27.9.2007 | 11:54
Biblía djöfulsins eða ,,Devils Bible" til sýnis í Prag
Eitt stærsta miðaldarverk Codex Gigas eða Biblía djöfulsins er nú til sýnis hér í þjóðarbókhlöðu Tékklands eftir 359 ára útlegð. Handritið er talið vera skrifað af munki Benediktarreglunnar fyrir um 800 árum með hjálp djöfulsins.
Sagan segir að munkur þessi hafi lofað að skrifa ritið á einni nóttu til fyrirgefninga synda sinna en orðið það ljóst að þetta var óframkvæmanlegt og ákveðið að fá hjálp frá hinum vonda sjálfum. Talið er að aðeins einn munkur hafi skrifað þetta handrit frá munkaklaustri Benediktakreglunnar í Podlazice sem er um 100 km austur af Prag.
Bókin vegur 75 kg og segja fróðir menn að það hefði tekið venjulegan mann um 10 til 12 ár að klára verkið. Í dag telur handritið 624 síður sem varðveist hafa mjög vel en upprunalega handritið er talið hafa verið 640 síður.
Codex Gigas var fjarlægt frá Prag kastala af Sænsku hersveitinni í lok þrjátíu ára stríðsins 1648 og hefur verið í ,,eigu" konunglega Sænska bókasafnsins í Stokkhólmi.
Sýningin hér stendur yfir til 6. janúar 2008 og er undir strangri gæslu. Aðeins 60 manns komast að handritinu á klukkustunda fresti og fá að stoppa inni í aðeins 10 mínútur.
Auk Prag hefur handritið verið til sýnis í New York og Berlín.
25.9.2007 | 19:08
Hvað með húseigendur?
Eins og margir aðrir húseigendur höfum við lent í þessu oftar en einu sinni. Jú, jú gott og vel, foreldrar geta talað um fyrir börnunum en okkar reynsla er sú að mála yfir ósómann um leið og eitt krot sést, þá gefast þeir upp á þessu. Þeir sjá engan tilgang með að halda áfram að krota á byggingar sem þurrkað er út daginn eftir. Yfirleitt er þetta gert í skjóli myrkurs þannig að erfitt er að finna sökudólgana.
Auðvitað kostar þetta viðkomandi heilan helling af málningu og vinnu í einn eða tvo mánuði, en það er alveg þess virði. Ég skal lofa ykkur því að þetta virkar 100%, ja alla vega er það okkar reynsla. Við höfum ekki séð veggjakrot á okkar veitingahúsi í mörg ár eftir að við tókum þennan pól í hæðina.
![]() |
Lögreglan biður foreldra að taka þátt í baráttu gegn veggjakroti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2007 | 13:06
Skemmtileg helgi í góðum hópi
Á föstudaginn skelltum við okkur bæjarleið með Ráðherrahjónunum og keyrðum til Czeský Krumlov. Það var brúðkaupsdagur þeirra heiðurshjóna Rutar og Björns Bjarnasonar og gaman að halda upp á hann með þeim í haustblíðunni og fornri fegurð Krumlov. Minn elskulegi villtist aðeins af leið enda komið fram í myrkur þegar haldið var af stað heimleiðis. Honum var nú fyrirgefið þetta smáræði enda allir í góðum gír eins og þar stendur.
Laugardag fórum við til Egils okkar og Bríetar og elduðum saman þennan líka fína gullash og nutum þess að vera saman, litla fjölskyldan. Nú fer senn að líða að því að nýr fjölskyldumeðlimur fæðist og mikil tilhlökkun hjá öllum.
21.9.2007 | 08:28
Föstudagsþankar hvutta - ,,eldhústækið"
Jæja, hún fóstra mín skrapp aðeins frá og þá ætla ég að stelast í tölvuna. Mér varð á í messunni seinasta föstudag, ég gleymdi að kynna mig. Ég heiti Erró og er eðalhundur af Golden Retriever kyni og afskaplega gáfaður og flottasti gæinn í bænum.
Hún fóstra mín er með tölvuna í eldhúsinu og stundum heyri ég hljóð sem fara virkilega í mína fínu taugar. Það er þegar þau fóstri minn og fóstra eru að tala á þetta Skyp við Juniorinn. Það pirrar mig rosalega, hann sem ekki einu sinni kann að tala. Þarna geta þau setið lon og don og bablað einhverja vitleysu og strákurinn er bara eins árs og skilur ekki bofs. Ég er þó að verða átta ára og það er ekki dúllað svona við mig!
Ég er margsinnis búinn að vekja athygli á þessu við þau, með væli, gelti og jafnvel smá urri en þau bara virða mig ekki viðlits og segja mér bara að hafa hægt um mig. Svo á þessi strákpatti líka afmæli í dag. Fuss, gaman að vita hvort þau muna eftir mínu afmæli næst. Jæja ég verð víst að viðurkenna að ég er dálítið abbó útí strákinn en þau gætu nú alveg tekið aðeins meira tillit til mín eða hvað finnst ykkur?
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2007 | 07:19
Juniorinn er eins árs í dag
Hann á afmæli hann Þórir Ingi! Hann er eins árs í dag! Til hamingju Ömmustrákur. Láttu mömmu þína og pabba hafa mikið fyrir þér í dag. Þetta er nú einu sinni þinn dagur. Afi og amma senda þér fullt af kossum og knúsi og vonandi sjáum við þig á ,,Skypinu" þegar líður á daginn. Hlökkum til að fá þig hingað í næstu viku. Afi ætlar að gefa þér fullt af ís og síðan förum við saman í bæinn og kaupum eitthvað skemmtilegt. Knúsi, knús ástarkallinn okkar!
20.9.2007 | 08:13
Þokan lúffaði fyrir Birni Bjarnasyni.
Dómsmálaráðherrann okkar er hér í stuttri heimsókn og þar sem mér var litið út í morgunsárið sá ég hvar Björn var að gera sínar æfingar á pallinum umvafinn morgunþoku. Mér hefur skilist að þessar hreyfingar eigi að hreinsa líkama og sál og viti menn, orkustreymið var þvílíkt að sólin braust út úr þokunni eins og hendi væri veifað og baðaði ráðherrann haustgeislum sólar. Skemmtilegt ha?
Ráðherrann ætlar að dvelja hér í nokkra daga, sækja fundi og njóta kyrrðarinnar hér í sveitinni.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2007 | 18:10
Smart fjárfesting hjá Icelandair Group
Já svona gerast nú kaupin á Eyrinni. Þær fréttir bárust okkur í dag að Icelandair Group hefði fjárfest 50% í tékkneska fyrirtækinu Travel Service. Við hjónin fögnum þessum kaupum og óskum Icelandair Group til hamingju. Ef til vill rætist nú gamall draumur um að geta flogið í beinu flugi allan ársins hring Prag-Keflavík. Það á framtíðin eftir að leiða í ljós. Gangi ykkur allt í haginn í komandi framtíð.
![]() |
Icelandair Group kaupir tékkneskt flugfélag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2007 | 07:52
,,Torg tímans"
Þetta er ein besta hugmynd sem fram komið hefur lengi. Þarna er verið að koma á móts við flesta Reykvíkinga með því að halda gamla tímanum neðanjarðar undir gleri en byggja upp nýja tímann með tilliti til ljóss og veðráttu. Sporvagnar niður Laugarveginn er athyglisverð hugmynd. Af hverju ekki?
Þegar ég heimsæki landið mitt nota ég mikið bíl en ef ég vil fara í miðbæinn legg ég efst á Laugarvegi og geng niðrí bæ. Hressandi göngutúr, en stundum getur rokið verið ansi mikið í fangið og þá væri gott að geta hoppað uppí sporvagn.
Að tengja Óperuhúsið og Lækjartorg með fallegum göngustíg á milli skemmtilegra kaffihúsa er snjallt. En þá verða borgaryfirvöld að vera búin að hreynsa til í borginni, sem mér silst að nú sé í fullum gangi.
Las í greininni að einhverjum gáfumanninum datt í hug að setja stórmarkað í kjallara Óperuhússins! Er ekki allt í lagi með þetta lið? Á svo að koma ómanneskjuleg bílastæði allt í kring? Hef því miður ekki séð teikningar af húsinu, svo ég spyr?
Ég er sammála Jan Gehl. Þessir garðar okkar í Reykjavík eru orðnir ansi þreyttir og svo sannarlega kominn tími að endurskipuleggja þá með tilliti til nútímans. Ekki meir um ,,Torg Tímans"
![]() |
Verður alltaf bara stæling" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.9.2007 | 11:29
Föstudagsþankar hvuttalings.
Hún fóstra mín er búin að gefa mér aðgang að blogginu sínu einu sinni í viku. Ekki veit ég af hverju, en dettur í hug að það sé af því ég er svoddan eðalhundur og eftirlæti allra, nú eða loksins er komið þetta ,,Indian Summer" sem mannfólkið er svo hrifið af. Fóstra mín var alla vega í góðu skapi í morgun og gaf mér jafnvel bita af hafrakexinu sem ég þarf yfirleitt að grenja út.
En hér ligg ég nú og sóla mig og læt mig dreyma. Sá hvar gestur fóstru minnar fór í göngutúr, hún heitir víst Rut, en nennti ekki að skokka með henni. Hún gæti verið eins og Gerður hans Helga listamanns. Hún var rosaleg. Eftir 6 km gafst ég upp og lagði niður rófuna og sneri heimleiðis. Ég læt engan hafa mig í aðra eins vitleysu aftur.
Nú er ég orðinn dálítið þreyttur í loppunum svo ég ætla a hætta að berja þetta á lyklaborðið. Þarf að láta fóstru mína klippa á mér neglurnar. Verð að muna það. Verst hvað minnið er stutt hjá hvuttum.
11.9.2007 | 18:41
Mikið er ég orðin leið á þessum hjónum.
,,Ofmetnasta fólk í heimi" skemmtilegur titill eða þannig! Æ blessuð hjónin, hvernig verður þetta eftir nokkur ár. Ætli heimurinn verði búinn að gefast upp á þeim eða þau honum? Spyr sá sem ekki veit.
![]() |
Beckhamhjónin eru ofmetnasta fólk í heimi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
...en samt ekki alveg svo slæmt. Svo er ekki að sakast við neinn nema mig sjálfa þar sem ég ákvað að skrokkræfillinn hefði þörf á að fara í nudd og að sjálfsögðu valdi ég Thai-nudd. Á móti mér tók Nan, alveg eins og Nan-brauð, lítil sæt budda sem brosti útundir eyru og bauð mig velkomna á Sabai. Veit ekki af hverju mér datt Nan-brauð í hug því það hnoð sem á eftir kom átti ekkert sameiginlegt við brauðhnoð, þvílíkur andsk. tortúr.
Þarna lá þessi litla dúlla hálf ofan á mér og lét hné og olnboga djöflast á mínum fína skrokki. Ég reyndi eins og ég gat að harka af mér en langaði mikið til að öskra á hana að hætta. Allt í einu segir hún: Oh many stones madam" Ég þóttist vita það, en gat bara stunið Yehh. Hvað hélt manneskjan, að ég væri að koma þarna að gamni mínu? Ég vissi alveg að ég væri öll í hnút og meira að segja mörgum rembihnútum!
Þar sem ég var búin að liggja þarna á píningarbekknum í hálf tíma eða svo og reyna alla þá öndunar og afslöppunartækni sem ég kunni segir buddan: ,,You OK madam?" Nei, andsk. ég var ekkert OK, en gat ekki komið upp orði, stundi bara aftur: ,, Yehhh!"
Eftir klukkustundar hnoð og píningu var ég loksins laus úr prísundinni og hét þess að fara aldrei aftur í nudd, en viti menn þar sem ég stend fyrir framan afgreiðsluborðið og drekk Green Tea segir buddan: ,, Next time madam? Next week, hum? og brosir til mín þessu líka sæta brosi og áður en ég veit af er ég búin að panta mér annan tíma að viku, bugta mig og beygi að hætti Thailendinga og kveð með frosið bros á vörum. Fatta ekkert fyrr en ég er komin út á götu, hvaða fífl er ég eiginlega, það er ekki í lagi með mig!
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2007 | 07:31
Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari
Um helgina kom Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari hingað til dvalar að Listasetrinu okkar og þar með bættist við enn ein perlan í safn Leifsbúðar. Það er okkur mikill heiður að fá listamann á borð við Rut hingað sem gest okkar í nokkrar vikur.
Vertu velkomin Rut hingað í sveitina okkar. Við vonum að dvölin verði ánægjuleg og gefandi þar sem haustið er alveg handan við hornið með allri sinni litadýrð.
6.9.2007 | 09:41
Allt á floti alls staðar
Ég er sallaróleg, eða ég er að minnsta kosti að reyna að vera róleg. Vaknaði í morgun um hálf sjö og hér var allt á floti! Minn elskulegi úti að moka skurði með vinnuþrælnum en vatnið og aurinn bunaði hér af akrinum inná veröndina. Ahhhrrr.. ekki einu sinni enn! En ég er róleg, sallaróleg, ekkert mál, þetta reddast, þetta með 40 manna BBQ sem á að vera hér í garðinum á laugardaginn. Hvernig í ósköpunum á það að vera hægt? Við erum með leirdrullu hér um allt!
Ég þori ekki einu sinni að athuga með veðurfregnir fyrir helgina, andsk..vesen. Nú þegar þetta er skrifað eru komnar stórvirkar vinnuvélar hér að reyna að bjarga málunum. Hefðu átt að vera komnar hingað fyrir mánuði! Það er virkilega þung brúnin á mínum elskulega núna skal ég segja ykkur, en ég er róleg alveg sallaróleg, eða þannig!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2007 | 08:51
Aumingja Dasja...
....ekki velkomin á fjalir Þjóðleikhússins. Kemur svo sem ekki á óvart þar sem hún hefur aldrei notið mikillar hylli þjóðarinnar. Glæsileg kona en... Mikið væri gaman að komast í þetta verk Havels. Lér konungur og Ég! Já kallinn er ekki dauður úr öllum æðum ennþá. Verður gaman að fylgjast með þessu næstu mánuði. Hann fer e.t.v. með verkið í gamla leikhúsið sitt ,,Við grindverkið" en ætli það sé nógu stórt fyrir fyrrverandi Forsetafrú Tékklands. Held ekki.
![]() |
Eiginkonan fær ekki aðalhlutverkið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2007 | 11:31