Færsluflokkur: Vefurinn

Var nokkur þarna úti fluga á vegg hjá mér í dag?

Ja ef svo var þá er ég búin að kála nokkuð mörgum vinum mínum, réttara sagt búin að fremja fjöldamorð!  Hver þolir líka ágengar húsflugur sem suða eins og heill skólakór sem tekur hummm áður en byrjað er að syngja. 

Ég fór hamförum hér seinni partinn í dag, æddi eins og vitleysingur um allt eldhúsið og barði frá mér til hægri og vinstri.  Ástæðan var sú að hér hafði verið opin hurð í allan dag og þar sem nýbúið er að hirða af akrinum fylltist allt hér að þessum leiðinda kvikindum. Ég vopnaðist blautri rýju og skipaði mínum elskulega að loka hurðum á eftir sér en hann býr ,,í tjaldi" allt sumarið. 

  Ég kveikti ljós öðrum megin í eldhúsinu til að koma þessum suðandi her á einn stað en það var hægara sagt en gert þar sem enn var bjart úti. Það versta var að þær voru búnar að þekja skjáinn með flugnaskít.  Hafið þið tekið eftir því hvað þessi kvikindi bera með sér á löppunum, maður sér það svo greinilega á hvítum skjánum.  Ógeðslegt. 

Ég stóð í þessum bardaga í allt að hálftíma og engin miskunn hérna megin, ég kálaði þeim öllum með tölu, ekki eitt suðandi kvikindi hér inni núna.

Vonandi eruð þið öll heil á húfi er komin með smá samviskubit, hvað ef þetta voru vinir mínir í heimsókn þá er ég í djúpum.......

Minn heldur sig upp núna og þorir ekki einu sinni út með ruslið, tekur engan sjens, drápseðlið gæti blossað upp í hans annars elskulegu eiginkonu og ein og ein fluga á vegg pirrar hann ekki baun.

Nú er ég farin að slökkva öll ljós og sofa í hausinn á mér enda búin á því eftir hamfarir dagsins.   


Tónaflóðið heldur áfram að berast frá Leifsbúð

Nú eru það ómar frá klarinettinum hans Einars Jóhannessonar sem berast hér með vindinum yfir sveitina okkar en hann kom í gær hingað og ætlar að dvelja hér í Listasetrinu næstu fjórar vikurnar. 

Ég hef alltaf haldið dálítið upp á þetta ljúfa hljóðfæri og ekki amalegt að fá að njóta þess að hlusta á snillinginn spila.

Minnir mig á fyrsta veturinn okkar hér í Prag 1991.  Þá bjuggum við niðrí borg ekki svo langt frá Kastalanum.  Einu sinni sem oftar var ég að ganga niður í bæ og var komin niður á Mala Strana en þar liggja öngstræti alveg niður að Moldá.  Ég man að það var brunakuldi eins og hann getur orðið verstur hér og stilla.  Allt í einu heyri ég undurljúfa óma klarinetts berast út um opinn glugga. 

 Ég stansaði og leit upp að húsinu sem var fremur óhrjálegt þriggja hæða steinhús.  Grá kolaslikjan huldi gömul útflúr og steinmyndir en bak við opinn glugga bærðist hvít gardína í svölu morgunloftinu. 

 Það er í svona strætum hér í Prag sem tíminn stendur kyrr og það er svo auðvelt að finnast maður vera kominn inn í mynd fyrri alda. Ég man að ég stóð þarna gjörsamlega bergnumin og hlustaði lengi á tónana sem bárust frá opnum glugganum.  Mér fannst ekkert vanta þarna nema krínólínið.  Ég rankaði við mér þegar ég heyrði hófaskelli á götusteinunum og vagn kom skröltandi fyrir hornið.  Ekillinn heilsaði og hvarf síðan inn í frostþokuna eins og í ævintýrunum.

Ég gleymi þessum sunnudagsmorgni aldrei og ef þið eigið einhvern tíma leið hér um farið þá og heimsækið þessi öngstræti Mala Strana snemma morguns á vetrarkvöldi.      


Eftirminnileg ferð til Toscana

Það var yndislegt að fara þessa ferð saman, litla fjölskyldan.  Við gamla settið nutum hverrar mínútu með barnabörnunum þessa daga í fallegu umhverfi Toscana. Litli Juniorinn okkar frá Íslandi lærði ný orð á hverjum degi og litla Prag-prinsessan ný trikk enda á hermialdrinum. 

Hvað getur verið meira gefandi en að fá að fylgjast með þessum sólargeislum okkar!

Eftir að hafa keyrt til Milano sameinuðumst við litla fjölskyldan í sveitasælu Toscana þar sem krakkarnir okkar höfðu leigt hús í viku.  Egill og Bríet flugu síðan heim til Prag en við hin keyrðum inn í Ítölsku Alpana og dvöldum þar einn dag.  Ótrúlega fallegt að sjá þetta svæði í sumarbúningi.

Við keyrðum eins og leið lá til Munchen þar sem við gistum eina nótt og héldum síðan heim til Prag.

Gott var að koma heim og heyra vælið í Erró þegar hann tók á móti okkur hér í kvöldsólinni. 

Nú tekur hversdagurinn við með öllu því lífsins amstri sem alltaf er þó gaman að takast á við. 

 


Það sem henti hér í dag.....

.....er eitthvað sem hendir okkur öll í daglegu amstri hversdagsins.  Ég byrjaði á því að reyna að henda reiður á þvi sem ég ætlaði að gera í dag. Byrjaði á því að hendast upp og niður stigana, henda í þvottavél og þurrkara til skiptis.  Hentist síðan niður til að henda í uppþvottavél, hentist í símann og hentist síðan í sturtu vegna þess að nú var komin tími til að gera sig klára til að hendast í hreinsunina og smá útréttingar fyrir morgundaginn.

Þegar ég var búin að sækja fötin í hreinsunina hentist ég að bílnum og henti fötunum í skottið og skellti aftur.  Nú skildi hendast í Apotekið og Marks & Spencher vegna þess að ég er eins og litlu börnin sem hafa með sér saltstangir í bílinn þá verð ég að hafa með mér hafrakex á ferðalögum til að lifa af morgunmatinn. 

Þarna var ég næstum búin að henda mér í vegg eins og Jenný, déskotinn sjálfur, afgreiðslan var fyrir neðan allar hellur og ég hellti mér yfir aumingja afgreiðslukonuna og húðskammaði hana fyrir sauðahátt og hótaði að hér skildi þetta fara fyrir nefnd í hinu hámenntaða Breska drottningaveldi. 

Ég hentist síðan niður rúllustigann og út í bíl, henti pokaskjöttunum í aftursætið og keyrði í hendingskasti 50 km til Prag þar sem ég var orðin ansi sein á ferð og klukkan að verða sjö og ég var búin að lofa að henda kveðju á vini mína Stefán Baldursson og Þórunni þar sem þau voru að koma hingað til að heimsækja okkur og við auðvitað við að hendast burtu á morgun svo það var bara þessi litla kvöldstund sem við gátum setið saman og knúsað hvort annað.

Loksins þegar ég var komin niður á Reykjavík þá hætti þetta æðibunukast sem ég hafði angrað mig í allan dag og loks gat ég slakað á.  Það var yndislegt að hitta Tótu og Stebba í kvöld.   Gunnar Kvaran og Guðný komu síðar um kvöldið og við áttum skemmtilega samverustund fram yfir miðnætti.

Það er alsæl kona sem ætlar núna að henda sér á koddann og á morgun verður hent í töskur og brunað í alsælu á vit fornra rústa Ítalíu.

Góðar stundir góðu vinir hvar sem þið eruð í heiminum.

 

 

 

 


Þetta er dagsatt eða þannig....

Um daginn benti minn elskulegi mér á ferðabíl, ef bíl skildi kalla, fyrir utan eina bílasöluna hér í borg og tilkynnti mér að hann hefði fjárfest í þessu til að koma allri fjölskyldunni í fyrirhugað ferðalag til Ítalíu.  Þetta var örugglega um 10 metra langt glasandi rautt og svart stálhylki á hjólum og minn sagði að innanborðs væru fjögur herbergi með baði, setustofa, borðstofa og eldhús og þegar þú værir búinn að parkera gætir þú fengið 30fm verönd með útigrilli og alles með því að draga eina hliðina út svona eins og skúffu. 

Mig hryllti við tilhugsunina eina saman, bara það að sjá lítil hjólhýsi hvað þá ferðabíla á vegunum hér gerir það að verkum að maginn á mér herpist saman  og ég fæ klígjuna upp í háls.  Sorry, þið sem eigið svona tæki, ekkert persónulegt.

En það er satt við erum að fara í FRÍ og engin smá tilhlökkun í gangi á þessu heimili.  Öll litla fjölskyldan okkar saman til  Ítalíu í viku.  Soffa okkar með húsband og litla gaurinn hann Þóri Inga koma frá Íslandi og Egill, Bríet og Elma Lind fljúga héðan á laugardag. 

Í upphafi datt okkur í hug að leigja átta manna bíl hér svo öll fjölskyldan gæti ferðast saman um vínhéruð Ítalíu  en þegar málið var skoðað var þetta svo óhagstætt og líka það að við verðum að hafa tvo barnastóla í bílnum plús allt sem fylgir stórri fjölskyldu á ferðalagi.  Við tókum þann kostinn að við Þórir keyrum á öðrum bílnum okkar en fengum síðan mann til að lóðsa hinn bílinn niðr´eftir.  Keyptum flug fyrir bílstjórann aftur til Prag svo nú verðum við bara á okkar eigin bílum og nóg pláss fyrir alla.  Þetta var helmingi ódýrari kostur en að leigja einhverja druslu.

Við Þórir ætlum að leggja í hann á morgun og dóla okkur eitthvað áleiðis. Hittum litlu fjölskylduna frá Íslandi á föstudagskvöld í Milan og síðan sameinast allir á laugardag einhvers staðar upp í hæðum Ítalíu ekki svo langt frá Florens.  Þar hafa krakkarnir okkar leigt hús í viku og voru svo elskuleg að bjóða gamla settinu með.  Við keyrum síðan með Soffu og Steina aftur áleiðis til hundrað turna borgarinnar þar sem þau ætla að vera hjá okkur hér í nokkra daga.

Þess vegna kæru vinir getur verið að þið heyrið ekkert í mér næstu vikur þar sem ég hef ekki hugmynd hvort ég kemst í netsamband eða nennu til að blogga.   En við sjáum bara til.

Kem e.t.v. aftur inn í kvöld svona rétt til að fara bloggvinahringinn og senda knús á ykkur. 

 

    

   


mbl.is Stolið hjólhýsi fannst í sandgryfjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brahms í boði Guðnýjar konsertmeistara hér í borðstofunni okkar í kvöld

Enn bættist við flóru listamanna hér í Listasetrið okkar og í dag tókum við  á móti Guðnýju Guðmundsdóttur konsertmeistara og Gunnari Kvaran sellóleikara. Okkar er heiðurinn að fá þessa frábæru listamenn hingað til dvalar í skamman tíma. 

 Guðný tók upp fiðluna hér í kvöld og þar sem við sátum undir sextándu aldar gamalli hvelfingu inn í borðstofunni okkar fannst henni ekkert annað koma til greina en spila fyrir okkur verk eftir Brahms.  Ég á seint eftir að gleyma þessari kvöldstund hér í borðstofunni minni við kertaljós og undurfagra tóna frá fiðlunni hennar Guðnýjar.

Á eftir settumst við út á verönd og borðuðum kvöldverð sem undrakokkurinn, minn elskulegi framreiddi af sinni einstöku snilld. Það gerði smá skúr svo við fórum inn og gæddum okkur á bláberjum með heitri kampavínssóu sem aldrei bregst á þessu heimili. 

Mikið skrafar, mikið rætt um sameiginlega vini og kunningja og nú eru allir komnir til kojs nema hún ég sem sit hér og pikka þetta hér í dagbókina mína.

Á morgun er kominn nýr dagur. 

 

  

 

 

 

 

 

   

 


Amberg var okkar bær og bjargaði okkar sálarheill fyrir átján árum

Ohhh ég veit nákvæmlega hvar þetta hótel er! Þessi litli bær í Bæjaraland var okkar lífsbjörg fyrir átján árum þegar við fórum einu sinni í viku yfir landamærin til að kaupa allar okkar nauðsynjavörur allt frá klósettpappír upp í mannsæmandi matvæli sem ekki fengust hér í þá daga.

Við bjuggum alltaf á sama hótelinu, Hotel Alstath og þar réði ríkjum fyrrverandi fegurðadrottning Amberg 1971, alveg satt, það var meira að segja mynd af henni á vegg í veitingasalnum. Blessunin leit nú ekki út eins og fegurðadrottning árið 1991 en hvað sem öðru leið þá var hún mjög elskuleg og tók alltaf á móti okkur eins og höfðingjum enda vorum við fastagestir í nokkur ár. 

Í þá daga var Amberg bara lítill sveitabær, ég vil segja að þetta hafi verið svefnbær, rétt við landamæri Tékklands sem hafði ósköp lítið uppá að bjóða en hefur blómstrað með árunum.  Ég sá strax að bærinn hafði mikla sögu að geyma og að hluta til er hann umkringdur háum múrveggjum og hliðum sem hafa staðið síðan á 15. öld.  Í dag kemur þú í sögubæ sem hefur byggst upp ótrúlega hratt og varðveitt gamlar mynjar, s.b. þetta einstaka hótel sem ég ætla svo sannarlega að heimsækja næst þegar ég á leið um.

Ég get sagt ykkur margar sögur frá Amberg en læt nægja í þetta sinn að segja að minn elskulegi elskaði að gista hjá fegurðardrottningunni og heimtaði alltaf að við gistum í tvær nætur.

Segi ef til vill fleiri sögur frá Amberg seinna.


mbl.is Minnsta hótel í heimi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tékkar eru sjálfstæð þjóð og hræðast ekki lengur

Um leið og utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Tékklands, Karel Schwarzenberg og Condoleezza Rice skrifuðu undir samninginn um uppsetningu eldflaugavarnarkerfis í Tékklandi blésu kaldir vindar um hundrað turna borgina Prag.

Þrátt fyrir lítil sem engin mótmæli hér í borginni höfðu sumir á orði að veðurguðirnir sýndu glögglega að þetta væri viðburður sem vert væri að taka eftir.  Tékkar eru að því leiti líkir okkur Íslendingum að þeir trúa á veðurguðina og fara mikið eftir því hvernig vindar blása þegar stórviðburðir gerast.  Eins og við eiga þeir líka óteljandi málshætti þar sem veður og vindar segja til um ókomna framtíð.

Tékkar eru þjóð sem bjó undir oki kommúnismanns í fimmtíu ár og létu yfir sig ganga kúgun og niðurrif og þau ár gleymast aldrei. Tékkar eru friðsöm þjóð og vinnusöm sem í dag eru á góðri leið með að verða eitt fremsta ríki V- Evrópu. 

 Uppbyggingin sem orðið hefur hér á undanförnum árum er ótrúleg og þeir eru stoltir af því að vera í dag sjálfstætt ríki sem stendur á eigin fótum.  Þeir áunnu sér fljótlega, eftir flauelsbyltinguna hylli allra vestrænna þjóða og hræðast ekki lengur stóra bróður í austri. 


mbl.is Saka Rússa um þrætugirni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna kom ekki þessi yfirlýsing fyrr frá útlendingastofnun?

Útlendingastofnun kemur með greinagóða lýsingu en hvers vegna ekki fyrr!?  Næstum þremur dögum of seint?  Nú eru allir kjaftstopp, vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga.  Síðan kemur þetta klassíska og trúgjarnir segja:  Nú var þetta svona og málið dautt. 

Sátum hér í kvöld með vinum okkar og fl. fólki. Ég konsúlínan tilkynnti að ég hefði skrifað undir listann sem gekk í morgun um að bjarga Paul Ramses frá gálganum. 

Fékk ræðu frá mínum elskulega um það að ég  ætti ekki að skipta mér að svona málum. 

Eldur varð laus! Ræði það ekki á opinberum vetvangi en ég fékk stuðning frá Halldóri ritmeistara þar sem hann hafði líka skrifað undir samskonar lista.  Hjúkket hvað ég var fegin að fá stuðning frá ekki ómerkari persónu.

Umræður urðu fjörugar. Ég og Halldór stóðum föst við okkar skoðanir.  Flestir ráðamenn þjóðarinnar  voru komnir niður fyrir okkar sjónlínu.   Síðan var málið tekið út af dagsskrá.

Nú sit ég hér og veit ekkert í minn haus vegna þess að þessi blessuð útlendingastofnun sá sér ekki fært  að senda greinagóða skilgreiningu fyrr en í eftirmiðdaginn! Og við almúginn erum bara búin að básúna út okkar sjónarmið og mæta á mótmælafund til einskis vegna þess að auðvitað hefur þessi stofnun það vald að berja niður óbreittan almúgann og segja að rétt sé rangt.

 Var verið að funda í allan dag með yfirmönnum þjóðarinnar? Nei ég held ekki, það eru allir komnir í sumarfrí.

.  Málið auðheyranlega dautt. 

 En við öll höfum rétt á þvi að hafa í frammi okkar skoðanir og málfrelsi er sem betur fer enn viðurkennt í okkar einkennilega þjóðfélagi.

Sorgleg endalok eða....

     


mbl.is Útlendingastofnun: Ramses var ekki handtekinn á heimili sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölskyldufréttir héðan frá Prag

Bæjarrotturnar, hún Anna systir mín og mágur eru búin að vera niðrí Prag með börnin síðan á mánudag og ætla held ég að vera þar fram á sunnudag eða mánudag.  Við sveitalubbarnir höfum haft dálitlar áhyggjur af þeim þarna niðrí íbúðinni okkar í skarkala miðborgarinnar og yfir 30°hita. En hafið engar áhyggjur, við fylgjumst grannt með þeim og þeim virðist líka vel borgarlífið.

Þar sem Þórir komst í fyrsta sæti hjá Ólafi Friðrik (konungi) og Rikki, pabbinn sjálfur datt niður í annað hefur minn elskulegi reynt að halda sætinu eftir fremsta megni.  Fyrsta daginn keypti hann derhúfu sem á stóð Óli í Prag 2008 og næsta dag digitalúr, sem sagt er bara að kaupa krakkann fyrir slikk en svínvirkar, heldur enn fyrsta sætinu. 

Kolbrún Eva dúlla er bara hress í hitanum enda farin að fá Haagen Dazs ís á hverjum degi, sem sagt minn elskulegi farinn að kaupa sér vinsældir hjá henni líka..

Í dag ætlar Þórir að keyra þau til Dresden og er í þessum skrifuðu orðum að bíða eftir þeim, þið sem þekkið þau skiljið það...... gæti tekið tíma hehehhe....

Þau verða síðan hér hjá okkur síðustu daga ferðarinnar og hlakka ég til að fá líf aftur í húsið.

Ég ætla að nota daginn í dag til að randa í búðir, vantar svo tilfinnanlega skó með fyrirkomulagi.  Jenný veit hvað ég er að tala um.

Lít e.t.v. inn hér þegar kvölda tekur og sól sest.

Eigið góðan dag hvar sem þið eruð stödd í heiminum elskurnar...nú URLAST Hallgerður...

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband