4.9.2007 | 09:23
Búmm! Búmm! Búmm!
Æ nei, ekki aftur og ég sem ætlaði að fá mér smá lúr hér í morgunsólinni. Þetta kom úr hugarheimi hundsins okkar þar sem hann lá og sólaði sig í morgunsárið. Hvers vegna þarf mannfólkið endilega að vera með þessi læti? Bansettir veiðimennirnir eru komnir á stjá og hér ligg ég og fæ ekki einu sinni að vera með í fjörinu. Ég er nú einu sinni veiðihundur, en það skilur auðvitað enginn.
Þessi saga endurtekur sig á hverju hausti. Mannfólkið æðir hér um allan skóginn með hólka sem ég skil nú ekki til hvers eru, en er sagt að ég megi ekki koma nærri. Mannfólkið eltir upp dádýrin, kanínurnar og fasanana sem eru vinir mínir. Jæja best að reyna að gleyma þessu og sofna aðeins.
Nei, æ nú er ég kominn í leikinn, en ég er sofandi. Get samt gefið frá mér smá juff. Nú kemur einhver og klappar mér. Já svona, nú líður mér betur. Ég er öruggur hér heima hjá húsbændum mínum. Ahhh..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2007 | 12:13
Óvænt og skemmtileg heimsókn.
Ég bjóst alls ekki við að geta hýst vini mína Ragnheiði Steindórsdóttur leikkonu og Jón mínus hér í Leifsbúð en þar sem næsti listamaður mætir ekki á svæðið fyrr en um helgina var ekkert því til fyrirstöðu að þau fengju smjörþefinn af Listasetrinu.
Mikið er búið að skrafa hér undanfarna daga og rifja upp margar góðar minningar fyrri ára. Héðan fara þau heiðurshjón í íbúðina okkar niðrí Prag og dvelja þar næstu þrjár vikur. Þar sem þau ætla að nota tímann til að kynnast Prag betur og ferðast um nágrannalöndin, veit ég að þau koma til með að njóta dvalarinnar hér í hundrað turna borginni alveg í botn.
29.8.2007 | 08:07
Sorgleg staðreynd, en hver er ástæðan?
Þar sem ég var að keyra yfir Tjarnarbrúnna í sumar var ég vitni að því að einn af okkar elskulegu nýbúum elti stóran gæsahóp á græna svæðinu sunnan megin við brúnna. Hann var auðsjáanlega að reyna að fanga eina sér til matar. Vissi örugglega ekki að hann var inná friðuðu svæði.
Ég veit að þessi aðferð, að fanga fugla er þeim eðlislæg, en mætti ekki upplýsa þá betur um friðuð svæði í landinu. Gæsa og Andaregg eru líka hnossæti og auðvelt að komast að varpinu við Tjörnina. Ekki kenna kattaraumingjunum um þetta, setjið upp myndavélar á svæðinu. Ég skal lofa ykkur að þá kemur annað í ljós.
![]() |
Komu upp fáum ungum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.8.2007 | 09:53
Af hverju gera ekki allir bara hreint fyrir sínum dyrum í orðsins fyllstu? Nú eða beita sektum?
Í blaði allra landsmanna í dag er enn verið að tala um sóðaskap og illa umgengni í borginni okkar. Borgaryfirvöldum og Lögreglu er kennt um allan ósómann. Jú veitingamenn fá líka að heyra það svo og hinn almenni borgari. Við hér í stórborginni rekum 100 manna útiveitingastað og eigum í engum vandræðum með að halda öllu í horfinu. Starfsmenn okkar eru skyldugir til að hreinsa gangstétt og götuna sem tilheyrir okkar umdæmi um leið og fyrsti maður mætir á svæðið. Þetta á við allt árið umkring ekki einungis um háannatímann.
Allt í kring um okkur eru pöbbar og búllur sem opnar eru langt fram á nótt. Auðvitað geta veitingamenn ekki fylgst með öllum sem fara út með glös en hér eru ruslafötur á hverju horni og snemma á morgnanna koma hér götusóparar og vinna við að þrífa allan daginn.
Sem gestur í mínu heimalandi sá ég hversu hræðileg umgengnin er í borginni okkar. En halló! Eftir reykingabannið settu nokkur veitingahús út borð og stóla og á þeim var öskubakki, bara svona venjulegur með engu loki. Virkar auðvitað rosalega vel heima í norðangarranum! Hvað eru veitingamenn að hugsa? Ég sem reykingamanneskja fór á nokkra vel þekkta matstaði í borginni og tveir af þeim voru ekki með nein ílát fyrir stubbana. Á einum slíkum stað fór fólk í skjól fyrir hornið á staðnum og var búið að gera einhverskonar plastþil til varnar vindum og regni. Engin ílát fyrir stubba, nei þarna var rennusteinninn sem virtist hafa verið skóflað frá hellunum yfirfullur af stubbum. Hreint úr sagt ógeðslegt. Þarna kenni ég um hugsunarleysi eigenda veitingarstaðarins. Hvernig væri að setja reglur um þetta og sekta síðan bara viðkomandi ef ekki er farið eftir þeim.
Í London getur þú átt það á hættu að verða sektuð út á götu af lögreglu, ef það sést til þín henda rusli á gangstétt eða götu. Er þetta ekki eina ráðið þarna heima. Sektið bara næturhrafnanna fyrir utan barina svo og líka um miðjan daginn, þá held ég að fólk fyrst fari að hugsa. Hver vill missa 1.000.- krónur í ríkiskassann þegar farið er út í búð eða að skemmta sér?
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2007 | 19:49
Ekkert sjálfsagðara frú mín góð, en þú verður að borga 1.200.- fyrir egg-fried rice.
Þetta sagði stimamjúki eigandinn að Kínamúrnum við mig þegar ég og minn elskulegi ætluðum að fá okkur smá snarl þegar við vorum heima síðast. Við vorum líka forvitin að sjá hvernig þeir hefðu breytt gamla góða Naustinu. Ég gapti af forundran og hváði framan í Kínverjann sem bliknaði ekki einu sinni heldur hélt þessu frosna smeðjulega brosi sínu. Við höfðum pantað okkur tvo rétti þar sem hrísgrjón fylgdu með. Mig langaði í steikt hrísgrjón með eggi og spurði hvort ekki væri hægt að fá annan réttinn þannig. Jú,jú en ég varð að borga 1.200.- fyrir herlegheitin. Ég afþakkaði pent og trúði varla því sem ég hafði heyrt. Hvað kosta eiginlega eggin á Íslandi? Er ekki í lagi með þetta lið þarna heima. Maturinn kom eftir nokkra bið og var óætur. Ég hef aldrei fengið jafn vondan ,,Kína-mat" á ævinni. Þetta var eins og á römmustu búllu í China Town. OJ bara!
Ég las grein um daginn þar sem Steingrímur Sigurgeirsson skrifaði umsögn um staðinn. Við erum held ég sammála alla vega í stórum dráttum. Það sem áður var sögufrægur staður skartar plastþyljum innandyra og Kínaprjáli, OK, það eru engir drekar, ja jú nema utandyra. Þvílík smekkleysa!
Þetta atvik kom upp í huga minn um daginn þegar við hjónin brugðum okkur af bæ og fórum á einn besta Tælenska veitingastað borgarinnar. Við ákváðum að hafa þetta reglulega huggulegt kvöld. Byrjað var á því að fá sér glas af freyðivíni, síðan kom 8 rétta máltíð, hver rétturinn öðrum betri, rauðvínsglas og vatn. Þetta kostaði sömu upphæð og ógeðið á Kínamúrnum. Nota bene ég fékk egg-fried rice og borgaði 240.- krónur íslenskar fyrir það aukalega!
27.8.2007 | 11:24
Enn um afmælisbörn mánaðarins
Ég er búin að missa af þvílíkum veislum undanfarna daga heima á Fróni. Æ, æ,æ, þvílík óheppni. Helgi minn Gíslason listamaður, sextugur 24 ágúst. Jæja vinur minn bara kominn í hóp ,,eldri manna" Til hamingju með það! Í gær átti síðan mágkona mín Björk Jónsdóttir söngkona afmæli og í dag er það Arnór Kári Egilsson og á morgunn Helgi mágur minn. Það er ekkert smá hvað ágústmánuður er vinsæll sem fæðingardagur meðal vina okkar og ættmenna.
Við höfum verið með ykkur öllum í huganum og óskum ykkur alls hins besta og skemmtið ykkur vel.
27.8.2007 | 10:16
Seiðmagnaðir tónleikar Sverris Guðjónssonar í Listasetrinu.
Það var gaman að fylgjast með viðbrögðum gesta okkar hér á laugardaginn þegar Sverrir leiddi alla niður að uppsprettubrunninum í Leifsbúð og hóf að kyrja þar undir bjölluhljóm, trumbuslögum og flöktandi kertaljósum. Einum gesta okkar var svo mikið um að hún lét sig hverfa, aðrir stóðu með gæsahúð og þögulir eins og grjótið í kringum okkur. Frábær stemmning að flestra mati.
Sverrir og Elín Edda eru búin að vera hér í Listasetrinu Leifsbúð í fimm vikur og var þetta kveðjuhóf haldið þeim til heiðurs þar sem þau fóru til Berlínar í gær á leið heim til Íslands. Elín Edda sýndi nokkur af verkum sínum sem hún hefur verið að vinna að hér. Síðan kom að Sverri að halda litla tónleika. Hann byrjaði að syngja upp á svölunum en færði sig síðar niður til áheyranda og leiddi þá með tilþrifum niður að brunninum. Tilþrifamikil uppákoma, sumir komu ekki upp orði fyrr en löngu eftir að tónleikunum lauk og sitt sýndist hverjum.
Það var ótrúlega skemmtilegt að hafa þau hjón hér þessar vikur og við nutum góðra samverustunda. Leifsbúð og við hér að Stjörnusteini hlökkum til að fá ykkur aftur fljótlega. En nú fer Erró í megrun. Ekkert ofdekur lengur. Aumingja hundurinn, hann saknar ykkar rosalega.
Takk fyrir skemmtilegan tíma frábæru hjón og vinir!
24.8.2007 | 11:05
Með afmælisgjöfina í eftirdragi frá Þýskalandi.
Til hamingju með daginn minn elskulegi! Nú var ég heppin, þarf ekkert að pæla í afmælisgjöf til þín þar sem þú valdir leikfangið sjálfur og ert núna á leið heim með það í eftirdragi. Forláta Rolls Royce Silver ´68 módel. Þú varst ekki lítið kátur með drossíuna þegar ég heyrði í þér í morgun svo ég bara gleðst með þér í huganum og hlakka til að fá þig heim í eftirmiðdaginn.
Ég verð nú að viðurkenna að ég er dálítið spennt að bera þetta leikfang þitt augum. Er víst eitthvað júnik kerra með mahóní bar í aftursætinu. Eins gott að borgarstjórinn komist ekki í hann! Við yrðum örugglega sett í bann.
Hér bíður eftir þér Íslenskur humar og kampavín en keyrðu samt varlega elsku vinur.
23.8.2007 | 11:43
Kampavínsdrykkja að morgni dags.
Var rétt að klára að senda afmælisbörnum dagsins kveðjur þegar bankað var hér á eldhúsdyrnar og okkur boðið út í Leifsbúð til að fagna afmæli Elínar Eddu en hún á afmæli í dag eins og svo margir aðrir merkir landar okkar. Kampavín og konfekt er ekki amalegt svona í morgunsárið.
Ætlunin er að halda áfram gleði hér þegar líða tekur á daginn að mínum elskulega fjarstöddum en hann brá sér bæjarleið til Þýskalands.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frá og með deginum í dag hefst mikil afmælishátíð hjá fjölskyldunni sem stendur yfir í heila viku. Egill minn til hamingju með daginn! Soffa mín og Steini til hamingju með daginn!
Leitt að geta ekki verið með ykkur þarna heima í kræsingum Sigrúnar og Soffu minnar. Við sendum ykkur hlýjar kveðjur og njótið dagsins í góðum hópi fjölskyldu og vina.
22.8.2007 | 09:04
Tveir stórlaxar takast á.
Til hamingju með ,,30 pundarann" Bubbi minn. Mikið hefði okkur þótt gaman að vera tvær fiskiflugur fyrir ofan þig og fylgjast með átökunum. Ég sé þið alveg í anda þar sem þú hefur barist eins og hetja við ferlíkið. Einhver góð vísa hefur þá hrokkið út úr þér ef ég þekki þig rétt. Örugglega ekki verið gert með þegjandi þögninni.
Hér er enn heitt á könnunni ef þú er í nágrenninu. Góðar kveðjur frá okkur héðan úr sveitinni í Tékkó.
![]() |
Bubbi Morthens í átökum við stórlax |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2007 | 11:10
Hefði átt að bjóða í leðjuslagspartý.....
...í staðin fyrir að pirrast útí alla þessa drullu sem enn er verið að þrífa af veröndinni og sést varla högg á. Þetta hefði verið rosalegt partý, allir að velta sér uppúr drullunni og ég um leið losnað við helling af skít sem núna er verið að skófla uppí hjólbörur. Já maður er stundum gáfaður eftir á.
Ojæja, ætli vinir mínir hefðu mætt á svæðið, ég býst nú ekki við því og dálagleg saga til næsta bæjar,,Nú eru þau alveg búin að missa það!" hefði fólk sagt og ranghvolft augunum í hneykslan.
En allt tekur þetta enda og ég býst við að hreinsun verði lokið á morgun. Ég verð bara að halda KJ á meðan og vona að við fáum ekki úrhelli í kvöld, en spáin er STORMUR og þá býð ég ekki upp á afleiðingarnar. Þrátt fyrir að við séum búin að gera ráðstafanir þá þarf miklu meira til, því við erum búin að komast að því að öll þessi drulla kom ekki frá lóðinni okkar heldur frá akrinum hér fyrir ofan. Nú bíðum við eftir höfðingjunum frá Sterberg til að græja þetta með okkur.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2007 | 10:32
Menningarnótt haldin í fámennum en góðum hópi hér heima.
Elín Edda breiddi hér úr verkum sínum á veröndinni undir tónlist úr Þorlákstíðum á menningarnótt. Þar sem farið var að kvölda var þetta áhrifamikið undir samspili flöktandi kertaljósa og hugnæmri tónlist.
Elín Edda er búin að vinna að þessum verkum hér í Leifsbúð undanfarnar vikur og verður gaman að sjá þessa uppfærslu heima þar sem þetta er einhverskonar óður til trúariðkunar í gegnum aldirnar. Klukkur, krossar og kuflar eru þar mest áberandi.
Sverrir Guðjónsson heldur síðan konsert og stuttan fyrirlestur á laugardaginn í Listasetrinu og verður sagt frá því síðar.
20.8.2007 | 08:03
Erum hér í djúpum skít í orðsins fyllstu merkingu.
Veðurguðirnir röskuðu svefnró okkar í nótt þar sem úti geisaði stormur með eldi og brennistein. Drulluleðjan fossaði hér yfir útieldhúsið frá efri lóðinni og veröndin var eins og stöðuvatn. Eins og við mátti búast flæddi inn í eldhúsið en sem betur fer fór rafmagnið ekki af svo við gátum hamið vatnsflauminn með vatnsugunni. En geðslegt var þetta ekki því í þetta sinn fengum við leðjuna inn en ekki hreint bergvatn eins og síðast.
Núna liggur leðjan eins og 3ja sm þykkt teppi yfir 200 fm veröndinni. Ég er ekki farin að fara út til þess að athuga skemmdir en verð að sækja í mig kjark, því nú þarf virkilega að taka til hendinni. Það er engin spurning að við verðum að gera einhverjar róttækar breytingar á efri lóðinni því þetta er í fjórða sinn sem flæðir inn á okkur á þessu ári. En lán í óláni, við höfum alltaf verið heima þegar hamfarirnar hafa skollið á okkur og þ.a.l. getar haldið vatsflauminum í skefjum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2007 | 07:12
Hvaða bull er þetta!
Það er aldeilis þjarmað að þeim systrum þessa dagana. Önnur má ekki reykja í friði og hin má ekki tala við svartengla eða þá sem eru aðeins ljósari. En það er nú þetta með bláa blóðið, það lið á að vera til fyrirmyndar fyrir okkur almúgann. Ekki man ég eftir að Danir gerðu mikið veður af reykingum Margarete drottningar. Ég sá einu sinni til hennar reykja við opnun á málverkasýningu og þjónn gekk á eftir henni með öskubakkann. Hvað segðu norðmenn þá ?
Vonandi fá þær systur að lifa sínu lífi í friði fyrir papparössum, reykja að vild og halda sambandi við okkur æðri verur í framtíðinni.
![]() |
Mette-Marit krónprinsessa átalin fyrir reykingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)