti og hugsa..................
Það er eins og veturinn hafa gleymt að koma hingað. Allt er fagurgrænt og jafnvel ein og ein rós enn í blóma. Hitastigið er um 13° og sólin vermir hér grundir og móa.
Ég er komin aftur í skotið mitt og gott að vera komin heim eftir langa útivist.
Það var líka einn sem grét í okkur langt fram eftir kvöldi og svaf alla nóttina uppi við svefnherbergisdyrnar til að passa að við hreyfðum okkur ekki fyrr en um fótaferðatíma. Svo sem engin hætta á því gott fannst okkur að kúra aftur í gömlu holunni okkar.
Það fer víst ekkert á milli mála að nú nálgast jólin. Hér eins og annars staðar er byrjað að skreyta og nú verðum við að láta hendur standa fram úr ermum og klæða húsið í jólabúning fyrir næstu helgi.
En vegna þess hversu veðrið er gott ætla ég að fá mér langan göngutúr og leggja hausinn í bleyti og plana næstu verkefni hér að Stjörnusteini.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.11.2009 | 16:27
Þá er að koma sér heim til Prag.
Nú veit ég hvað það er þegar talað er um bleika voga.
Ætla samt ekkert að vera að segja ykkur það. Held því bara fyrir mig, alla vega í bili.
Annars er það pakkedí, pakk í dag. Jólagjafir til ættingja hér heima. Jólamaturinn sem á að fara heim til Prag. Vakumpakkað fiðurfé, langhangið Húskarla lambakjöt, laufabrauð, og fl. sem er ómissandi um hátíðina. Ekki segja mínum elskulega að ég laumaði nokkrum Ora grænum ofan í tösku en hann mundi hreinlega missa sig ef hann vissi að yfirvigtin er þeim að kenna.
Já þessi tími er búinn að vera hrikalega fljótur að líða hér heima í góðum félagsskap ættingja og vina. Mikið gaman, mikið fjör en nú er kominn tími til að halda heim á leið og búa sig undir jólin og allt það stúss sem þeim fylgir.
Eða eins og minn elskulegi sagði hér rétt áðan: Mikið verður gott að koma heim.
Takk fyrir elskurnar mínar allar skemmtilegu stundirnar hér heima sl. vikur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.11.2009 | 12:40
Ekki er þetta Gullfaxi.... heldur ekki Glófaxi.
Þarna kemur hún svona líka rennileg. Það glyttir í fagurlagaðan silfraðan skrokkinn í vetrarsólinni. Hún keyrir hægt fram á tangann og nú snýr hún sér varlega við. Ótrúlega nett séð svona héðan úr borðstofuglugganum.
Ég heyri inn í höfði mínu notalegt malið frá henni þar sem hún mjakar sér í ,take off" stöðu. Ljósin eru kveikt og nú er gefið í. Hún hverfur bak við nýju háskólabyggingarnar sem eru að rísa þarna í Nauthólsvíkinni. En rétt eins og hendi væri veifað birtist hún aftur hér rétt yfir Perlunni eins og fuglinn fljúgandi. Hún tekur netta beygju yfir borginni og hverfur í norður eða vestur.
Ekki heitir hún Gullfaxi og heldur ekki Glófaxi. Þetta er etv. Askja, Hekla eða Skjaldbreið. Var ekki verið að endurskíra þær allar.
Í gamla daga voru það ,,faxarnir" síðan komu landnámsmennirnir Ingólfur, Fróði og hvað þeir nú hétu og það voru líka nokkrar ,,Dísir" en ekki alls fyrir löngu var þeim skipt út fyrir eldfjöll og fagurtinda.
Mig hefur alltaf langað til að heita eitthvað annað en þessu fornaldarnafni sem var klínt á mig í vöggu. Ætla aðeins að pæla í því hvort tími sé til að skipta út fyrir t.d. Glódís, Myrká eða Lipurtá.
Jæja hún er flogin á braut og far hún vel.
Það liggur hér flutningaskip út við sjóndeildarhringinn.
Set þetta inn svona fyrir tollverðina, klárir í bátana drengir!
Átti að fara heim með einhverju fjallinu á morgun en búin að framlengja dvölinni um nokkra daga. Ástæðan það vantar svo margt til heimilisins.
Hvar í ands.... finn ég ruslafötu.
Ætla að fara og heimsækja Ingimar. Ég þoli ekki IKEA.
Bömmer að þið skildur ekki hundskast til að opna hér Bauhaus. Þá væri ég ekki með þetta ruslafötuvandamál eða WC burstadæmi.
Farin í helv......IKEA.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.11.2009 | 18:18
CARITAS ÍSLAND 2009
Var að koma af frábærum tónleikum sem haldnir voru í Kristskirkjunni. Þar komu fram fremstu listamenn þjóðarinnar!
Tónleikarnir voru haldnir í þágu Mæðrastyrksnefndar og gaman að sjá hversu vel þessum tónleikum er ávallt tekið því sneisafullt var út úr dyrum enda verkefnavalið í sérflokki.
Okkur gafst tækifæri á að heilsa upp á nokkra af listamönnunum og þakka fyrir okkur en misstum af Diddú okkar og Einari Jóhanness og vil ég hér með þakka þeim sérstaklega fyrir frábæra skemmtun. Gaman að geta þess að meir en helmingur þeirra sem komu fram hafa heimsótt okkur að Stjörnusteini og margir dvalið hjá okkur í Leifsbúðinni.
Þökkum ykkur öllum fyrir frábæra tónleika sem hlýjaði okkur um hjartarætur.
Nú skal haldið áfram að njóta lista og menningar þar sem við erum að fara að hitta góða vini og listamenn og snæða með þeim saltkjötsbolur í káli. Sérpantað af okkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.11.2009 | 10:02
Komin aftur í dalinn minn.
Einu sinni bjuggum við í Fossvoginum og nú erum við aftur komin heim í dalinn okkar nema aðeins framar, nær víkinni. Vóvó engan asa! Við erum ekki flutt heim aðeins að hluta til. Þetta verður svona útskotið okkar hér næstu árin. Þið vitið svona kósíheitarútskot.
Á meðan við vorum að dóla okkur í henni stóru Ameríku var fjölskyldan hér heima á fullu að koma íbúðinni í stand. Sjá um að þeir leggðu parketið rétt, ljósin tengd og koma húsgögnum og öðru dóti haganlega fyrir. Ómetanleg þessi fjölskylda okkar. Svo láta þau svo vel að stjórn það er fyrir öllu. Takk elskurnar mínar þið eigið inni hjá mér heilan helling.
Og hér sit ég og horfi yfir sundin blá, alveg að sjóndeildarhringnum. Ég get næstum veifað til stórbóndans að Bessastöðum. Sé að það er verið að færa þeim morgunkaffið. Humm.... þarf að fá mér svona James!
Hér framundan glyttir í Perluna og milli ,,Lífs og dauða" þá tekur við fjallasýnin, Esjan, Skálafell, Hengillinn og Bláfjöllin. Stórkostlegt Panorama!
Hér á okkur eftir að líða vel!
En ekki er til setunnar boðið. Nú skal bretta upp ermar og fara að koma sér að verki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
31.10.2009 | 01:26
HAPPY ´,,HALLÓ-VÍN" ! - Nornarkveðja frá USA.
Er þetta ekki alveg frábært. Hér sit ég á móti frumburðinum og hamast við að berjast gegn svínaflensu en hann alveg svona ,,kúl" glamrandi á sína tölvu og við erum í henni stóru Ameríku.
Þvílíkur bömmer, ég hafði það af að áskotnast SVÍNA- flensuófétið þessa daga sem ég var heima um daginn.
Ok, ég lifi það af en samt, þetta er ekkert að grínast með. Ógisslega pirrandi!
Á morgun ætla ég að vera hrikalega ,,kúl" amma með nornarhatt og alles! Galdra til hægri og vinstri og búin að reyna í allan dag að koma því inn í lítinn þriggja ára koll að amma hans sé NORN! Búin að lita mig í litabókina en veit ekki hvort þetta hefur sýjast inn í þriggja ára lítinn koll.
Amma er jú bara amma, pínu rugluð á köflum eins og gengur og gerist.
Sú stutta,aðeins tveggja ára tekur þessari ömmu bara eins og hún kemur fyrir, kexruglaðri.
Segi ykkur famhaldið á morgun.
HAPPY HALLÓ - VÍN!!!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
26.10.2009 | 09:53
Úr grámóðu gærdagsins inn í magnaðan mánudag.
Hugur minn leitar uppi minningar. Ég heyri hneggjandi hlátur Flosa einhvers staðar langt í fjarska. Hann hefur yfirgefið sviðið, einn af okkar ástsælustu leikurum, og farinn úr húsi eins og oft var sagt. Ég kveiki á kerti til handa Lilju og fjölskyldu.
Dagurinn í gær byrjaði einhvern vegin svona en lífið og tilveran heldur áfram þó góðir og gamlir vinir hverfi á braut.
Á meðan litli snúður ömmu sinnar fór í leikhúsið að sjá Kasp,Jesp og Jónatan og hræðast ljónið og annað illfylgi á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu fóru Amman og Afinn með langömmuna á skemmtilega hátíðarsýningu þeirra hjóna Þórðar Hall listmálara og Þorbjargar veflistakonu sem var að ljúka í gær í Norrænahúsinu. Frábær samsýning í tilefni stórafmælis þeirra beggja á árinu.
Innilega til hamingju með þetta framtak kæru vinir.
Þessi menningarlegi dagur endaði síðan með því að horft var á ,,Vangavagtina" eins og þátturinn er kallaður á þessu heimili af yngsta meðlimnum.
Ég horfði síðan á seinni hluta viðtalsins við Steindór minn og Grétu.
Takk fyrir það kæru hjón og sendi ykkur stórt knús.
Dagur menningar og listar leið hratt inn í svarta vetrarnóttina.
Og þá er það magnaður mánudagur!
Nú skal tekið til óspilltra mála að undirbúa ýmis verk sem koma til með að hellast yfir okkur eftir för okkar til hennar stóru Ameríku en sú ferð hefst á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
24.10.2009 | 10:48
Við snerumst öndverð.
Þegar fólk verður yfir sig áhugasamt um að þóknast mér og mínum þá á ég það til að fara í algjöran baklás og það sama gegnir hjá mínum elskulega.
Í gær fórum við í smá leiðangur um borgina við sundin blá. Okkur vanhagaði ýmislegt bæði stórt og smátt þannig að við visiteruðum nokkrar velvaldar verslanir. Það fór ekkert á milli mála að verslunarfólk var mikið í mun að selja sína vöru og hvar sem við komum voru góð tilboð í gangi. En það er nú ekki alveg nóg að vera með góð tilboð sölumenn verða líka að kunna að selja vöruna.
Við komum t.d. inn í verslun þar sem okkur var tekið eins og við værum algjörir hálfvitar, snúið út úr spurningum okkar og jafnvel ekki svarað nema með annarri spurningu. Sölumanneskjan setti sig á háan hest og það sem við vorum að skoða kostaði marga, marga ísl. peninga, má eiginlega segja að hún væri í hærri kantinum. Þar sem við þekktum þessa vöru af gamalli reynslu vorum við e.t.v. dálítið spennt fyrir að kaupa aftur svipað en að sjálfsögðu breytist allt með árunum og verður fullkomnara og þá vill maður fá upplýsingar eða jafnvel prófa.
Við hjónin snerumst öndverð vegna óþægilegrar framkomu viðkomandi og verslunin missti af góðri helgarsölu.
Annar verslunarmaður tók svo vel á móti okkur að við komumst snarlega í verslunarham og það vakti athygli sölumannsins sem sagðist elska að fá svona samhent hjón sem vissu nákvæmlega hvað þau vildu. Við vorum svo samhljóma í neijunum og jáunum að það vakti almenna ánægju í versluninni.
Ætla að fara núna að plana daginn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.10.2009 | 10:42
Fjölskyldudagar næstu vikur hér og þar og alls staðar.
Við lentum í fallegu haustveðri eftir þægilegt flug. Við erum enn og aftur komin í heimsókn heim. Vildi bara láta vita af okkur.
Verðum hér í nokkra daga áður en við höldum öll litla fjölskyldan til stóru Ameríku þar sem við ætlum að heimsækja Mikka og Mínu, Guffa og alla hina sem einn lítill er núna í óðaönn að upplýsa ömmuna um.
Sumir eru hrikalega vondir aðrir góðir.
Síðan skilst mér að jólin séu líka alveg að koma alla vega er verið að tala um að skreyta jólatré og jólseinninn komi og þeir eru víst tveir að mér skilst.
Á milli þess sem talað er við sjálfan sig er verið að upplýsa fáfróða ömmuna um öll heimsins gæði og líka vandamál. Sem sagt ekki kjaftstoppað í allan morgun.
Svo á maður líka bæderman tannbusta og bædermann takkrem sem búið er að pakka niður. Ætlar með fimm tökkur í fluvélina til Mikka mús landið.
Það verður yfirvigt á þriðjudaginn er ég hrædd um.
Hrikalega líkur mömmu sinni eins og hún var á hans aldri.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.10.2009 | 11:58
Betlarinn sem skipti um ham þegar kólna fór í veðri.
Maðurinn sem sat við borðið uppáklæddur, þveginn og strokinn og gæddi sér á stórsteik og dýru rauðvíni kom eitthvað svo kunnuglega fyrir sjónir. Ég gekk aðeins nær og pírði augun, jú það fór ekkert á milli mála þetta var maðurinn.
Maðurinn sem sat venjulega við Karlsbrúna eða gekk um götur hundrað turna borgarinnar klæddur lörfum, skítugur upp yfir haus og betlaði eins og engin væri morgundagurinn. Til þess að vera nú alveg viss spurði ég minn elskulega hvort þetta væri sami gaurinn. - Jú, alveg rétt þetta var hann. Ég alveg.........já en? og þá fékk ég söguna.
Maðurinn var háskólamenntaður og hafði unnið sem verkfræðingur á kommatímanum. Eftir flauelsbyltinguna missti hann vinnuna og ákvað að gerast betlari þar sem ekki var auðvelt að fá vinnu við hans hæfi. Hann gekk um götur borgarinnar betlandi einn þriðja af árinu eða þar til kólna fór í veðri. Þá skipti hann um ham og naut listasemda lífsins. Hafði nóg á milli handanna og gat veitt sér hluti sem venjulegur launþegi gat ekki. Þegar fór að vora tók hann upp fyrra líferni og hélt út á göturnar til að betla.
Hann sagðist hafa svo miklu betra upp úr því að vera betlari en vinna sem verkfræðingur.
Þessi saga er ekkert einsdæmi við vissum um fleiri sem höfðu þennan lífsstíl hér í hundrað turna borginni.
Ég hef ekki rekist á betlarann lengi svo sjálfsagt er hann orðinn ráðsettur maður bak við teikniborðið sitt nú eða bara stórgrosser á hlutabréfamarkaðnum, hver veit.
![]() |
Flöskugróði bjargaði Rússa af götunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.10.2009 | 10:30
Næstum eins og.......... jóla hvað?
Undarlegur morgun. Það var rafmagn á hálfu húsinu þegar ég vaknaði og síðan þegar ég leit út var hvítt stöff yfir öllu. Það snjóar! Og það er aðeins miður október!
Er ekki verið að grínast í manni hér? Neip blákaldur raunveruleikinn!
Ég hef aldrei upplifað það áður að helmingurinn af húsinu væri rafvirkur en hinn ekki. Skýringin, einhver fasi (hvað sem það nú er, veit ekkert um rafmagn nema það að ég get ekki verið án þess ja alla vega ekki lengi) brann yfir í götunni. Og auðvitað var aðalíverustaður okkar á morgnanna sambandslaus svo ég varð að fara með kaffikönnuna fram í borðstofu sem í sjálfu sér var ekkert mál. Fengum þó alla vega kaffið okkar, ef ekki væri ég ekki viðræðuhæf núna.
Hvíta stöffið kyngir niður, svona líka eitthvað jólalegt svo nú ætla ég að fara að finna til vetrarflíkur, ekki samt skepnuna strax en eitthvað hlýtt og snjósköfuna, hvar sem hana er að finna hér innan um allt draslið í geymslunni.
Þegar ég er búin að moka mig hér út úr húsinu, ekki alveg sannleikanum samkvæmt, ætla ég að fara á flakk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.10.2009 | 14:10
Krúttblogg á sunnudegi.
Sæt mynd af Gæja Lallaberta með trúðarnebbann sinn. Fallegt af honum að skutlast út í geim til að vekja athygli á vatnsskorti!
Þegar ég sá þessa mynd datt mér í hug að í þessum sporum gæti dóttursonur okkar verið eftir svo sem þrjátíu ár eða svo. Hvers vegna? - jú vegna þess að hann þriggja ára guttinn tilkynnti fyrir skömmu að hann ætlaði að verða geimfari þegar hann yrði stór.
- Jæja sagði amman en þá verður þú að vera duglegur að læra. Minn með allt á hreinu: Já amma nú er ég í leikskóla, so fer ég í grunnskóla og menntaskóla og so háskóla. - Nú já sagði ég og hugsaði um leið: Hver ætli hafi komið þessu í hausinn á þriggja ára snáðanum? Var varla búin að hugsa þetta til enda þegar hann sagði: Og so fer ég í geimfaraskóla.
Það er nebbla það!!!!
Hlakka til að minna hann á þetta þegar hann kemst á alvitra-aldurinn.
En þessi barnabörn mín eru algjör krútt. Áðan vorum við að heimsækja Elmu Lind teggja áa. Amman hafði keypt handa henni hálsmen og armband og mín var alsæl með að vera alleeinsoamma með hásesti. En klár, þegar ég var búin að setja glingrið á hana tók hún í eyrnalokkana mína en sagði ekkert. Amma skildi áður en skall í tönnum, auðvitað, það hefðu átt að fylgja eyrnalokkar. Dúllu-Dósin....
Svo fann amman lykt og sagði: Ojj Elma Lind ertu búin að kúka í þig? Bláeig, ljóshærð með bros allan hringinn með hálsesti, armb, bleika spöng og í háæluðum skóm af frænku sinni sagði hún hreykin eins og þetta væri algjört þrekvirki: Jahááá´!! Svo var farið að skipta um bleyju og þá allt í einu þar sem hún lá með talnabretti í höndunum byrjar mín að telja á ensku frá einum og upp í tíu. Mamman alveg upp í skýjunum æpti á pabbann: Egill varst þú að kenna henni þetta? - Hann alveg: Nei! Hún hefur lært þetta í leikskólanum og undrabarnið var knúsað og klappað fyrir og allir alveg á dampinum hvað krakkinn væri æðisleg!
Já þetta eru snillingar þessi barnabörn okkar, vandfundið annað eins hér í henni veslu skal ég segja ykkur.
![]() |
Geimtrúðurinn" lentur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.10.2009 | 11:32
Hvað var konan eiginlega að hugsa?
Vóóó! Þegar konan leit í spegil í morgun rétt skriðin framúr fékk hún vægt áfall. Hver var þessi kona í speglinum? Hún minnti ekkert á konuna sem birtist í speglinum í gær.
Þessi kona minnti frekar á Gög, þið sem eruð komin um og yfir miðjan aldur munið eftir Gög öðru nafni Stan Laurel sem lék á móti Oliver Hardy eða Gökke. Stan var sá sem alltaf var með hrikalegan hárbrúsk sem stóð út í allar áttir. Eða var þetta Karíus bróðir Baktusar sem góndi þarna á konuna í speglinum eða bara múmínálfur.. konan var bara alls ekki viss. Þetta var alla vega einhver furðufugl, alls ekki konan sem fór að sofa í gærkvöldi í rúminu sínu við hlið síns elskulega.
Nei, nei,nei ekki að ræða það!
Þessi furðuvera starði á konuna galopnum augum, ja alla vega eins opnum og hægt var svona nývöknuð. Hún bara góndi og góndi, hallaði sér að speglinum og síðan aftur á bak trekk í trekk. Hendi var lift að hárbrúski sem stóð út í allar áttir eins og hann hefði orðið fyrir raflosti, og konan ýfði aðeins upp í því sem eftir var þarna ofan á hvirflinum.
Það var ekki um að villast þetta var konan..... konan sem alltaf hafði svo þykkan og flottan makka. Andsk..... hvað gerðist eiginlega?
Allt í einu, klikk og það kom ljós, konan fór í klippingu í gær og hafði gefið hárgreiðslumanni sínum grænt ljós og algjörlega frjálsar hendur og hann hafði látið vaða á lufsurnar. Konan hafði verið alsæl þegar hún hélt heimleiðis með nýju hárgreiðsluna og eitthvað hárkrem í poka sem á að gera gæfumuninn.
OK kona var bara ekki eins flott eftir nætursvefninn og tók hana nokkrar mínútur að venjast þessari nýju konu með Stan- greiðsluna.
Konan er farin núna að prófa hárkremið og ætlar að sjá síðan til hvort hægt er að bjarga einhverju fyrir horn.
Hvað var konan eiginlega að hugsa?
Nær þessu ekki alveg!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)