Færsluflokkur: Bloggar

Enginn veit sína æfi fyrr en öll er

Skemmtileg grein eftir Orra í Mbl. í dag.  Við tönglumst oft á því að aldur sé afstæður, þá sérstaklega fólk á mínum aldri.  Og það er jú orð að sönnu alla vega þegar heilsan er góð og við í góðu jafnvægi.

Fyrir nokkrum mánuðum skrifaði ég svipaðar hugleiðingar og hvort við sem nú erum komin yfir miðjan aldur kæmum til með að sætta okkur við soðninguna á elliheimilum.  Eða hlusta á Hvíta Máva með Helenu okkar Eyjólfs.  Nei ætli það, ég held að mín kynslóð komi til með að rísa upp á afturfæturna og heimti sitt sushi og hvítvín í hádeginu.

Reyndar þarf nú ekki mína kynslóð til að kvarta þar sem tengdafaðir minn dvelur á Eir en móðir mín er nú svo heppin að búa í sinni íbúð á Skúlagötu 20 en getur fengið mat út í næsta húsi.  Þau kvarta bæði yfir bragðlausum mat og það sé ekkert fútt á þessum heimilum, en þau eru af þeirri kynslóð sem láta þetta bara gott heita kvarta ekki mikið nema bara svona sín á milli.

Ætli mín kynslóð verði líka þannig með árunum, ætli við komum til með að taka öllu þegjandi og hljóðalaust, nei ég held og vona ekki.

En því miður er það oft að ellilífeyrisþegar verða að sætta sig við örlög sín, hvort sem þeim líkar betur eða ver þá sérstaklega þegar heilsan brestur.

Þegar móðuramma mín sem þjónaði ríkisstjórninni okkar í 20 ár eða frá árunum 1948 - 1968 lét af störfum átti hún enga í búð enda alltaf búið á vegum ríkisins sem húsfrú. Bjarni Benediktsson heitinn útvegaði henni þá herbergi á Hrafnistu sem hún þáði með þökkum.  Eftir það fór aðeins að halla undan fæti hjá henni og hún sem alltaf var svo kát og hress fór að fá heilablóðföll hvað ofan í annað.  Eftir eitt kastið sagði hún við móður mína að hún vildi alls ekki láta planta sér inn á sjúkradeildina á Hrafnistu.  Eitthvað hafði hún á móti þeirri deild en því miður fór svo að þegar hún fékk þriðja blóðfallið var ekki aftur snúið og hún var lögð inn á deildina og var þar rúmliggjandi í 10 ár.

Enginn viss hvort hún skynjaði hvar hún var en ég held samt að svo hafi verið.  Grátköstin og svipurinn sagði meir en nokkur orð.  Stundum átti hún góða daga og það var eiginlega bara þegar karlmenn heimsóttu hana, þá lék hún við hvern sinn fingur, hló og augun ljómuðu.  Blessuð sé minning ömmu minnar góðu.

Þannig er nú það, við vitum ekki hvar við komum til með að enda eða hvort heilsa og lífskraftur fylgi okkur fram á grafarbakkann.  Það besta sem við getum gert er að reyna að lifa í núinu og njóta lífsins á meðan við getum.  Elska hvort annað og bera umhyggju fyrir náunganum.

Ég ætla samt að rokka og róla og borða góðan mat og njóta góðra veiga í ellinni.  Hvar það verður veit ég ekki en það verður fjör þar sem ég verð.  Lofa því. 

Allir velkomnir á draumastaðinn minn.  Læt ykkur vita þegar nær dregur hvar hann verður. Aerobics 

 

 


mbl.is Húðflúr, sushi og bikinivax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumir geta ekki sofið fyrir fuglasöng..

 ..og þar á ég við minn elskulega.  Um leið og fuglarnir vakna er minn kominn á ról og kvartar óspart um þennan bölvaða hávaða frá fuglunum.  Annars er þetta nú meira sagt í gríni en alvöru.   

Af hverju er fólk að væla þetta. Það velur þetta sjálft ,að búa í miðborginni. Annars hélt ég nú að fólk sem byggi ,hvort sem það nú er við umferðagötu eða við skemmtistaði vendist því að sofa við hávaða. Ef þetta er svona bagalegt á það bara að flytja í rólegra hverfi.

Við gistum stundum í Lækjargötunni þegar við komum heim og ég verð að viðurkenna að það tók mig yfirleitt tvær til þrjár nætur að venjast hávaðanum frá götunni. Annað sem ég tók eftir var bölvað gargið í Mávunum sem sóttu í afganga næturinnar í húsaportum.  Það fannst mér miklu meira pirrandi en búmm,búmm,búmm frá diskótekunum.  Ætlar enginn að súa mávagreyin?  Þeir fylgja líka borgum og bæjum við sjó.  Einkennilegt að væla svona endalaust.

Hér í sveitinni okkar er svo mikil kyrrð á nóttunni að það mætti heyra saumnál detta og sumir gestir okkar hafa ekki getað sofið fyrstu næturnar vegna kyrrðarinnar enda það fólk vant að sofa við ys og þys stórborgar.

Eitt sinn komu hingað góðar vinkonur mínar og ég ákvað, vegna þess að við ætluðum aðeins út á lífið eitt kvöldið að gista í íbúð sem við eigum og staðsett er fyrir ofan veitingastaðinn okkar.  Sem sagt í hjarta borgarinnar.  

Ætli klukkan hafi ekki verið um eittleitið þegar við kvöddumst og ég hélt upp í íbúð.   Hávaðinn var svo mikill frá götulífinu að mér varð ekki svefnsamt um nóttina.  OK hvað átti ég til bragðs að taka, súa minn eigin veitingastað eða borgina?  Eftir að hafa velt mér fram og til baka í rúminu fór ég fram úr og tók mig til og endurskipulagði íbúðina.  Færði til sófa, stóla, borð og hillur og dundaði í þessu fram undir morgun. Hugsa að ég hafi nú ekki verið beint vinsæl af nágrönnum eftir þetta brambolt mitt og hefði sjálfsagt mátt búast við skömmum og svívyrðingum daginn eftir en ég var fljót að láta mig hverfa úr húsinu strax þegar birta tók.

Hef reyndar ekki lagt í að sofa aftur þarna niðurfrá.  Elska kyrrðina í sveitinni minni..  


mbl.is Hávaðinn óþolandi að sögn íbúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hahahaha.....

Málið leyst!  Fótsporin reyndust vera eftir HROSS!!

Ja hérna ekkert fútt í þessu lengur!

Allar Karenar geta nú aftur látið sjá sig utandyra og þurfa ekkert að óttast lengur.

Heimavarnaliðið getur farið heim að grilla.

Það ætla ég alla vega að fara að gera núna enda von á góðum gestum í kvöldmat. Weekend BBQ 

 

 


mbl.is Hálendisbjörn trúlega hross
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjössi litli lætur ekki gabba sig

Nú æsast leikar.  Á meðan Bjössi litli spókar sig um á Hveravöllum og nýtur fegurðar landsins fer heimavarnaliðið á stúfana og heldur til fjalla í von um að komast í fótspor Bangsa.

Komið hefur í ljós við rannsókn málsins að nafnið Karen þýðir ,,hin hreina"  nefnd hefur verið sett í málið til að fá botn í  hvernig nafnið tengist Hvítabirninum.  Það eina sem nefndin hefur komið sér saman um er að hvítt tengist jú hreinu og tæru.  Nefndin situr nú og fundar um málið.

Á meðan sprangar heimavarnaliðið um hálendið í von um að verða varir við einhver ummerki Bjössa.

Bjössi er fullkomlega meðvitaður um þá hættu sem stafar af þessum mörgu tvífætlingum og heldur sig til hlés. 

Ferðamennirnir sem töldu sig hafa séð spor eftir Bjössa voru sýnd spor hesta, gæsa og þúfutittlinga en þeir standa enn við framburð sinn og segjast þekkja þessi spor frá heimalandi sínu. 

Kemst heimavarnaliðið á sporið?

Er Bjössi særður eða veikur þarna uppi á reiginfjöllum eða er e.t.v. bara enginn Hvítabjörn þarna á ferð?

Verður leitinni hætt?

Allt getur gerst!  Alltaf eykst spennan!  Backpacker 

 

 


mbl.is Leit að hálendisbirni heldur áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er orðið svo hrikalega spennó

Ætli draumur Sævars bónda á Hrauni sé að koma fram?

Heitir annar ferðamaðurinn Karen?  Það nafn finnst örugglega í Pólskum mannanöfnum.

Maður getur bara ekki sofið dúr í nótt, spenningurinn magnast með hverri klukkustundinni.

Ætli sé búið að láta Dani vita?  Ætli þeir sendi sama gæjann?  Varla,  var hann ekki svo huglaus að hann þorði ekki út úr bílnum þegar hann kom á vettvang.

Kalla bara út heimavarnaliðið strax!  Ekkert hangs núna, Björninn gengur laus og Birnir eru stórhættulegir, já alla vega sumir hverjir.  

  Hvar leynist ófögnuðurinn?  Spor finnast!  Hver fangar Bjössa?  Kemur Karen til hjálpar?

Úff þetta er hið dularfyllsta mál.  Framhald í næsta þætti.  Sherlock Polar Bear 


mbl.is Þriðji björninn á Hveravöllum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf verður eitthvað einhverntíma fyrst

Í gærkvöldi má segja að brotið hafi verið blað í sögunni þar sem í fyrsta skipti var haldin sameiginleg þjóðhátíð átta landa hér í Prag.  Danmörk, Noregur, Svíþjóð, Finnland, Ísland, Eistland, Lettland og Litháen tóku sig saman og ákváðu að nú skildi halda sameiginlega sumarhátíð og var dagurinn 18. júní ákveðinn með það í huga að hægt væri að halda samkomuna undir berum himni.

Þessi hugmynd kom upp einhvern tíma þegar tveir sendiherrar voru að tala um hversu ótækt það væri að halda stórar móttökur á þjóðhátíðardag þjóðanna. Allar þjóðir eru með nokkurn vegin sama boðslista svo þessi hugmynd var alls ekki galin.  Margar þjóðir hafa hætt við þessar stóru móttökur þar á meðal við Íslendingar vegna hins gífurlega kostnaðar sem slík boð hafa í för með sér. 

Að sjálfsögðu þarf að undirbúa svona samkvæmi með löngum fyrirvara en þegar átta lönd sameinast verður verkið léttara. 

 Boðið í gær var haldið í garðinum við Kampa Museum og við áætlum að milli sex og sjö hundruð manns hafi glaðst með okkur þarna í gærkvöldi. Það var söguleg stund að sjá alla Sendiherra ríkjanna og General Consul Íslands standa þarna í handabandamóttökunni.  Þau stóðu undir fánum landanna og voru stórglæsileg. 

 Sendiherra Svía setti hátíðina og síðan hélt prodokolmeistari Tékkneska utanríkisráðuneytisins stutta tölu þar sem hann lýsti ánægju sinni með þetta framtak okkar.  Annars voru allar ræður afþakkaðar. Okkar eina og sanna Diddú söng síðan nokkur lög á íslensku, sænsku og norsku þar sem við vorum svo heppin að hún var hér á söngferðalagi.  Takk fyrir það Diddú mín og Steinunn.

Veislugestir nutu sumarblíðunnar og mikil og góð stemmning myndast þegar líða tók á kvöldið.

Við sem stóðum að þessari hátíð vorum sammála um að slíkar sameiginlegar móttökur kæmu til með að vera.  Ekki nokkur spurning og þætti okkur ekki ólíklegt að fleiri þjóðir tækju upp þennan sið í náinni framtíð. 

  Iceland  Denmark  Norway  Sweden  Finland  Estonia  Latvia  Lithuania 

 

 


Diddú söng sig inn í hjörtu allra hér í kvöld

Hvað er hægt að hugsa sér betri Íslandskynningu en að fá okkar ástsælu sópran söngkonu til að halda uppi tónleikum á þjóðhátíðardaginn okkar!  Diddú var perla okkar hér í kvöld og ljósmyndarar kepptust um að mynda hana í bak og fyrir eftir stórkostlega tónleika hér í Rudolfinum.

Divan okkar var númer eitt og ekki spillti undirleikari hennar hún Steinunn Birna Ragnarsdóttir.  Þær stöllur komu fram hér í kvöld á sameiginlegum tónleikum Tyrkja og Íslendinga.  Öllum fyrirmönnum þjóðarinnar var boðið og salurinn var þétt setinn bæði uppi og niðri. 

 Tyrkir byrjuðu konsertinn og komu þar fram ágætlega frambærilegir tónlistamenn, flautuleikari sem ég kunni nú ekki alveg að meta enda var tónlistin afskaplega Tyrknesk en síðan kom mjög svo frambærilegur píanisti sem skilaði vel Mozart.

Eftir hlé kom að okkur Íslendingum og stigum við hjón saman á svið og buðum gesti velkomna og sögðum lítileiga frá því að nú væri haldinn þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga.  Síðan kynntum við þær stöllur Diddú og Steinunni og óskuðum fólki góðrar skemmtunar.

Steinunn Birna byrjaði á því að spila verk eftir Dvorsák og síðan sigldi okkar eina og sanna sópransöngkona inn á sviðið.  Diddú byrjaði á því að syngja nokkur nokkur Íslensk lög og í lokin tók hún með hljómsveitinni aríu úr LaTraviata

Við áttum kvöldið!  Eftir tónleikana buðum við um 80 manns til smá samsætis í forsetasalnum þar sem fólki gafst kostur á að hitta listamennina.  Það fór ekkert á milli mála við stóðum með pálmann í höndunum  í kvöld!

Takk elsku Diddú mín og þakka þér fyrir að tileinka mér eitt lagið á tónleikunum.  Við erum báðar svo elskar Halldóri okkar Laxness enda varstu bara smá písl þegar við hittumst fyrst í Brekkukotinu.

 

   

 


Gleðilega hátíð góðir landsmenn nær og fjær

Hæ hó Jibbí jey!  Hér brosir sólin og allir eru í þjóðhátíðarskapi. Ja eða svo held ég hef nú ekki séð neinn nema hundinn hér í morgun.  Minn elskulegi löngu farinn að undirbúa daginn niðrí Prag. 

Hátíðahöldin byrja hér ekki fyrr en í kvöld en þá heldur okkar eina og sanna Diddú konsert hér í Rudolfinum tónleikahöllinni.  Á morgun verður síðan haldið rækilega upp á daginn en ég segi ykkur frá því seinna.  

 Sendum ykkur öllum, fjölskyldu, vinum og öðrum landsmönnum hvar sem þið eruð stödd í heiminum okkar bestu kveðjur í tilefni dagsins. Vonanadi skín sólin líka á ykkur í dag og allir í góðum þjóðhátíðarfíling til bæja og sveita. Iceland  


Allt að verða hið dularfyllsta mál.

 Polar Bear Elskurnar mínar ekki skjóta bangsa en ef þið komist ekki hjá því þá bið ég ykkur að setja ekki fleiri hryllingsmyndir í fjölmiðla landsins.  Þetta berst svo fljótt yfir hafið og við hér fengum slatta af skömmum frá Tékkum sem fannst við haga okkur ansi bjánalega í viðureigninni við síðasta gest okkar frá Grænlandi.  Hum ég sægi þá nú mæta skógarbirni hér, ætli þeir hefðu ekki gripið til byssu ég er nú ansi hrædd um það.

Nú getum við átt von á fleiri Bangsimonum í heimsókn á næstunni, ja alla vega ef mark er takandi á draumi Sævars bónda á Hrauni í Skagafirði þar sem hann sá í draumi þrjá bangsa á göngu.  Þetta er að verða allt hið dularfyllsta mál.  Síðan kemur frétt um að báðar stúlkurnar sem fyrstar urðu varar við Bangsimonana heita báðar því fallega nafni Karen.  Svo nú bíðum við spennt hvaða Karen kemur til með að sjá þann þriðja á vappi.

En svona án gríns, ekki drepa Bangsimon nema í neyð.    


mbl.is Reynt að ná birninum lifandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gömul ísvél og gullhringar á fingur

 Love Forever Fyrir nákvæmlega 34 árum vaknaði ungur maður við hlið kærustu sinnar sem enn svaf vært.  Hann fór varlega fram úr rúminu, klæddi sig hljóðlega, smellti koss á kinn sinnar elskulegu og hvarf út um útidyrnar.  Settist inn í gamlan gulan Volkswagen og keyrði sem leið lá úr Breiðholtinu og niður í bæ. 

Nú skildi fjárfesta í ísvél, ekki nýrri enda fjárhagurinn ekki bæsinn en kæmi sér vel á veitingastaðnum þar sem 17. júni var á næsta leiti og uppgripsdagur fyrir veitingamenn.

Upp í leiguíbúðinni í Dvergabakkanum vaknaði unnustan og brosti framan í heiminn.  Í dag var dagurinn þeirra.  15. júní 1974.  Þetta var mildur sumardagur, smá skýjað en það gerði ekkert til bara að hann færi nú ekki að rigna.  Unga konan klæddi sig og og gjóaði augunum á kjólinn sem hékk á herðatré á fataskápnum.  Fallegur síður kjóll, ekki hvítur heldur í mörgum fallegum pastellitum vegna þess að kona var ekki einsömul og það þótti ekki við hæfi að ganga í það heilaga þó aðeins þrír mánuðir væru liðnir á meðgönguna.  En áður en hún ætlaði að klæðast þessum kjól var haldið til hárgreiðsludömu í næsta nágrenni.  Í þá daga var ekki mikið um að farið væri í handsnyrtingu, ljósabekki eða förðun, nei bara það allra nauðsynlegasta var látið duga.

Um tvö leitið byrtist brúðguminn aftur heima með brúðarvöndinn sem hann hafði náð í á heimleiðinni. Var þá búinn að tengja ísvélina og íshræran komin á sinn stað svo nú færu seðlarnir að halast inn.  Brúðurin var komin í kjólinn og var að maskara á sér augun og setja punktinn yfir Iið. 

Man nú ekki alveg um hvað var rætt en örugglega var það ísvélin góða sem var enn hápunktur dagsins. Brúðguminn skveraði sig í sturtu og klæddi sig í smókinginn og um hálf þrjúleitið héldu brúðhjónin saman til kirkjunnar.  Man eftir að mér var oft litið til himins á leiðinni var svolítið hrædd um að hann færi að rigna og það mátti bara alls ekki.

Þegar við stigum út úr bílnum við litlu Árbæjarkirkjuna tóku á móti okkur fámenn fjölskylda og presturinn Sr. Halldór Gröndal.  Það hvessti skyndilega svo brúðurin var í vandræðum með að halda þunnum siffonkjólnum í skorðum.  En í miðri athöfn fór sólin að skína og geislarnir þrengdu sér inn um litla kirkjugluggana.   

Það er oft sagt að hjónabandið þróist eins og veðurfar brúðkaupsdagsins.  Sumir vilja halda því fram að þetta séu eintómar kerlingabækur en ef ég á að vera hreinskilin þá held ég að okkar hjónaband hafi mótast dálítið eins og veðrið þennan dag.  Það hefur verið ansi vindasamt á stundum en nú í dag skín bara sólin.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband