Jólaþankar hvutta - allt á hvolfi

Þetta er ekki alveg í lagi!  Nú er búið að planta einhverju heljarins jólatré þar sem ég sef yfirleitt helmings nætur.  Hvað er að þessu fólki, nú spyr ég bara eins og ómálga dýr. Hverslags frekja er þetta!   Ég er búinn að reyna í allt kvöld að finna mér nýjan stað en þetta er ekki alveg að gera sig hér núna á þessu heimili. Þau bara sitja hér við kertaljós og hafa það huggulegt með glymjandi jólalög, sem ég kann nú ekkert að meta og segja mér að fara í körfuna mína.

 Japp, hún er svo sem nógu flott,rosalega jólaleg með rauðu plussi og einhverjum kodda sem ég tek nú alltaf og hendi á gólfið.  Hann er víst rosalega jólajóla en ég kann ekkert að meta þetta dúlludangl.  Vil bara mína körfu eins og hún hefur verið undanfarið ár. Ummm... góð lykt af mér. talandi um lykt þá var ég settur í bað og fóstra mín lét mig fá allsherjar jólakilippingu og ekki bara það, fóstra mín úðaði einhverri ilmlykt á mig sem hún keypti einhverstaðar í útlöndum svo nú lykta ég eins og... , ja ég segi ekki meir.  Þetta jólastand er eiginlega alveg að fara með mig en nú skal ég segja ykkur nokkuð, ég veit að ég á sokk hjá arninum og hann er fullur af nammi, en auðvitað fæ ég ekki að smakka á því fyrr en á aðfangadag.  En þetta skrauttré sem er að þvælast fyrir mér núna úff er ekki alveg að meika það en  OK, það leynast einn ef ekki tveir pakkar undir því handa mér á aðfangadagskvöld því ég hef aldrei verið skilinn útundan.  Svo ég fyrirgef fóstru minni og ætla að reyna að vera þægur næstu daga vegna þess að ég á von á fullt glaðning. 

 

    


Jólaskaup Orkuveitunnar

Allgjör snilld!  Starfsfólk með húmorinn í lagi.  Þeir sem ekki hafa kíkt á myndbandið ættu að gera það hið snarasta.  Lífgar upp á svartasta skammdegið og kemur öllum í gott skap.  Ætli þau verði fengin til að troða upp í Áramótaskaupinu?  Það mætti alveg borga fyrir svona skemmtilegheit!

 


mbl.is „Rei, rei, ekki um jólin"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,Jólaballinu" fer nú senn að ljúka

Var aðkoma inn úr frostkaldri nóttinni eftir að hafa verið með mínum elskulega í næst síðasta jólapartýi ársins 2007.  Trallallalla mikið er ég fegin að þessum jólagleðskap fer að ljúka og við getum bara sest niður og ,,chillað" hér heima í kotinu okkar.  Annars var þetta frábær veisla hjá Hollenskum vinum okkar þar sem samankomnir voru allra þjóða listamenn, frægir sem og minna frægir. 

Því miður misstum við af því að hlusta á nokkrar af mínum kunningjakonum, sem komu saman í kvöld og gengu um miðborgina og sungu jólalög. Þær komu við á Restaurant Reykjavík og sungu fyrir gesti og gangandi en við sendum þjónana okkar út á götu sem færðu þeim heitt jólaglögg frá okkur sem var víst vel þegið þar sem frostkuldinn var farinn að herja á beinin.


Vinkonan gat ómögulega munað hvar hún hefði gift sig!

Var þetta jólastress eða hvað?   Í snarvitlausu veðri hittust vinkonur mínar í Langholtskirkju þar sem tónleikar voru haldnir til minnangar Sturlu Erlendssonar sem lést fyrir tæpu ári síðan. Búið var að kaupa miða og fram að síðustu stundu var beðið eftir einni okkar sem, ja ef satt skal segja, er iðulega ansi róleg í tíðinni. Þar sem ekkert bólaði á minni héldu þær að hún hefði bara ekki treyst sér út í veðrið og ákveðið að halda sig heima en svo var nú aldeilis ekki raunin.

Eftir tónleikana var ákveðið að fara á kaffihús og spjalla aðeins saman.  Þegar þær vinkonurnar, sem höfðu notið frábærra tónleika Fóstbræðra, mættu á kaffihúsið situr ekki mín bara þar og er ansi kindarleg á svip.  Hún hafði bara alls ekki munað hvort hún hefði gift sig í Langholtskirkju eða Áskirkju fyrir 36 eða -7 árum!Undecided   Það skal tekið fram að þessi vinkona okkar er fædd og uppalin í Reykjavík.LoL

Þegar hún kom að Langholtskirkju en vinkonurnar voru búnar að segja henni að tónleikarnir væru í kirkjunni sem hún hefði gift sig í, fannst henni ekkert kunnuglegt við umhverfið enda hefur mikið verið lagað í kring um kirkjuna síðan 1969.  Og eins og hún tók til orða: ,, það voru svo margir bílar á bílastæðinu svo hún sá ekki almennilega hvort hún væri á réttum stað".  Hún ákvað með sjálfri sér að þetta gæti ekki verið rétta kirkjan og hélt að Áskirkju en þá kannaðist hún heldur ekkert við að hafa gift sig þarPinch

Þetta held ég að sé hámark jólastressins!  Því við hinar vinkonurnar neitum því alfarið að þetta sé ,,old timer" við erum ekki svo gamla eða kalkaðar að muna ekki hvar við giftum okkur þó árin séu orðin ansi mörg.Whistling

  


Litla jólatréð sem lenti í hrakkningum

Ég er litla jólatréð sem á ættir mínar að rekja til Riga alla daga síðan á 16. öld.  Síðan lágu leiðir ,,fortrjáa" minna til Dresden á 19.öld en það var ekki fyrr en á 19. öldinni að við komum til Íslands með Dönum. Ég hef borið mín börr hér í Tékklandi þar til fyrir stuttu að menn komu með axir og tól og hjuggu mig niður og hentu mér upp á pallbíl og brunuðu með mig til borgarinnar.

Það fór ekkert sérlega vel um mig þarna á leiðinni innan um önnur tré sem örlögin höfðu líka leikið grátt en við því var ekkert að gera við gátum öll hlakkað til að lenda inná góðum heimilum og verða skreytt með ljósum og glingri og notið þess að láta börn sem og fullorðna dáðst af okkur.  Ég var líka viss um að ég yrði flottast af þeim öllum því minn stofn var beinn og greinarnar lögulegar eins og hefðartré sæmir.

Eftir að hafa dúsað þarna á pallbílnum í nokkra klukkustundir var prísundin loks á enda og mér var komið fyrir á einum jólamarkaðinum.  Ekki leið á löngu þar til lítil hnáta með rauða húfu kom auga á mig innan um alla vini mína og sagði: , Mamma þarna er tréð okkar"  Móðirin kom og skoðaði mig í bak og fyrir og síðan heyrði ég að,, jú, þetta gæti gengið, ekki of stórt og yrði fallegt í króknum í stofunni"

Þar með var ég tekið og troðið í gegn um einhverja forláta vél sem vafði mig plastneti, ekki beint þægilegt en ég lét mig hafa það því nú var stundin alveg að renna upp, ég yrði flottasta og dýrasta tréð um hátíðina.

 Fjölskyldan bar mig að bílnum en þar sem ég var í stærra lagi var ómögulegt að koma mér fyrir í Skodanum svo mér var komið fyrir uppá toppi bílsins og beislað kirfilega niður eða svo hélt þessi yndælis fjölskylda.  Við vorum rétt komin út á hraðbrautina og bíllinn brunaði á þó nokkrum hraða fór að hrikta í böndunum og ég fann hvernig losnaði um þau smátt og smátt þar til festingarnar gáfu sig og ég flaug af bílnum og lenti harkalega á malbikinu.  Bíllinn með fjölskyldunni brunaði frá mér því auðvitað tóku þau ekkert eftir þessu þar sem þetta gerðist á einu augnabliki.

Þarna lá ég síðan og gat enga björg mér veitt.  Bílar þutu hjá og var mesta mildi að ekki hlaust stórslys af þar sem ég lá á miðri akreininni. Allt í einu stoppaði ökumaður og vippaði mér upp í bílinn sinn og þar með var mér bjargað frá því að enda ævi mína útí vegkanti hér í Tékklandi.  Ég eignaðist sem sagt nýja fjölskyldu sem fer örugglega vel með mig og gerir mig að fallegasta jólatrénu í þorpinu en mér er nú oft hugsað til litlu stúlkunnar með rauðu húfuna sem valdi mig í byrjun, en vona bara að hún hafi fundið eitt af fjölskyldu minni sem gleður hana um jólin. 

 


Pakkasníkir á ferð

Gott hjá Pakkasníki að kenna manninum lexíu.  Segjum svo að jólasveinarnir okkar séu ekki góðir við mannfólkið.Tounge  Skal bóka að Selfyssingurinn læsir hér eftir húsi sínu.     
mbl.is Jólapakkarnir hurfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðlenska hráa hangikjötið þótti lostæti

Í gær héldum við ,,Opið Jólahús" hér heima í sveitinni fyrir vini og kunningja.  Um förutíu manns komu og dönsuðu inn jólin með okkur.  Það myndast alltaf dálítil stemmning þegar minn elskulegi kemur með hangilærið og sker smá flís handa hverjum og einum að smakka. 

Jólaglöggið, sem við lögum á ,,okkar vísu" með Grandi og koníaki rann ljúflega niður og fólk var farið að taka undir jólalögin sem hljómuðu hér um allt hús.  Hver með sínu nefi að sjálfsögðu.

Möndluleikurinn vekur líka mikla lukku og að þessu sinni var sá heppni frá Englandi og fékk að sjálfsögðu möndlugjöf. 

 Virkileg jólastemmning hér í sveitinni og þúsundir jólaljósa hér í garðinum gerði þetta ævintýralegt fyrir marga sem skilja ekki hvernig við förum að því að setja allar þessar seríur upp fyrir hver jól.  Það var kátt fólk sem  hélt útí stjörnubjarta vetrarnóttina með yl í sálu og sinni eftir skemmtilega samverustund á aðventu. 


Celine Dion versus Bette Midler

Æ,æ ég var búin að ákveða að sjá hana næst þegar ég færi til Las Vegas ,,leikfangaborg fullorðna fólksins" Síðast þegar við vorum þar í heimsókn hjá vinum okkar var ,,black night" kvöldið sem við hefðum getað farið á tónleikana.  En fyrst hún er að fara í heimsreisu þá er ekki útilokað að hún troði upp hér í borg.  En Bette Midler er nú líka frábær listamaður og örugglega þess virði að sjá hana troða upp. Joyful
mbl.is Celine Dion hætt að skemmta í Las Vegas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin rauð, gul og græn terta á borðum í dag.

Ja hérna það eru 33 ár síðan frumburðurinn okkar fæddist.  Það segir mér líka að við eldumst sjálf ótrúlega hratt, eiginlega alltof hratt. Whistling

 Elsku Egill minn til hamingju með daginn, við kíkjum á þig seinna í dag en því miður gafst enginn tími til að baka köku, þessa rauðu, gulu og grænu með hvíta dýsæta kreminu sem þér finnst svo góð.  Lofa að redda því í næstu viku þegar jólaboðunum fer að linna.


Laufabrauðið ,,næstum" eins og hjá Leifi Breiðfjörð!

Við erum algjörir snillingar í þessari fjölskyldu og listavelgerðar laufabrauðskökur eru nú á borðum á þremur heimilum hér í Prag. Hrein listaverk.  Tounge 

Jafnvel vinur okkar Leifur Breiðfjörð, sem er algjör snillingur í útskurði á laufabrauði hefði gefið okkur alla vega 5 í einkunn.  Annars fer nú enginn í sporin hans Leifs því hann sker aðeins út erótískar kökur.  Alveg satt, þær eru geymdar frá ári til árs uppá skáp heima hjá honum og sýndar við hátíðleg tækifæri.

Ég hafði nú aldrei komið nálægt laufabrauðsbakstri fyrr en Bríet tengdadóttir kom í fjölskylduna og með henni þessi skemmtilegi norðlenski siður.  Síðan er þetta hefð hér að baka saman og skera út kökur fyrir hver jól.  Að þessu sinni vorum við heima hjá systur Bríetar, Ingunni sem tók á móti okkur á sínu litla jólalega heimili.Við skárum út ég, Egill, Bríet og Ingunn en minn elskulegi stóð í ströngu við að mynda okkur í bak og fyrir  Grin  Ekki alveg hans deild, svona dútl.  En hann steikti síðan allar kökurnar af sinni einstöku snilld og Egill pressaði síðan af fullum krafti.

Litla prinsessan hún Elma Lind var með tímasetninguna á hreinu og svaf eins og Halo og vaknaði ekki fyrr en allt var yfirstaðið svo þá gátum við gefið henni allan okkar tíma, bráðgáfuð þessi stelpa. 

Frábær fjölskyldudagur! 


Nú klikkuðu Svíar aldeilis....

....því jólasveinarnir búa enn á Íslandi og meira að segja svo tugum skiptir.  Það vitum við sem fylgjumst með fréttum og þjóðarsálinni.  Ekki aðeins jólasveinar heldur líka fullt af jólasveinkum sem afneita bleika litnum bara svo eitthvað sé nefnt. 

 Leppalúði, Grýla, Leiðindarskjóða og Bóla eru þarna einhvers staðar líka og stjórna öllum þessum skara með harðri hendi.  Það hefur ekkert breyst og mun ekki breytast.  Við höldum fast í okkar menn og engin von um að þeir finnist í Kirgistan.

Íslenski jólasveinninn verður alltaf á okkar góða landi, bara misjafnlega sjáanlegur. Wink  


mbl.is Leita að Sveinka í Kirgistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sunnudagur annar í aðventu

Í tilefni afmælis Bríetar tengdadóttur okkar var snætt á Four Season í hádeginu og litla prinsessan okkar hún Elma Lind í fyrsta skipti úti á veitingastað.  Ekki seinna vænna að venja barnið við, enda orðin sex vikna gömul. 

 Afmælisbarnið fékk þetta líka forláta kaffi, heilar tvær matskeiðar neðan í bolla, hnausþykkt, ræktað úr úrgangi katta sem ala aldur sinn á kaffiekrum, að mér skildist og auðvitað verðið eftir því.  Datt í hug að spyrja hvort gullmoli leyndist í botninum. Tounge 

 Ég og minn elskulegi  ætlum að hafa það huggulegt hér það sem eftir er dagsins og kveikja á Betlehemskerti aðventukransins og njóta þess að vera saman.  


Föstudagsþankar hvutta.

Ég er búinn að vera rosalega óþægur í tvær vikur, en það er sko ekki mér að kenna heldur eru það tvær píur hér í nágrenninu sem eru alveg að gera mig brjálaðan. InLove  Svo sætar og sexí að ég get bara engan veginn still mig um að heimsækja þær, fóstru minni til armæðu. 

Það er búið að kvarta heil ósköp yfir mér. Ég át víst í sundur girðingu hjá einum nágrannanum. Ég kannast nú ekkert við það Whistling  Í morgun náði fóstra mín í mig alla leið til Sternberg og hugsið ykkur, hún lét mig hlaupa á eftir bílnum alla leiðina heim, þvílík meðferð, ég var alveg búinn á því þegar heim kom og ekki nóg með það, síðan var ég spúlaður í bak og fyrir og ég sem hata vatn!   Ætli ég verði bara ekki sendur út á Guð og gaddinn einn daginn ef ég held þessu háttalagi áfram.  Verð víst að fara að taka mig á og hundskast til að hætta þessu flakki. Blush


Ljósin tendruð að Stjörnusteini

Það var jólalegt í gærkvöldi þegar ég renndi í hlaðið.  Pavel minn var búinn að setja upp þúsundir ljósa hér um alla eignina svo lýsti langar leiðir. Hann hefur verið mér innanhandar undanfarin ár og sett seríurnar upp en átti stundum mjög erfitt með að skilja að seríum er hent ef þær virka ekki almennilega.  Eitt árið var hann í heila viku, án þess að ég vissi, að dunda við að skipta um perur í tugum sería sem voru að mínu áliti gjör ónýtar. Það tók mig langan tíma að útskýra fyrir honum að þetta væri tímasóun og líka það að perurnar kostuðu meira en ný sería. Já stundum reynir á þolinmæðina í þessu landi.   

 Fyrstu árin hér áttum við í miklu basli með rafmagnið um hátíðarnar.  Um leið og ég var búin að tengja eina seríu sló rafmagnið iðulega út. Þetta fór rosalega í mínar fínustu.  En þegar árin liðu fóru þeir að skilja að á þessu heimili er rafmagn ekki sparað svo fljótlega komust hlutirnir í lag.

Sveitungar okkar gera sér ferðir hingað á aðventunni til þess að bera dýrðina augum enda skreytir engin hér um slóðir jafn mikið og hún ég.  Jóla hvað?Halo

    


Ojbara!

Nú svelgdist mér á kaffinu mínu.  Ógeðslegt að fá þetta uppí sig.Sick  En þegar talað er um jólabjór eða jólaöl sem alltaf var keypt í kútum hjá Ölgerðinni í gamla daga á æskuheimili mínu langar mig að segja ykkur hvernig við hér sem ekki getum nálgast Malt og Egils appelsín bruggum okkar eigið jólaöl.

Við blöndum saman Fanta og dökkum bjór og útkoman frábært drykkur og engin aukakvikindi.Joyful


mbl.is Fann skordýr í jólabjórnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband